Fréttablaðið - 12.02.2009, Síða 26

Fréttablaðið - 12.02.2009, Síða 26
Inga R. Bachmann opnaði skart- gripaverslunina Hringa rétt fyrir jól en þar er að finna hvers kyns sérsmíði og hönnun. Segja má að skartgripahönnun Ingu einkennist af þrenns konar mótívum: sjónum, borginni og sveitinni. Í sjávarflokknum má finna fiska, kuðunga, þara og annað sjávarfang sem Inga mótar í gull og silfur. Í borgarflokknum bregður fyrir múrsteinamunstri, fólki og bílum og í sveitarflokkn- um eru alls kyns dýr, könguló- arvefir, hnetur og maurar. Þá er boðið upp á sérsmíði eins og nafna- hálsmen, ermahnappa, giftingar- hringi og fleira. „Ef fólk fær hugmyndir og á sér til að mynda uppáhaldsdýr þá sér- smíða ég þau líka eftir pöntun,“ segir Inga. Hún útskrifaðist sem gullsmiður frá Spáni árið 2005 og starfaði hjá Aurum í Bankastræti þar til hún opnaði Hringa. Inga á ekki langt að sækja gull- smíðaáhugann en afi hennar var járnsmiður og bróðir stálsmiður. „Ég var mikið á verkstæðinu hans afa sem barn og var fljótt ákveð- in í því að fara út í einhvers konar málmsmíði.“ Í Hringa, sem er til húsa á Laugavegi 20b, er einn veggur tileinkaður nýjum listamanni í hverjum mánuði. „Ég fæ hingað hina ýmsu listamenn og nú er það Hildur Yeoman fatahönnuður sem hefur lagt vegginn undir sig. Verk eftir Söru Riel eru svo væntanleg.“ vera@frettabladid.is Fisktorfur, fólk og maurar Gullsmiðurinn Inga R. Bachmann hannar skartgripi sem skipta má í þrjá flokka. Hún sækir innblástur til sjávar, borgar og sveita og í verslun hennar, Hringa, má finn múrsteina-, maura- og fjöruskart. Fisktorfa til skrauts.Hálsmen og eyrnalokkar úr borgarflokknum. Hringur og hálsmen með múrsteina- munstri úr borgarflokknum. Inga mótar kuðunga, bíla og köngulóarvefi í gull og silfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON NÝJAR VÖRUR streyma nú inn í tískuvöruverslanir þegar útsölunum er að ljúka. Víða er margt fallegt að finna og enn má gera góð kaup ef vandlega er að gáð. Klossaðir skór og hvítar doppur SKÓR VORU LANGT FRÁ ÞVÍ AÐ VERA Í AUKAHLUTVERKI Á TÍSKU- SÝNINGU DAVID JONES. Á tískusýningu ástralska vöruhúss- ins David Jones í gær kenndi ýmissa grasa. Þar mátti meðal annars sjá skó í úrvali en eins og meðfylgjandi myndir bera með sér geta þeir gert gæfumuninn. Smáatriði eins og hvítar doppur á svört- um ökklaskóm umbreyta svörtu dressi á augabragði. Þá eru svartir sjó- ræningjaklossar ómótstæðilegir og seiðandi við gammosíur og frjálslega slá. - ve Kannt þú skyndihjálp? Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeið í almennri skyndihjálp þriðjudaginn 7. október kl. 18-22 í Hamraborg 11, 2 hæð. Á námskeiðinu læra þátttakendur grundvallaratriði í skyndihjálp og endurlífgun. Markmiðið er að þátttakendur verði hæfir til að veita fyrstu hjálp á slysstað. Námskeiðsgjald: 4.500 kr. á mann. Leiðbeinandi er Laufey Gissurardóttir. Innifalin eru námskeiðsgögn og þátttökuskírteini. Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 www.redcross.is/kopavogur opið virka daga kl. 10-16 Frekari upplýsingar má fá með því að hringja í síma 554 6626 eða senda tölvupóst á kopavogur@redcross.is. Skráning er til 3. okt. Frekari upplýsingar má fá með því að hringja í síma 554 6626 eða senda tölvupóst á kopavogur@redcross.is. Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeið í almennri skyndihjálp þriðjudaginn 7. október kl. 18-22 í Hamraborg 11, 2 hæð. Á ná i inu læra þátttakendur grundvallar triði í skyndi l og endurlífgun. Markmiðið er að þátttakendur verði fir til að veita fyrstu hjálp á slysstað. il a krossins heldur námskeið í i j l riðjudaginn 7. október kl. 18- 2 , ð. i l r átt akendur g undvallaratriði í rlífgun. ark iðið er að þá takendur il veita fyrstu hjálp á sly stað. Frekari upplýsingar fást í síma 554 6626 eða með tölvupósti á kopavogur@redcross.is. Skráning er til 3. október m vikudagi n 18. fe rúar kl. 18- 2 kr i il 17. febrúar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.