Fréttablaðið - 12.02.2009, Qupperneq 41
FIMMTUDAGUR 12. febrúar 2009 25
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur
til að senda línu og leggja orð í
belg um málefni líðandi stundar.
Greinar og bréf skulu vera stutt
og gagnorð. Tekið er á móti efni
á netfanginu greinar@frettabladid.
is eða á vefsíðu Vísis, þar sem
finna má nánari leiðbeiningar.
Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í
Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum
miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og
til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Ögmundur Jónas-
son skrifar um vel-
ferðarkerfið
Það er ekki langt s íða n forstjór i
Sjóvár sendi síðast út
greiðsluseðla fyrir
tryggingum. Verið var
að hækka þær um 40%
á milli ára. Engin lækk-
un í boði þar! Sami forstjóri, Þór
Sigfússon, auglýsir eftir þjóðarsátt
um niðurskurð ríkisútgjalda. Það
gerir hann sem formaður Samtaka
atvinnulífsins.
Hvert mannsbarn veit að nú er
okkur gert að skera almannaþjón-
ustuna niður við trog. Laun hafa
lækkað, svo og framlög til heil-
brigðismála og krafa er á enn frek-
ari niðurskurð. Á markaði
er víða sömu sögu að segja.
Skuldum hlaðin fyrirtæki
draga saman seglin og hin
ábyrgari reyna að halda
verði á vöru og þjónustu í
lágmarki. Þau vita að sam-
hliða kaupmáttarrýrnun
almennings þurfa þau að
lækka gjöld, ekki hækka
þau eins og Þór Sigfússon
gerir.
Ég held að flestir geri
sér grein fyrir því að eina
leiðin til að við vinnum okkur út úr
þrengingunum sem félagar Þórs
Sigfússonar í Samtökum atvinnu-
lífsins bera óneitanlega margir
ábyrgð á, er að við gerum það
saman: Að við tryggjum aukinn
jöfnuð í samfélaginu um leið og við
vinnum okkur út úr heimatilbún-
um vanda; að ef við förum „útrás-
arleið“ Samtaka atvinnulífsins
með tilheyrandi ójöfnuði þá kom-
umst við hvorki lönd né strönd.
Þór Sigfússon, sem talar fyrir
atvinnurekendur í landinu, gerir
lítið úr hugmyndum um að þjóð-
in standi saman og vinni sig út
úr vandanum, sbr. sérstaka til-
kynningu sem hann sendi frá sér
í byrjun vikunnar. Þar segir: „Í
útgjaldaráðuneytum virðist mest
bera á vissum popúlisma, talað um
að skera niður laun hálaunafólks-
ins í læknastéttum, fyrirhugaðar
sparnaðaraðgerðir hafa verið sett-
ar í bið og því haldið á lofti að ráð-
herrar labbi í vinnuna.“ Hvað er
forstjórinn að leggja til? Er hann
að leggja til að laun starfsmanna
í eldhúsi spítalanna verði lækk-
uð? Inn í hvaða tíma er maður-
inn að tala? Fór fram hjá honum
bankahrunið og hugmyndafræðin
sem bankar og fyrirtæki byggðu
á fram í september á síðasta ári?
Ætli hann tali fyrir þann stóra hóp
atvinnurekenda sem í sveita síns
andlits vinna baki brotnu til að
halda fyrirtækjum sínum á floti
og leggja sig fram um að reyna að
halda fólki í vinnu? Ætli hann tali
til dæmis fyrir dugmikla útgerð-
armenn? Ég trúi því ekki.
Ísland hefur breyst. Lausnirnar
sem talsmenn Samtaka atvinnulífs-
ins töluðu fyrir 2006, 2007 og 2008
eiga ekki lengur við. Því fyrr sem
menn leggja til hliðar gömlu fras-
ana og finna sér nýja hugmynda-
fræði þeim mun hraðar komumst
við út úr kreppunni.
Við eigum aldrei að sætta okkur
við að samfélag ójöfnuðar verði
endurreist, samfélagið sem hrundi
fyrir fimm mánuðum, samfélagið
sem popúlistarnir í sérhagsmuna-
hópi atvinnulífsins bera megin-
ábyrgðina á. Ef Þór Sigfússon er
tilbúinn að slást í hóp okkar sem
viljum vinna okkur út úr vandan-
um með jöfnuðinn að leiðarljósi þá
veri hann velkominn. Ef formaður
SA ætlar hins vegar að halda sig í
veröld sem var, dæmir hann sjálf-
an sig og samtök sín úr leik.
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
Allir velkomnir í hópinn
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
UMRÆÐAN
Sigurður Kári Kristjánsson
svarar Sigurði Líndal
Lærifaðir minn, Sigurður Lín-dal, skrifaði grein sem birtist
í Fréttablaðinu um helgina, undir
fyrirsögninni „Ráðherrar raska
stjórnskipan“. Þar ber nafni minn
það á mig að hafa berum orðum
stutt yfirgang
ráðherraræðis
gagnvart
dómsvaldinu.
Ég á erfitt
með að sitja
undir slíkum
sendingum,
enda hef ég
hingað til ekki
verið ta ls -
maður þess
að ráðherrar
sýni yfirgang, hvorki gagnvart
dómsvaldinu né löggjafarvald-
inu. Raunar styð ég ekki yfirgang
af nokkru tagi. Þvert á móti hef
ég verið talsmaður þess að staða
löggjafarvalds og dómsvalds í
stjórnkerfinu verði styrkt og að
valdmörk milli handhafa rík-
isvaldsins verði skýrð umfram
það sem gert er í núgildandi lög-
gjöf. Aldrei hef ég lagt til að það
verði gert til hagsbóta fyrir fram-
kvæmdarvaldið á kostnað löggjaf-
arvalds eða dómsvalds.
Aðfinnslur Sigurðar í minn
garð byggja á ágreiningi okkar
um hvernig túlka beri lög. Ég
vil túlka inntak laga í samræmi
við það sem segir í lagatextanum
sjálfum, þ.e. eftir orðanna hljóð-
an. Nafni minn vill fara aðrar
leiðir og túlka inntak laga eftir
öðru en því sem í þeim stendur.
Þessi ágreiningur okkar á milli
er málefnalegur og lögfræðileg-
ur. Túlkun mín á inntaki gildandi
lagatexta er eingöngu mín túlk-
un á gildandi rétti eins og hann
er hverju sinni. Í henni felst hins
vegar engin stuðningsyfirlýsing
við yfirgang ráðherraræðis gagn-
vart dómsvaldinu.
Í fullri vinsemd bið ég minn
ágæta læriföður að hafa það í
huga næst þegar hann stingur
niður penna.
Höfundur er lögfræðingur og
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
Læriföð-
ur svarað
SIGURÐUR KÁRI
KRISTJÁNSSON
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 9
0
2
3
6
FYRIRTÆKJAEIGENDUR
Notað og Nýtt > Mörkinni 1 > sími: 517 2030
Suðurlandsbraut
Sk
eið
av
og
ur
Miklabraut
Gnoðavogur
Mörkinni 1
>
Opnunartími:
Virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
Sunnudaga 13-16
Tökum á móti vörum utan opnunartíma,
upplýsingar í síma 517-2030
>
Tökum á móti vörum í umboðssölu.
> Skrifstofuhúsgögn
> Lager
> Innréttingar