Fréttablaðið - 12.02.2009, Qupperneq 48
32 12. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
„Ég hef sjálfur ekki orðið
fyrir miklu fjárhagslegu tjóni
miðað við aðra sem ég þekki
þar sem ég á ekki íbúð, bíl né
skuldir á himinháum vöxtum.
Vissulega hafa atvinnutæki-
færi þó dregist saman hérna
megin við Atlantshafið und-
anfarna mánuði,“ segir Birg-
ir Hilmarsson, Biggi kenndur
við Ampop og Blindfold. Hann
býr í London og hefur gert lag
um ástandið, „Fool‘s Mate“,
sem hann gefur á myspace.
com/biggihilmarsson.
„Það er nokkuð í umræð-
unni hér úti að „Íslendingar
kunni ekki að stjórna bönk-
um en kunni sko aldeilis að gera tónlist“,
þannig að það er nú einhver vonarglæta í
þessu öllu saman fyrir þjóð-
ina,“ segir Biggi og hlær.
„Bretar hafa gaman af því
að gera grín að okkur, frek-
ar en að beita okkur ofbeldi.
Vissulega eru þeir þó meðvit-
aðir um Icesave-ævintýrið og
ég hef heyrt sögur af Íslend-
ingum sem eiga erfitt með
að leigja og kaupa hérna úti,
sökum þess að okkur er ekki
treyst fyrir peningum.“
Lagið, sem er ballaða með
harmrænum texta, segir
Biggi vera „óð til þjóðarinn-
ar“. „Titillinn þýðir „Heima-
skítsmát“ sem getur bara átt
sér stað ef hvítur leikur mjög
illa og gefur kost á máti í örfáum leikjum í
skákinni.“ - drg
Ein af skemmtilegri plötum síðasta árs var mix-platan Top Ranking
sem bandaríski plötusnúðurinn Diplo gerði með söngkonunni Santo-
gold. Á henni er nokkrum tugum laga blandað saman í samfellda
tónlistarveislu. Þrettán laganna koma frá Santogold en afgangurinn
er litríkt safn úr ólíkum áttum – reggí, dancehall, hip-hop, elektró
og rokk. Desmond Dekker, Sir Mixalot og Prince Jazzbo eru þarna
en líka Mesopotamia með B52s, Be Stiff með Devo, Model með
Kraftwerk og svo kemur California Über Alles með Dead Kennedys
þarna eins og skrattinn úr sauðaleggnum. Frábært mix og minn-
ir á Piracy Funds Terrorism-mixið sem MIA og Diplo gerðu saman
2004, en Diplo er sennilega þekktastur sem nánasti samstarfsmað-
ur hennar.
Diplo heitir réttu nafni Wesley Pentz og er fæddur 10. nóvember
1978. Hann ólst upp hingað og þangað í Suðurríkjunum og var orð-
inn staðráðinn í því að verða tónlistarmaður þegar hann var 13 ára.
Á meðal áhrifavalda nefnir hann Miami Bass-bylgjuna og elektró-
plötusnúða eins og DJ Icey, en líka sveitir frá níunda áratugnum
eins og Cure, Eurythmics og New Order. Undanfarið hefur hann
líka mikið grúskað í brasilísku
baile-fönki og hann er mikill
áhugamaður um nýju alþjóðlegu
elektróbylgjuna sem listamenn
eins og hinn suður-afríski DJ
Mujava og portúgalska sveitin
Buraka Som Sistema eru hluti af.
Í vikunni kom út nýtt mix frá
Diplo á vegum Big Dada-útgáf-
unnar í Bretlandi. Það heitir
Decent Work For Decent Pay, en
þar eru remix Diplo af ýmsum
smellum síðustu ára, meðal ann-
ars Put That Pussy On Me með
Spank Rock, Paper Planes með
MIA, Reload It með Kano og
Shake A Fist með Hot Chip.
Svalur frá Suðurríkjunum
HEITUR Plötusnúðurinn og upptöku-
stjórinn Diplo.
Jason Lytle, fyrrverandi
aðalsprautan í hljómsveitinni
Grandaddy,
hefur tilkynnt
að hann gefi út
fyrstu sólóplötu
sína í maí.
Platan nefnist
Yours Truly,
The Commuter.
Grandaddy
hætti störfum
árið 2006.
Sveitin sendi frá
sér fjórar plötur
á ferlinum en sú
síðasta, Just Like The Fambly Cat,
kom út eftir að bandið hætti.
Lytle gefur
út sólóplötu
GRANDADDY
Söngvarinn Jason
Lytle gefur út fyrstu
sólóplötu sína.
Egill Sæbjörnsson er nú langt kom-
inn með nýja plötu, þá fyrstu síðan
platan Tonk of the Lawn kom út árið
2000.
„Þetta eru melódískar lagasmíð-
ar og eintómir hittarar,“ segir Egill.
„Ekkert experimental rugl.“
Bróðurparturinn af Memphis-
mafíunni – Gummi Péturs, Sigurð-
ur Guðmundsson og flestir úr Flís
– spilar með Agli og nú er verið að
leggja lokahönd á plötuna í Hljóð-
rita. „Ég ákvað að klára plötuna
áður en ég færi að spá í hver myndi
gefa hana út. Það kemur bara í ljós,
verður annað hvort ég sjálfur eða
einhver annar,“ segir listamaður-
inn.
Síðast söng Egill alla plötuna á
„rugl“-tungumáli, en nú er mest á
ensku. „Það er þó smá rugl með.
Mér finnst gaman að hafa órætt
tungumál inn á milli svo fólk fái
tækifæri til að geta í eyðurnar.“
Póesían er í lykilhlutverki í textun-
um, segir Egill. „Mér finnst leiðin-
legt þegar hlutir eru sagðir beint og
finnst áhugaverðara þegar talað er
undir rós.“
Egill hefur aðallega búið í Berlín
síðustu árin og fengist við myndlist,
en var í fjóra mánuði í Rio de Jan-
ero í fyrra með brasilískri kærustu.
Hann segir ganga ágætlega hjá sér.
„Ég hef verið heppinn. Ég hef unnið
með galleríum víða um heim og haft
nóg að gera. Ég hef einstaka sinn-
um fengið listamannalaun en mér
er skítsama hvort það er góðæri
eða kreppa. Málið er bara að mæta
á vinnustofuna og gera það sem
maður þarf að gera.“ - drg
Snýr aftur með eintóma smelli
SMÁ RUGL MEÐ Egill Sæbjörnsson klárar
nú plötu með Memphis-mafíunni.
ÓÐUR TIL ÞJÓÐARINNAR Birgir
Hilmarsson syngur „Fool‘s Mate“.
Gefur ballöðu um ástandið
> Í SPILARANUM
The View - Which Bitch?
Swan Lake - Enemy Mine
Vetiver - Tight Knit
Malajube - Labyrinthes
Lily Allen - It‘s Not Me, It‘s You
THE VIEWLILY ALLEN
Vinsælasta hljómsveit
danstónlistarsenunnar, The
Prodigy, snýr nú aftur með
nýja plötu, Invaders must
die. Þetta er fyrsta plata
bandsins með upprunalega
liðinu síðan platan Fat of
the land kom út árið 1997.
Dr. Gunni skoðaði málið.
The Prodigy var gríðarlega vin-
sæl á síðasta áratug. Danstónlist
var málið, Fatboy Slim og Chem-
ical Brothers trylltu liðið á dans-
gólfunum, en The Prodigy var allt-
af vinsælust, enda höfðaði myndmál
sveitarinnar og taktföst grípandi
tónlistin mjög vel til tölvuleikja-
sýrðra ungmenna. Bandið hefur selt
rúmlega 16 milljón eintök af plötum
sínum á alheimsvísu.
Bandið var á tímabili gríðar-
lega vinsælt á Íslandi enda hélt
það þrenna tónleika hér. Fyrst
1994 í Kaplakrika, þá 1995 á hinni
alræmdu tónlistar- og svallhátíð
Uxa og loks 1998 í Laugardalshöll.
Það gigg var eftirminnilegt. Liam
Howlett eins og herforingi bak
við græjustæður en stuðhvetjandi
söngvararnir á útopnu: Keith Flint
snarbilaður með fíflaklippingu og
Maxim dularfullur með drauga-
linsur.
Sveitin hafði beint áhrif. Ingiberg
Þór Þorsteinsson, sem síðar átti
eftir að stofna tónlistarblaðið Sánd,
byrjaði útgáfuferil sinn með Prod-
igy-tímariti. Quarashi voru undir
jafn miklum áhrifum frá bandinu
og Beastie Boys og Sölvi Blöndal
fékk meira að segja að endurmixa
eitt lag. Tónlist sveitarinnar hefur
lifað hér áfram, ekki síst í eróbikk
og spinning-tímum þar sem smell-
irnir eru enn í notkun.
„Ég gat aldrei skilið hvernig
Keith komst í gegnum tollinn, því
hann mætti í fullum herklæðum.
Við erum að tala um maskarann
og allt,“ segir Andrés Magnús-
son blaðamaður. Honum var falið
það krefjandi verkefni ásamt Þór
Eldon, gítarleikara, að taka á móti
bandinu þegar það kom til Íslands
til að spila á Uxa. Ýmis smáatriði
voru ekki frágengin, þar á meðal
vantaði pappíra fyrir hljóðfæri og
tól. Þetta skapaði vandræði í toll-
inum.
„Tollararnir höfðu séð í gegnum
fingur sér og hleypt alls konar liði í
gegn, en þegar enn eitt fávitasettið
mætti – og enn fríkaðra en öll hin
– þá fengu þeir nóg,“ segir Andr-
és. „Þetta endaði með því að ég og
American Express-kort umboðs-
mannsins vorum tekin í pant á
meðan einhver var ræstur út fyrir
austan – gott ef ekki Denni Kragh
– til að keyra til sýslumannsins á
Höfn og leggja fram greiðslu. Þór
keyrði af stað með bandið í rútu en
það vissi enginn hvert átti að fara.
Þá fann umboðsmaðurinn miða með
nafni hótelsins sem okkur fannst
táknrænt, Hotel Lostleiðir. Rútan
var þó ekki komin út af bílastæð-
inu þegar fíknó mætti og vildi fá
að skrúfa bandið og græjurnar í
sundur. Þá urðu spaðarnir í band-
inu hvítari en þeir hvítu. Sem betur
fer tókst einhvern veginn að lempa
málið og bandið endaði í leiguflug-
vél Bjarkar sem kom þeim austur.
Ég man að Þór sagði að kynni hans
af bandinu hefði ekki aukið álit hans
á tónlistarmönnum. En talaði þó um
að vit hefði verið í Liam.“
Á nýju plötunni, þeirri fimmtu,
þykir The Prodigy snúa aftur til
rótanna. Að nafninu til gaf bandið
síðast út plötu árið 2004, Always
outnumbered never outgunned, en
þá var Liam einn á ferð. Hann þarf
greinilega vini sína með til að rétti
Prodigy-andinn galdrist fram og
hefur sagt að Always outnumbered
sé botninn á ferli sínum.
Nú er að sjá hvort bandið eigi eitt-
hvað inni og geti endurvakið fyrri
vinsældir. Karlarnir flengjast
um heiminn og segjast engu hafa
gleymt. „Við erum dýr og vorum
orðnir hungraðir,“ létu þeir hafa
eftir sér í viðtali. Það væri við hæfi
að þeir tækju nú eitt gigg á kreppu-
skerinu Íslandi.
Prodigymenn hungraðir
VIÐ VORUM ORÐNIR HUNGRAÐIR Keith (41), Liam (37) og Maxim (42) eru enn í
góðu stuði.
Veltusundi 1/Sími: 511 5090
www.einarben.is