Fréttablaðið - 12.02.2009, Page 62
46 12. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT 2. vandræði, 6. guð, 8.
skáhalli, 9. í viðbót, 11. kraðak, 12.
tíðindi, 14. egg fisks, 16. járnstein, 17.
síðan, 18. tala, 20. rykkorn, 21. útmá.
LÓÐRÉTT 1. teikning af ferli, 3. frá,
4. kasta, 5. loka, 7. drullusokkur, 10.
kirna, 13. sódi, 15. almenn regla, 16.
maka, 19. kringum.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. basl, 6. ra, 8. flá, 9. auk,
11. ös, 12. fregn, 14. hrogn, 16. al, 17.
svo, 18. tíu, 20. ar, 21. afmá.
LÓÐRÉTT: 1. graf, 3. af, 4. slöngva,
5. lás, 7. aurhlíf, 10. ker, 13. gos, 15.
norm, 16. ata, 19. um.
„Það var mikill glaumur og gleði. Konan hefur
ekki dansað eins mikið síðan í menntó,“ segir Sig-
urður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður og nýr
stjórnarmaður í félagi íslenskra húseigenda á
Spáni.
Félag íslenskra húseigenda á Spáni hélt árshá-
tíð sína um helgina og var mikið um dýrðir. Árs-
hátíðargestir gistu tvær nætur á hótel Selfossi og
snæddu meðal annars kengúrukjöt og gerðu sér
glaðan dag auk þess sem rædd voru þau málefni
sem sameina þennan hóp.
Fréttablaðið greindi frá því í desember að Sig-
urður gekkst fyrir miklum fundi á Hressó sem
haldinn var með íslenskum húseigendum á Spáni.
Húsfyllir var og greinilegt að full þörf var á að fara
yfir málin. Hrun íslensku krónunnar hefur og hafði
þá sett margan Íslendinginn sem á hús á Spáni í
mikinn vanda. Sigurður sagði ýmsa hafa fundið
lausn á tímabundnum vanda með skuldbreyting-
um. „Bankar á Spáni þekkja kreppu og haga sér
allt öðru vísi en íslenskir bankar. Þeir vilja allt til
vinna að fólk nái að halda eignum sínum.“ Á árs-
hátíðinni gerðist það svo að Sigurður var kjörinn
í stjórn og segir hann mörg verkefni standa fyrir
dyrum vegna efnahagsástandsins. - jbg
Spánarfarar snæddu kengúrukjöt
„Það fór ljómandi vel á með okkur.
Gaman að sjá hvað hann er létt-
ur og kátur,“ segir Sverrir Þór
Sverrisson sjónvarpsmaður, eða
Sveppi.
Sveppi og Auðunn Blöndal –
Auddi – eru í þætti sínum, sem er
eftir fréttir á Stöð 2 á föstudags-
kvöldum, mjög að setja sig og aðra
inn í ástand mála. Næsti gestur er
enginn annar en Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra.
Sveppi segir að þótt brotthvarf
hans úr forsætisráðherrastóli hafi
kannski ekki verið samkvæmt bók-
inni, eða eins og Geir vildi, þá sé
ljóst að það er sem þungu fargi af
honum létt. „Bankahrunið? Jahhh,
jújú, við spurðum hann einmitt út í
það. Sem sagt, hvernig það væri að
koma heim þegar bíllinn er allur
útataður í eggjum og menn öskr-
andi: Ekki meir, Geir! Segir maður
þá: Jæja, ástin mín. Er Idolið að
byrja? Fer maður að sofa? Og alls
konar svona spurningar,“ segir
Sveppi til útskýringar á því hvað
hafi farið þeim Audda og Geir á
milli.
Í þættinum er svo farið með Geir
í „make-over“ eins og það heitir
víst á bransamáli en þá er gest-
urinn látinn breyta um stíl. „Öll
þjóðin þekkir Geir bara í jakka-
fötum. Hún hefur ekki séð hann
svona „loose“. Gaman að sjá svona
virðulegan mann klæddan sem
spreyjaravitleysing,“ segir Sveppi.
Sem þó vill ekki ganga svo langt að
segja að Geir hafi notið sín í fötun-
um og ætli jafnvel að breyta um
stíl. „Nei, ég held honum hafi ekk-
ert liðið mjög vel í þessum galla.
Ekki alveg hann.“ - jbg
Hipp-hopp Geir Haarde hjá Sveppa og Audda
HIPP-HOPP GEIRI MEÐ SVEPPA OG AUDDA Að sögn Sveppa þá er þetta ekki alveg
Geir – klæddur sem spreyjaravitleysingur. MYND/KRISTÓFER DIGNUS
SIGURÐUR Þ. RAGNARSSON Skemmti sér konunglega á árshátíð
Félags húseigenda á Spáni á hótel Selfossi um helgina, steig
dans og snæddi kengúrukjöt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég fæ mér maískornflex með
léttri AB-mjólk, bananabitum
og rúsínum. Þetta er bara gert
til að fóðra magann fyrir fyrsta
kaffibolla dagsins. Til tilbreyt-
ingar, um helgar, fæ ég mér
ristað brauð með marmelaði
og ef ég er nálægt bakaríi fæ ég
mér croissant. En umfram allt
kaffi, sterkt og gott kaffi.“
Unnur Jökulsdóttir rithöfundur.
Jóhanna Vilhjálms-
dóttir sjónvarpsstjarna
úr Kastljósi, sem nú
er í barnsburðarleyfi,
er enn orðuð við
framboð fyrir
Sjálfstæðis-
flokkinn
vegna kom-
andi alþingis-
kosninga. Ekki náðist í Jóhönnu í gær
vegna þessa orðróms.
Valli sport þykir einhver allra
öflugasti plöggari landsins og
hefur hann nú tekið að sér að
koma kvennahljómsveitinni Elektra
á framfæri
líkt og hann
gerði með
svo miklum
ágætum í fyrra
með Merzedes
Club. Engin
tilviljun er
að Elektra
mun flytja lag
Grýlnanna, Sísí
fríkar út, hjá Loga í beinni á föstu-
dagskvöldið en á laugardagskvöld
er svo úrslitakvöldið í forkeppni
Eurovision-söngvakeppninnar.
Geir Ólafsson hefur
ákveðið að gefa þrjá-
tíu prósent af hagnaði
næstu plötu sinnar til
Mæðrastyrksnefndar
– enda vill hann
leggja gott eitt til
lands og þjóðar.
Hljómsveitin Buff virðist vera orðin
hljómsveit hins opinbera. Hún
spilaði á árshátíð Seðlabankans
og um helgina leikur hljómsveitin
fyrir dansi þar sem koma saman
öll ráðuneyti landsins. Auk Buffsins
kemur diskó-
söng dúettinn
frábæri Þú og
ég með þeim
Jóhanni
Helgasyni
og Helgu
Möller. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Egó.
2 Sigurbjörn Bernharðsson.
3 Grindavík.
„Ég náði þessum kvóta fyrir
löngu, ég er samt ekkert að eyða
út mínum vinum, það er bara
fyrstir koma, fyrstir fá,“ segir
Logi Geirsson, landsliðsmaður í
handbolta og leikmaður Lemgo.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrir nokkru sprengdi Hemmi
Gunn skalann á Facebook, náði
fimm þúsund vinum. Logi
er nú kominn í þennan
hóp með sjónvarps-
manninum góðkunna.
„Ég bætti bara öllum
við, það eru allir vinir
mínir,“ bætir Logi við.
Og hann hyggst fagna
þessum árangri með því
að halda tónleika með
hljómsveit sinni, Logi og lund-
arnir, á netinu en hana skipa,
auk Loga sem syngur, félagi
hans hjá Lemgo, Vignir Svavars-
son. Tónleikunum verður „útvarp-
að“ í gegnum símaforritið Skype
eftir tvær vikur. „Við reynd-
um að gera þetta á laugar-
daginn, komumst í gegnum
tvö lög en þá hrundi
netið hjá Vigni,“
útskýrir Logi.
Og honum er full
alvara með hljóm-
sveitinni. Því hún
hyggst ferðast um
landið í sumar og
spila á nokkrum vel
völdum tónleika-
stöðum. Sveitinni bættist nýver-
ið mikill liðstyrkur hér á landi
því Veðurguðinn Ingó hyggst
leika á bassa með þeim. „Hann
kom bara að máli við mig, fannst
þetta skemmtileg hugmynd og
vildi ólmur fá að vera með,“ segir
Logi. Hann styður að sjálfsögðu
sinn mann í Eurovision en Ingó
keppir á lokakvöldinu á laugar-
daginn með lagið Undir regn-
bogann. Hljómsveitin er þegar
komin með þrjú frumsamin lög og
fleiri eiga eftir að bætast í sarp-
inn. Þeir sem hafa áhuga á „live“
tónleikum Loga og lundanna er
bent á að fylgjast vel með blogg-
síðu Loga; logi-geirsson.de. „Ég er
hins vegar kominn í Facebook-frí
í viku, maður verður svo hrika-
lega háður þessu.“
juliam@frettabladid.is
LOGI GEIRSSON: KOMINN Í HÓP MEÐ HEMMA GUNN
Veðurguðinn Ingó til liðs
við hljómsveit Loga Geirs
ALLIR ERU VINIR MÍNIR Logi Geirsson segist ekki gera mannamun í vinavali sínu á fésbók. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HELDUR MEÐ INGÓ Logi
heldur að sjálfsögðu
með Ingó í Eurovision
næstkomandi laugardag
enda tilvonandi bassaleik-
ari hljómsveitarinnar.