Tíminn - 14.11.1992, Side 3
Laugardagur 14. nóvember 1992
Tíminn 3
Halldór Ásgrímsson, formaður íslandsdeildar Norðurlandaráðs, segir að breytingar á nor-
rænu samstarfi geti þýtt að Norðurlandaráð hætti að styrkja Norrænu eldfjallastöðina:
EES þýðir að norrænt sam-
starf verður mikilvægara
„Að mínu mati er norrænt samstarf þýðingarmeira fyrir ísland nú
en nokkru sinni fyrr vegna þess sem er að gerast í Evrópu. Við höf-
um ekki möguleika á því að taka þátt í öllum þeim fundum sem
haldnir verða eftir að hið Evrópska efnahagssvæði hefur verið
stofnað. Við getum því haft meiri áhrif með því að viðhalda góðu
norrænu samstarfi og stólað í mörgum tilvikum á norræna starfs-
bræður okkar í ýmsum málum,“ sagði Halldór Ásgrímsson, alþing-
ismaður og formaður íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Þingi Norðurlandaráðs lauk ívikunni í
Árósum í Danmörku. Á þinginu var
ákveðið að breyta forgangsröð verk-
efna í norrænu samstarfi á þann hátt
að menningarmálin fengju meira fjár-
magn og aðrir málaflokkar minna.
Eftir er að útfæra þessa stefnumörkun.
Ekki liggur fyrir hvar verður skorið
Landlæknir nefndi á ráðstefnunni
dæmi um árangur af slysavörnum á
íslandi og öðrum Norðurlöndum á
tímabilinu 1970-1990. Árið 1970 var
heildardánartíðni vegna slysa hæst á
íslandi af Norðurlöndunum. Á tíma-
bilinu 1985-1990 lækkaði tíðnin um
45% og er tíðnin lægst á íslandi bor-
ið saman við hin Norðuriöndin.
Árangurinn hefur því miður ekki
niður. Halldór sagði að eitt þeirra verk-
efna sem horft sé til í því efni sé Nor-
ræna eldfjallastöðin. Sú rödd heyrist
að stöðin sé dæmi um verkefni sem
viðkomandi land eigi að sinna en ekki
Norðurlandaráð. „Eg óttast að Nor-
ræna eldfjallastöðin sé í hættu í sam-
bandi við endurskipulagningu nor-
verið góður í öllum aldurshópum.
Árið 1970 var dánartíðnin í aldurs-
hópnum 0-14 lægst á íslandi, en er
nú hæst þar. Dánartíðnin hefur þó
lækkað um 31%. Hin Norðurlöndin
hafa hins vegar gert enn betur. Þar
hefur dánartíðnin lækkað í þessum
aldurshópum um 51-68%. í aldurs-
hópnum 15-24 ára var dánartíðnin
hæst árið 1970 og svo er enn.
ræns samstarfs," sagði Halldór. Hann
tók skýrt fram að engin ákvörðun
hefði verið tekin varðandi framtíð
stöðvarinnar.
Rætt var um á þinginu að hluti af því
norræna samstarfi sem verið hefúr
formlegt fram að þessu verði hér eftir
óformlegt samstarf. Halldór sagðist
óttast að þetta geti leitt til þess að það
dragi úr samstarfi landanna ef það fær-
ist í of miklum mæli yfir í óformlegt
samstarf.
Hluti af norrænu samstarfi mun á
næstu árum ferast yfir á samstarf
þjóðanna í Evrópu. Þar má nefna
vinnumarkaðsmál. í stað norræna
vinnumarkaðarins kemur vinnumark-
Slysavarnaráð og landlæknir leggja
til að notkun hjólreiðahjálma við
hjólreiðar verði lögboðin. Með lög-
leiðingu þeirra sé hægt að fækka
höfuðáverkum um 60-70%. Jafri-
framt er lagt til að settir verði loft-
púðar í allar bifreiðar, en með því
móti er talið að hægt sé að fækka al-
varlegum meiðslum ökumanna um
20-30%. Þá er lagt til að sett verði
bflbelti í skólabifreiðar. Þá telur
landlæknir engan vafa leika á að
með strangari áfengisstefnu sé hægt
að lækka dánartíðni í umferðinni.
Með strangari áfengisstefnu er átt
við aðgerðir sem á einn eða annan
aður á öllu Evrópska efnahagssvæð-
inu. Halldór sagði að tilkoma EES þýði
að minni ástæða sé fyrir Norðurlanda-
ráð að sinna vinnumarkaðsmálum á
norrænum vettvangi.
Þingið markaði þá stefhu að forsætis-
ráðherrar Norðurlandanna beri pólit-
íska ábyrgð á samstarfinu. Vonast er
eftir að þetta þýði markvissari stefriu-
mörkun í norrænu samstarfi. Eftir er
að útfæra hlutverk forsætisráðherr-
anna betur og það verður gert fram að
næsta þingi sem haldið verður í Osló.
Halldór sagði að það væri mat manna
að það hafi skort samræmingu í sam-
starfinu. Samstarfsráðherrar Norður-
landanna hafi ekki ráðið nægilega vel
við þetta samræmingarverkefni sem
hefur verið á þeirra höndum.
„Það er Ijóst að nonænt samstarf er í
endurskoðun, ekki síst vegna þróunar-
innar í Evrópu. Margt af því sem Norð-
urlöndin hafa verið að ræða lengi, eins
og sameiginlegur fjármagnsmarkaður
og frjáls vöruflutningur milli landa, er
að verða að veruleika með EES. Þetta
er mál sem menn eru búnir að tala um
á norrænum vettvangi í 20 ár. Það er
því ekki óeðlilegt að samstarfið breyt-
ist, en menn sjá hins vegar ekki alveg
fyrir hver þróunin verður. Það getur
margt gerst og ég tel þar af leiðandi aö
það sé varasamt að vera að breyta
skipulagi Norðurlandaráðs á grund-
velli einhvers sem alls ekki er orðið að
veruleika,“ sagði Halldór og minnti á
að Svíþjóð, Finnland og Noregur séu
ekki komin inn í EB þó að þau séu bú-
in að sækja um aðild að bandalaginu. -
EÓ
Bubbi Morthens og kúbanska
hljómsveitin Sierra Maestra á
hljómteikaferð um landið:
Algjört
dúndur
Bubbi Morthens og félagar ásamt
kúbönsku hljómsveitinni Sierra
Maestra eru að hefja þeysireið sína
um landið til að kynna nýja hljóm-
diskinn hans
Bubba, Von,
sem tekinn var
upp í Havanna
á Kúbu sl. maí.
Hljómleikatúr-
inn hófst á Hót-
el íslandi sl.
fimmtudag og
var „algjört dúndur" svo notuð séu
orð hrifriæmra hljómleikagesta.
Auk níu Kúbverja og Bubba skipa
hljómsveitina þeir Eyþór Gunnars-
son, Gunnlaugur Briem og TVyggvi
Hiibner. Athygli hefur vakið þau
umskipti sem orðið hafa í klæða-
burði Bubba sem nú klæðist jakka-
fötum og sýnist sitt hverjum um þá
breytingu. Sjálfur kallar hann
jakkaklædda menn á uppleið,
jakkalakka, sem er nýyrði yfir uppa.
Eins og svo oft áður hjá Bubba
byrjuðu útgáfutónleikamir á því að
hann steig einn á svið með gítarinn
við hönd þar sem hann flutti eldri
og yngri lög í bland. Tónleikamir
hófust á Fjólubláu flaueli og síðan
rak hver smellurinn annan með
eitruðum kynningum á milli sem
féllu í góðan jarðveg tónleikagesta.
Ekki minnkaði stemmingin í saln-
um þegar Kúbanamir og félagar
stigu á svið og hófu leikinn á minn-
ingarlagi Bubba um Guðmund
Ingólfsson píanóleikara. Síðan rak
hvert lagið á fætur öðru af Voninni
við geysigóðar undirtektir, enda
þykir hljómdiskurinn vera með
þeim betri sem Bubbi hefur gert á
sínum ferli.
Um helgina verða Bubbi og félag-
ar á Selfossi og í Eyjum og síðan
verður farið vestur á Patró, Akur-
eyri, Norðfjörð og Egilsstaði, Skag-
ann og Keflavík svo nokkrir við-
komustaðir séu nefridir. -grh
Landlæknir segir að við höfum náð árangri í að fækka slysum hér á
landi, en við þurfum að gera enn betur:
Lögleiðing bílbelta árangursrík
Landlæknir sagði á þingi um slysavamir sem haldið var í Reykjavík
í gær að með lögleiðingu bílbelta hefði alvarlegum mænuslysum og
heilaskemmdum vegna bílslysa fækkað um 85%, sárum, beinbrot-
um og andlitsáverkum fækkað um 50% og augnslys vegna brotinn-
ar framrúðu hefðu nánast horfið.
flokki!
Einn best útbúni bíllinn í sínum
4. dyra stallbakur • 114 hestafla vél • 16 ventla tölv
5 gíra beinskipting eða 4. þrepa tölvustýrð sjálfskipting
og samlæsing • Rafstýrðir hliðarspeglar • Styrktarbitar í
Útvarp m/kassettutæki og 4 hátölurum
Verð frá 1.059.000,- kr.
BIFREIÐ&R &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁSMÚLA 13, SÍMI: 68 12 00
BEINN SÍMI: 3 12 36
HYunDHi
til framtíðar