Tíminn - 14.11.1992, Blaðsíða 9
Laugardagur 14. nóvember 1992
Tíminn 9
Síöasti Rússakeisarinn og aödáendur: nú samfylkja þeir og aödáend-
ur Leníns.
af öllum þessum ástæðum slíkt að
alger upplausn hans virðist stund-
um yfirvofandi. Þegar Eistland í
sumar hætti við sovésku rúbluna
og tók upp eigin gjaldmiðil (sem
heitir kroon, króna), hafði það í
för með sér að dýrara varð fyrir
rússneska hermenn að lifa þar.
Fór þá drjúgur hluti rússneska
hersins þar heim, að sumra sögn
vegna þess að margir óbreyttir
hermenn neituðu að vera lengur
og foringjarnir sáu sér ekki fært
að banna þeim að fara.
Samkvæmt skýrslu frá Frunze-
herakademíunni hafa um 600 af
skriðdrekum hersins „horfið" frá
því um áramót, auk slíks aragrúa
af minniháttar vopnum að enginn
fær tölu á komið. Hermenn af
ýmsum tignargráðum lauma
þessu frá herbúðunum út á svarta
markaðinn. Sá, er þetta ritar, sá í
sumar 12-14 ára drengi bjóða til
sölu viðhafnareinkennisbúninga
háttsettra sovéskra/rússneskra
herforingja á „opnum“ markaði
við Trakai, virkisborg Litháaher-
toga á síðmiðöldum.
Svo fer stundum heimsins dýrð.
Eiifs og Pino-
chet í Chile“
Virðingarleysið fyrir umræddum
her kom líklega skýrast fram síð-
ast er nýliðar voru kvaddir í hann,
en almenn herskylda er í lögum í
Samveldinu eins og Sovétrfkjun-
um áður. Aðeins þriðjungur til-
kvaddra hlýddi kallinu. Þeim, sem
óhlýðnast, er nálega aldrei refsað,
herforustan treystir sér ekki til
þess.
Auk annars, sem fælir nýliða frá
hernum, er mikil slysatíðni í hon-
um, að sögn fréttamiðla vegna
óvandvirkni í vopnaframleiðslu,
lélegrar þjálfunar nýliða í meðferð
vopna og spennu innan hersins
vegna ástandsins almennt. Rúss-
nesk þingnefnd, sem rannsakaði
þetta, tilkynnti nýlega að síðustu
sex mánuðina hefðu um 1600 her-
menn beðið bana í slysum.
Saman við sært stolt hersins er
stórrússnesk þjóðernishyggja.
Mörgum herforingjum og mörg-
um öðrum Rússum finnst óþol-
andi að svo skuli nú komið fyrir
her, sem allur heimurinn óttaðist
fyrir fáeinum árum og þá átti sér
engan mátulegan andstæðing
nema þann bandaríska. Og að
Rússland sjálft sé ekki lengur stór-
veldi nema í hæsta lagi að nafninu
til. Sumir herforingjanna gruna
Vesturlönd um að standa á bakvið
umskiptin síðustu ár, beinlínis
með það fyrir augum að lama
Rússland um alla framtíð. í viðtali
nýlega við Der Spiegel gefur Stan-
islav Terekhov, rússneskur herfor-
ingi, í skyn að hann telji Vestur-
lönd stefna að því að afvopna
Rússland algerlega og ná til sín
kjarnavopnum þess. „Þá höfum
við tapað leiknum að fullu," segir
Terekhov.
Hann er formaður Herforingjafé-
lagsins, sem um 10.000 liðsfor-
ingjar miðja vega og neðanvert í
tignarstiganum eru í, helmingur-
inn í virka hernum, hinir í varalið-
inu, að sögn Terekhovs. Félagið
segist berjast fyrir „sterku ríki og
endurreisn æru og virðingar". I
áðurnefndu viðtali fer Terekhov
ekki leynt með að félag hans líti á
Þjóðfrelsisfylkinguna sem banda-
mann og telur hana líklega til ár-
angurs, þar eð í henni séu m.a.
þingmenn og stjórnendur í her-
gagnaiðnaðinum. Terekhov reynir
ekki heldur að leyna því að félag
hans hyggist taka völdin og beita
til þess valdi, gera stjórnarbylt-
ingu eins og reynt var í fyrra, með
þeirri breytingu að næst verði
gengið skipulega til verks. „Við
ætlum að tryggja stöðugleika, eins
og Pinochet gerði í Chile,“ segir
Terekhov.
Skammbyssur
teknar af her-
foringjum
Jeltsín Ieysti fyrir skömmu upp
5000 manna hersveit, hverrar
hlutverk var að standa vörð um
æðstaráðið (þingið), sjónvarps-
turninn í Moskvu og seðlabanka
Rússlands. Þetta gerði Rússlands-
forseti sökum þess að hann grun-
aði hersveitina um græsku. Kald-
hæðni má kalla að hún var stofn-
uð eftir valdaránstilraunina s.l. ár
til verndar gegn fleiri slíkum til-
raunum. Ennfremur hefur Pavel
Gratsjov varnarmálaráðherra fyr-
irskipað að allir herforingjar skuli
afhenda yfirvöldum skammbyssur
sínar. Miðað við hugmyndir í herj-
um almennt um virðingu, er hætt
við að á þetta verði litið sem auð-
mýkjandi ofanígjöf. En það gefur
einkar skýrt til kynna hversu mik-
ið traust stjórn Jeltsíns ber til
hers síns.
Jeltsín gerir einnig ýmislegt og
segir til að blíðka herinn og stór-
rússneskt þenkjandi andstæðinga
sína. Með það fyrir augum mun
hann hafa tilkynnt að hætt verði í
bráðina við að kveðja rússneskt
herlið frá Eistlandi og Lettlandi, á
þeim forsendum að það yrði að
vera þar til verndar rússneskum
þjóðernisminnihlutum.
f næsta mánuði kemur saman
þjóðfulltrúaþing Rússlands, eins-
konar efri deild þings þess. Þjóð-
fulltrúaþingið getur stjórnarskrá
samkvæmt sett forsetann af með
tveimur þriðju atkvæða, og það
hafa andstæðingar Jeltsíns, sem
fylkja sér í Þjóðfrelsisfylkingu og
Liðsforingjafélagi, einmitt hugsað
sér að það geri. Þeir reikna með að
hafa þegar um þriðjung þjóðfull-
trúa með sér og margir aðrir eru
beggja blands.
SACHS _ _
KÚPLINGAR í VOLVO
Framleiðendur VOLVO og aðrir framleiðendur
vandaðra vöru- og fólksflutningabifreiða nota
SACHS kúplingar og höggdeyfa sem uppruna-
lega hluta í bifreiðar sínar.
Þekking Reynsla Þjónusta
ÞAÐ BORGAR SIG ■" ák | UÆ U WL |®
AÐ NOTA ÞAÐ BESTA! ■ /t LIVI I^S 1%
SUÐURLANDSBRAUT 8 • SÍMI: 81 46 70 • FAX: 68 58 84
Subaru station 1800 4x4 árgerð 1988.
Afmælistýpa, ekin 88.000 km. Mjög fal-
legur bíll. Álfelgur.
Vert 790.000 staðgreitt.
Nissan 200 SXTurbo árgerð 1989. Ek-
inn 29.000 km. Einn með öllu.
Vert 1.590.000 staðgreitt.
Cherokee Laredo 40L árgerð 1989.
Ekinn 60.000 km. Sjálfskiptur með öllu.
Vert 1.850.000 staðgreitt.
Subaru Legacy 1800 árg. 1991. Ekinn
28.000 km. Álfelgur, dráttarbeisli o.fl.
Vert 1.350.000 staðgreitt.
Toyota Double-cab árgerð 1991. Ek-
inn 70.000 km. 31" dekk, White Spook
felgur. Mjög fallegur bíll.
Vert 1.450.000 staðgreitl
Toyota Corolla XL árgerð 1992. Ekinn
8.000 km. Miðstýrðar læsingar. 5 dyra.
Vert 880.000 staögreitt.
Toyota Landcruiser bensin árgerð
1981. Ekinn 158.000 km. 36" dekk,
krómfelgur o.fl.
Vert 980.000 staðgreitt.
Toyota 4Runner V6 árgerð 1991. Ek-
inn 35.000 km. Mikiö breyttur, sími o.fl.
Vert 2.950.000 staögreitt.
MMC Lancer 1500 GLX árgerð 1987.
Ekinn 62.000 km. Sjálfskiptur, fallegur
blll.
Vert 480.000 staðgreitt.
VW Golf GL1800 árgerð 1989. Ekinn
32.000 km. 5 dyra, topplúga, vökva-
stýri.
Vert 860.000 staðgreitt.
Daihatsu Applause 1,6L árgerð 1991.
Ekinn 8.000 km. Sjálfskiptur, miðstýrðar
læsingar.
VerA 930.000 staögreitt.
Toyota Corolla Touríng XL árgerð
1989. Ekinn 61.000 km.
Vert 960.000 staögreitt.
Arctic Cat Wildcat árgerð 1991. Ekinn
400 miiur. Grind að aftan. 120 hö., sem
nýr.
Vert 650.000 staðgreitt.
MMC Lancer 1500 GLX árgerð 1989.
Ekinn 39.000 km. Sjálfskiptur, raf-
magnsruður o.fl.
Verð 690.000 staðgreitt.
Nissan Cherry 1300 árgerð 1984. Ek-
inn aðeins 33.000 km. Einn eigandi frá
upphafi. Smurbók fylgir.
Vert 280.000 staögreitt.
Toyota Corolla GL Special series ár-
gerð 1990. Ekinn 30.000 km. 5 dyra,
rafmagnsrúður o.fl.
Vert 760.000 staðgreitt.
Volvo 740 station GLE árgerð 1987.
Ekinn 60.000 km. Sjálfskiptur, álfelgur,
rafmagnsrúður.
Vert 1.190.000 staðgreitt.
Dodge Dakota MFIV8 árgerð 1992.
Ekinn 8.000 km. 38" dekk, upphækkað-
ur, álfelgur, 230 hp lóran, CB-talstöð.
Vert 2.400.000 staðgreitt.
Toyota Corolla liftback XL árgerð
1992. Ekinn 5.000 km. Sem nýr.
Vert 1.050.000 staögreitt.
F A N
6 8 9 5 5 5