Tíminn - 14.11.1992, Blaðsíða 11
Laugardagur 14. nóvember 1992
Tíminn 11
.¦¦:. : . .. .., ¦ i 0 > i: * <_ 1 pi:«( .¦
7 / ¦ 'lj
¦ ¦ ¦': ¦¦:¦¦.¦;¦¦¦¦¦¦¦¦;¦¦¦¦ ¦ - i
Péfur Pétursson, sölustjóri Bifreiða og landbúnaöarvéla, við flaggskip nýliðans á fslenska bflamarkaðnum
Hyundai. Þessi bfll heitir Sonata og er stór og öflugur vagn á góðu verði. Hyundai bflar komu á markað hér
sl. sumar og náðu þrátt fyrirþað 4% markaðshlutdeild á tfmaþilinu janúar-september á þessu ári.
Lada frá Rússlandi er gamalreyndur
og alþekktur. Ódýrasti bíllinn á mark-
aðnum er afþeirri gerð á innan við
400 þúsund kr. Lada skutbíllinn er
að margra áliti sá besti og nota-
drýgsti á markaðnum afþeim ódýru.
Þótt hann kosti ekki mikið þá bilar
þessi blll lítið og endist lengi.
Ný tegund á íslenskum bílamarkaði:
Hyundai féll í
kram landsmanna
„Við kynntum á þessu ári nýja bíltegund; Hyundai og byrjuðum að selja
hana fyrir fímm mánuðum. Þá fímm mánuði hefur Hyundai að meðaltali
verið í fjórða sæti söluhæstu bílategunda á íslandi með markaðshlutdeild
upp á 7-8%. Það er ástæðulaust annað en að vera mjög ánægður með þann
árangur," segir Pétur Pétursson, sölustjóri hjá Bifreiðum og landbúnaðar-
vélum.
Hyundai bflarnir koma frá Kóreu
og voru fluttir inn nokkrir bflar af
tegundinni fyrir nokkrum árum í
tvígang en ekkert meir varð úr mál-
um þá. Nú er hins vegar annað uppi
á teningnum. Hyundai bílamir fast í
þremur meginútgáfum: Sú minnsta
heitir Pony, sú í miðið Elantra og
flaggskipið síðan Sonata. Þeim síð-
astnefnda hefur verið reynsluekið
fyrir Tímann og birtist umsögn um
vagninn í síðasta mánuði.
Bifreiðar og landbúnaðarvélar hafa
um áratugi flutt inn bfla frá Rúss-
landi. Lengi vel voru það rússajepp-
arnir þjóðkunnu og Moskvits en nú
eru það rússneskar Lödur af mörg-
um gerðum sem þaðan koma. Að
sögn Péturs hefur undanfama mán-
uði verið hjá B&L lögð höfuðáhersla
á Hyundai bílana og að skapa þeim
fótfestu. Ætlunin væri hins vegar að
taka aftur upp þráðinn með Löduna
enda er um þrautreyndan og traust-
an bfl að ræða sem þó er mjög ódýr.
Þannig er ein gerð Lödu raunar
ódýrasti bfllinn á markaðnum og
kostar 389 þúsund kr.
En þótt Ladan hafi ekki verið aug-
lýst af offorsi um tíma þá virðist sem
landsmenn hafi ekki gleymt henni
eða gefið hana upp á bátinn því að
álíka margir nýir Lada bílar seldust
hjá umboðinu í október sl. eins og í
október í fyrra að sögn Péturs. Lad-
an virðist því eiga sér fastan sess á
markaðnum.
Séð inn I Hyundai Elantra sem er
miðstærð þessara bíla sem koma
frá Kóreu. Sá minnsti nefnist hins
vegar Pony.
otaðir bílar ímiklu úrvali!
É1|ÉÍ nSÍ ^fc -f • <
**¦¦%$£ w&
^SöJ jo
TILBOÐ VIKUNNAR!
BMW 318), <Wg;
198?, ekinn 70.000
km, sami eigandi
frá upphali.
Stgrverð kr.
870.000. T«t»ft»-
verð kr. 780.000.
Mazda 929 '88, blár, ek. 60.000 km, sjálfsk.,
vökvast., sóllúga, álfelgur, litað gler, rafdr.
rúður og læs., 2200 vél og bein innspýting.
Stgrverð kr. 990.000. Ath. skipti,
BMW 316i Bavaria '90, sjálfsk., vökvast,
álfelgur, 4 höfuðpúðar, rafdr. rúður og læs-
ingar. Stgrverð kr. 1.390.000.
Opiö virka daga kl. 10.00 - 19.00
og laugardaga kl. 13.00 - 17.00
Engin útborgun
Raðgreiðslur til allt að
18 mánaða
Bílaumboðið hf
BMW 318i '91, demantssvartur, sjálfsk.,
vökvast, sóllúga, 4 höfuðpúðar, rafdr. rúð-
Krókhálsi 1,110 Reykjavík ur og læs., skíðapoki, BMW hljómkerfi.
Sími 686633 og 676833 Stgrverð kr. 2.000.000.
MMC Galant GLSI, hlaðbakur, '90, ek.
30.000 km, sjálfsk., vökvastýri, rafdr. rúður
og læsingar, litað gler o.fl. Stgrverð
1.180.000.
Skuldabréf til allt að
36 mánaða
M. Benz húsblll árgerð 1966. Bill I topp-
standi. Svefnpláss fyrir 4, gasofn og ekta-
vél. Verð: Tllboó.
Oodge 4x4 húsblll 8 cyl. Sjálfskiptur með
öllu. Einn sá glæsilegastj. Vorð: Tilboð.
Skamper sumarhús á pallbll árgerö 1992.
Ca. 8 fet. Vorö: 650.000 staðgreilt.
Mazda 323 station árgerð 1987. Góður t
Verð: 360.000 slaðgreitt.
Toyota Cellca 1600 árgerö 1987. Ekinn
82.000 km. Fallegur sportbill.
Verð: 720.000 staðgreitt.
Toyota 4Runner árgerð 1991. Ekinn
39.000 km. Fallegur blll. Vorö: 2.200.000
staðgreitt Ath.: Skipti á ódýrari bll möguleg.
Honda Civic GLi árgerð 1992. Með öllu.
Ekinn 1.000 km. 4 dyra, sjálfskiptur, sem
nýr. Vorö: 1.200.000 staðgreitt
M. Benz 1017 sendiblll árgerð 1982.2ja
tonna lyfta. Bíllinn selst með hlutabréfi.
Verð alls: 2.450.000. Ath.: Skipti á ódýr-
arí bil möguleg.
BJLASALA
KOPAVOGS
Smiðjuvegi 1. Simí 91-642190.
VERIÐ VELKOMIN
f