Tíminn - 14.11.1992, Page 21

Tíminn - 14.11.1992, Page 21
Laugardagur 14. nóvember 1992 Tíminn 21 Christl Muller vildi losna viö mann sinn. eiginmaður Christl. David sagði að fyrri maður Christl væri mjög af- brýðisamur og hefði aldrei sætt sig við skilnaðinn frá konu sinni og hefði haft í hótunum við hana öðru hverju frá því þau skildu. David staðfesti frásögn grann- konunnar um vináttu hjónanna tveggja, einkum sagði hann að Christl og kona hans væru góðar vinkonur. Fjöllynd eiginkona Næst héldu lögreglumennirni til krárinnar þar sem Christl starf- aði. Hún var þá nýbúin á vakt og farin til Múnchen til fundar við mann sinn. “Ert þú enn einn af kunningjum hennar?” spurði kráreigandinn hæðnislega. Þegar lögreglumaðurinn spurði hann hvað hann ætti við, svaraði hann því til að Christl daðraði við alla viðskiptavini krárinnar. “En hún hefur góðan lífvörð sem gætir þess að enginn hætti sér of nærri,” bætti hann við. “Áttu við manninn hennar? En hann er fjarverandi,” sagði lög- reglumaðurinn. “Maðurinn hennar er auli sem enginn tekur mark á,” sagði kráar- eigandinn. “Ég á við David Landauer sem sækir hana á hverju kvöldi og ætlar að sleppa sér ef hún er að tala við einhvem héma.” Christl Múller hafði nú gengið lögreglunni tvisvar úr greipum. Það var því gripið til þess ráðs að fara heim til Landauers og ræða við konu hans, Viktoríu. Hún sagði mann sinn hafa kynnt sig fyrir Múller-hjónunum fyrir rúmu ári. Hún sagðist þegar RÁÐNING Á KROSSGÁTU hafa veitt því athygli að David hefði lítinn áhuga á Manfred en því meiri á Christl. Aðspurð kvaðst hún sannfærð um að þar væri meira á ferðinni en einskær vin- átta. Þetta væri ekki í fyrsta sinn sem David ætti vingott við aðra konu og hún væri farin að þekkja einkennin. Auk þess hefði David beðið um skilnað fyrir skömmu til að taka saman við aðra konu sem hann vildi þó ekki segja hver væri. Hún taldi að það væri Christl og því væri ekki ólíklegt að þau hefðu reynt að drepa Manfred til þess að vera laus við báða þessa leiðinda- maka sem í vegi þeirra stóðu. Viktoría var ljóshærð og hávax- in, glæsileg kona. Hún var þó þreytuleg og bar það með sér að hjónabandið hafði ekki verið dans á rósum. Viktoría skýrði lögreglunni frá því að sig gmnaði að David og Christl hefðu áður reynt að drepa sig og Manfred. Hún sagði að þau hefðu öll fjögur verið að koma heim af dansleik á bíl þeirra hjóna. David og Christl hefðu setið fram í en hún og Manfred aftur í. Um fjallveg var að fara og í brattri brekku hefði bíllinn stöðvast og David sat að eitthvað væri að. Christl og David fóru út úr bíln- um og gengu aftur fyrir hann. Þá byrjaði bíllinn skyndilega að renna og stefndi beint fram af hamra- belti. Fyrir ótrúlega heppni lenti bfllinn á trjástubbi og stöðvaðist, annars hefði hann steypst fram af og það hefðu ekki farið fleiri sögur af þeim Viktoríu og Manfred. Chrístl þykist leysa gátuna Aftur var haldið til Múnchen. Þegar þangað kom var Christl far- in heim aftur. En Manfred var þar fyrir og kvað konu sína vera búna að leysa gátun. Hún hefði sagt að enginn kæmi til greina annar en fyrrverandi eiginmaðurinn og Manfred var sannfærður um að hún hefði rétt fyrir sér. Þegar honum var bent á að ljós- hærð kona hefði afhent böggulinn á pósthúsinu, sagði hann að kona sín hefði sagt að það væri eflaust ein af ástkonum hans. Hann bætti því við að hann hefði hringt í vin sinn David Landauer og beðið hann um að gæta konu sinnar og væri því fullkomlega rólegur um öryggi hennar eins og stæði. Enn hélt lögreglan til Kempten og náði tali af fyrrverandi manni Christl, Adolf Kreiner. Hann var grannur og fríður maður sem starfaði sem kennari. Hann hló þegar hann heyrði ásakanir Christl á hendur honum. Hann sagðist aldrei hafa haft í hótunum við hana en hún hefði ávallt haft til- hneigingu til að ýkja og jafnvel búa til heilu sögurnar. Aðspurður hvort rétt væri að hann hefði tekið skilnaðinum illa, sagði hann það varla koma til greina, því það hefði verið hann sem skildi við Christl en ekki öf- ugt. “Það var ekki nokkur leið að vera giftur Christl. Það vantaði ekki að hún þóttist elska mig, en hún hélt framhjá mér í hvert sinn sem ég sneri við henni bakinu,” sagði kennarinn rólega og lög- reglumennirnir voru sannfærðir um að hann væri að segja sann- leikann. Málið var nú orðið þannig vaxið að lögreglan var sannfærð um að enginn kæmi til greina sem morð- inginn nema Christl og David Leinauer. Þau voru nú handtekin og færð til yfirheyrslu. Játning að lokum Christl var yfirheyrð fyrst og neitaði hún öllum sakargiftum. Hún var sallaróleg og skellihló þegar lögreglan bar það á hana að hafa haldið við David Leinauer og þau hefðu myrt mann hennar í sameiningu. Hún neitaði þessu staðfastlega og kvaðst ávallt hafa verið manni sínum trú. Ennfrem- ur kom hún aftur með gömlu tugguna um afbrýðisama eigin- manninn fyrrverandi og að hann væri örugglega sá seki. Lögreglan benti henni nú á að ljós hárkolla og sólgleraugu hefðu fúndist heima hjá henni og því hefði það vel getað verið hún sem setti pakkann með eitraða áfeng- inu í póst. Christl hló sem fyrr og sagði að margar dökkhærðar kon- ur ættu ljósa hárkollu og hún væri einfaldlega ein af þeim. Lögreglan gafst nú upp á Christl í bili og sneri sér að því að yfir- heyra David. Hann neitaði líka öll- um sakargiftum til að byrja með. En þegar honum var bent á að rit- höndin á kortinu í pakkanum væri hans fór að sljákka í honum. Hann játaði að lokum að hann og Christl hefðu lagt á ráðin um að ganga af Manfred dauðum. Hann kvaðst hafa ekið henni til Neustadt þar sem hún setti pakkann í póst. Hann bætti því við að það hefði orðið þeim hræðilegt áfall þegar bláókunnur maður varð fyrir barð- inu á þeim og lést af völdum eit- ursins. Þegar hann var spurður um ó- happið á fjallveginum, þverneitaði hann að þar hefði verið um morð- tilraun að ræða, það hefði verið einskært slys sem þó fór betur en á horfðist. “Bjánalega ástfanginn” Þegar Christl var gert ljóst að David væri búinn að játa, guggn- aði hún einnig og játaði aðild sína að morðtilrauninni. Hún kvaðst hafa vitað að erfitt yrði að fá skiln- að frá Manfred sem væri “bjána- lega ástfanginn", því hefðu þau á- kveðið að kála honum og síðan fengi David skilnað frá Viktoríu og allt yrði í lukkunnar velstandi. Þegar Manfred frétti af þessum játningum kom svo sannarlega í ljós að hann var “bjánalega ást- fanginn”. Hann harðneitaði að trúa nokkru misjöfnu upp á sína heittelskuðu eiginkonu, þetta væri allt uppspuni úr David Leinauer sem hefði svikið vina sína í tryggð- um og tekist að flækja aumingja Christl einhvern veginn í vefinn. Hann kvaðst elska konu sína og myndi ávallt gera. Hann tryði engu misjöfnu á hana og myndi bíða hennar tryggur og trúr hvað sem í skærist. Og Manfred fékk að bíða lengi. Christl og David voru ákærð fyr- ir morðtilraun gagnvart Manfred Múller og hafa orðið Albert Blum- mer að bana. Þau fengu bæði lífs- tíðardóm. Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1989 1. fLokki 1990 2. flokki 1990 2. flokki 1991 Innlausnardagur 15. nóvember 1992. 1. flokkur 1989 Nafnverð: 5.000 50.000 500.000 Innlausnarverð: 7.107 71.075 710.751 1. flokkur 1990 Nafnverð: 5.000 50.000 500.000 Innlausnarverð: 6.275 62.751 627.506 2. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð: 10.000 12.379 100.000 123.795 1.000.000 1.237.949 2. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð: 10.000 11.507 100.000 115.070 1.000.000 1.150.703 Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. cM] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ HÚSBRÉFADEILD ■ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVfK • SÍMI 696900 Húsbréf Annar útdráttur í 2. flokki húsbréfa 1991. Innlausnardagur 15. nóvember 1992 í tilkynningu um ofangreindan útdrátt, sem birtist í september s.l., féllu niður eftirfarandi bréf: 10.000 kr. bréf 91278180 91278304 91278386 Beðist er velvirðingar á þessum mistökum db HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS L4 HÚSBRÉFADEILD SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REVKJAVÍK SÍMI 91-696900 UíGaSaGaH Seljum marga bíla daglega Vantar marga sölubíla á stærsta sölusvæði boraarinnar. borgarinnar. Við Miklatorg, símar 15-0-14 og 1-71-71 vl% ittjum atta ftíta —V

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.