Tíminn - 14.11.1992, Blaðsíða 28
t
NU EINNIG MEÐ 2.7 DISEL TURBO
• Ein aflmesta díselvél sem fáanleg er.
• Hlaöinn aukahlutum, rafdrifnum rúðum, samlæsingum sóllúgu ofl.
• Fjögurra dyra og mikið rými.
• 75% læsing á afturdrifi.
• Slaglöng fjöðrun að aftan og framan.
• Einn vinsælasti jeppinn í Ameríku og Evrópu
• Eigum einnig nokkra IMissan Terrano Dísel Turbo, árgerð 1992, á sérstöku verði
• Komið og leyfið sölumönnum okkar að koma ykkur á óvart
Stonkostleg opnunarhelgi að Skeiði 5, ísafirði
laugardag og sunnudag kl. 14 - 18.00
• Kvöldsýningar alla næstu viku til kl. 22.00
• Mikið úrval Nissan og Subaru 4WD bíla.
• Minnum sérstaklega á örfáa bíla af '92 árgerð á tilboðsverði.
• Gerið frábær kaup í notuðum bílum sem verða á opnunarafslætti.
Tímimi
LAUGARDAGUR 14. NÓV. 1992
Þokkalegt atvinnuástand á
Seyðisfirði:
Sfld, loðna
og bolfiskur
Þokkalegt atvinnuástand er á Seyð-
isfírði og hefur atvinnulausum
fækkað til muna í síðasta mánuði
frá mánuöinum þar á undan. Hjá
Fiskiðjunni Dvergasteini hf. er
síldin heilfryst, fíökuð og söltuð
auk vinnslu á bolfiski. Þá er
bræðsla Síldarverksmiðja ríkisins
tekin til starfa fyrir nokkru og stutt
í að Hafsíld farí af stað, en mikið er
af loðnu út af Langanesi.
Svanbjörn Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Dvergasteins hf., seg-
ir að þótt skortur sé á hráefrii til
vinnslunnar, hafi það bætt úr miklu
með tilkomu Birtings hf. En
Dvergasteinn á helming í sam-
nefndu skipi á móti Norðfirðingum,
eða um 900 þorskígildistonn, og fær
fyrirtækið helminginn af afla skips-
ins hverju sinni. Þá landar Gullver
hjá fyrirtækinu, auk smábáta. Á síð-
asta ári komu til vinnslu hjá fyrir-
tækinu alls 2500 tonn af bolfiski, en
búist er við að í ár verði unnin þar
allt að 3 þúsund tonn. Hjá Dverga-
steini hf. vinna að meðaltali um 65-
70 manns.
Hins vegar ríkir dálítil óvissa hvort
fyrirtækið fái nauðsynlegt magn af
síld til að geta staðið við hagstæða
samninga, sem gerðir voru við Jap-
ani. Hjá Dvergasteini er síldin heil-
fryst, flökuð og söltuð, en talið er að
aðeins séu um 50-55 þúsund tonn
eftir af heildarsíldveiðikvótanum,
sem er eitthvað um 120 þúsund
tonn.
Fyrir utan hráefnisbarninginn hef-
ur þróun gengismála gert fyrirtæk-
inu grikk, sem og öðrum sem eru í
útflutningi. Aftur á móti er afurða-
verð enn tiltölulega hátt á mörkuð-
um ytra, þótt ýmsar blikur séu á
lofti. -grh
Ný lyfjabók:
Náttúrumeöul
og lyf fyrir alka
• Bílasýning á Akureyri á bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar
laugardag og sunnudag kl. 14 - 17.00
• Bílasýning að Sævarhöfða 2 laugardag og sunnudag kl. 14 - 17.00
Náttúrumeðul og lyfjafíokkar fyrír
alkóhólista eru meðal nýjunga sem
finnast í nýrri bók um lyf.
Þetta kemur fram í frétt frá Lyfja-
bókaútgáfunni sf. sem gefur bókina
út. Þar segir að nákvæmlega sé fjall-
að um öll lyf, sem seld eru á íslandi,
en þau eru um 1.000 talsins. Sagt er
að á síðustu 4 árum hafi 200 ný lyf
bæst í hóp þeirra, sem fyrir voru, og
því m.a. hafi gamla útgáfan úrelst.
í bókinni er m.a. útskýrðar nýjar
reglugerðir um lyf og greiðslur fyrir
þau. Þá er svokallaðra samheitalyfja
getið. „Fólk getur þá flett upp lyfinu
sínu og athugað hvort það er sam-
bærilegt gamla lyfinu," eins og segir
í fréttinni.
Jafnframt kemur fram að í fyrsta
sinn er aukaverkunum lyfja skipt í
algengar og sjaldgæfar aukaverkan-
ir. Sagt er að þetta sé gert til að forða
ruglingi og gera fólki kleift að átta
sig betur á aukaverkunum.
Einnig er ítarlega fjallað um ferða-
lög erlendis með tilliti til sjúkdóma
og lyfja. Þá er jafnframt fjallað um
bólusetningar barna og ferða-
manna.
íslenska Lyfjabókin var gefin út fyr-
ir 4 árum og seldist í 20.000 eintök-
um. Nú er komin ný bók sem hægt
er að eignast með því t.d. að skipta á
þeirri öömlu ^cs pr há vpittnr