Tíminn - 19.12.1992, Síða 22
22 Tíminn
Laugardagur 19. desember 1992
Bækur áfram á
„gamla verðinu"
Verð á jólabókum er það sama og
verið hefur undanfarin tvö ár. Þá eru
bókatitlar álíka margir og verið hefur
eða um 500.
Þetta kemur fram í frétt frá Félagi ís-
Ienskra bókaútgefenda. Þar kemur
fram að ævisögum hefur fjölgað mest
á kostnað bóka almenns efnis. Fjórð-
ungur bóka í ár eru bama- og ung-
lingabækur og er það svipað og var í
fyrra. íslenskum bókatíðindum er nú
dreift sem fyrr á heimili Iandsmanna.
-HÞ
Ævi Bergmans
Fjölvi hefur gefið út bókina Töfra-
lampinn eftir Ingmar Bergman í þýð-
ingu Jóns Þ. Þórs. Bók þessi er ekki
sjálfsævisaga í venjulegum skilningi,
heldur eins og ferð um víðáttur
átakamikils sálarlífs. Sagan er mótuð
líkt og kvikmyndahandrit, með sí-
felldum leiftursýnum (flassbakk) aft-
ur í sálræn fylgsni bemskunnar og
áhrif þeirra á fullorðinsárum. Ingmar
lýsir öllu af fullkominni hreinskilni,
líka því allra leyndasta og viðkvæm-
asta í fjölskyldulífi, innstu kenndum
eins og heiftúðugu viðhorfi til for-
eldra, annarlegum kenndum til
kvenna, leyndum eigin kynlífs, allt
frá því að vinnukonan tók bamið
með sér í bað upp í hin miklu átök
sem stundum jöðmðu við brjálsemi í
samskiptum við konur. Bókin er eins
og margar kvikmyndir Ingmars, mis-
kunnarlaus kmfning mannlífsins, í
þetta skipti hans sjálfs.
Bókin er 269 bls., prentuð hjá Prent-
stofu G. Ben.
Höfundur: Simon Wiesenthal
Réttlæti ekki hefnd
„Þér emð eins og allir vita, baráttu-
maður." Þannig byrjaði Mitterrand,
forseti Frakklands, kveðju sína til
Simons Wiesenthal á áttugasta af-
mælisdegi hans. Bókin lýsir þessari
baráttu, sem leitt hefur til þess að
rúmlega eitt þúsund glæpamenn úr
röðum nasista hafa verið leiddir fyrir
rétt.
En bókin er annað og meira en
reikningsskil starfsemi hans sem
„nasistaveiðara", þótt sá hluti hennar
geri hana áhrifaríkari og meira
spennandi en nokkra aðra sakamála-
sögu. Hún er sömuleiðis ákall til nú-
tímafólks og hrífandi en óvæminn
vitnisburður um það sem liggur að
baki starfs hans.
Það var Wiesenthal nauðsyn að
leiða hina seku fyrir rétt. Ekki af því
að hann hafi verið haldinn hatri og
hefndarþorsta, heldur af því að hann
vildi koma fram réttlæti fyrir hina
látnu, sem lifa stöðugt í huga hans og
til að réttlæta það að hann skyldi
FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF
Félagsvist á Hvolsvelli
Spilað verður á sunnudagskvöldum 13. desember og 10. janúar. Auk kvöldverð-
launa verða ein heildarverðlaun: Dagsferö fyrir 2 með Flugleiðum til Kulusuk.
3 hæstu kvöld gilda. Framsóknarfélag Rangárvallasýslu
Jólaalmanak SUF
Eftirfarandi númer hafa hlotið vinning I jólaalmanaki SUF:
l.desember: 525,3570. 2. desember: 3686, 1673. 3. desember: 4141, 1878.
4. desember: 1484, 2428. 5. desember: 683, 3056. 6. desember: 5403, 2389.
7. desember: 3952, 5514. 8. desember: 4342, 4341. 9. desember: 4340, 5169.
10. desember: 5060, 289.11. desemben 1162, 1601. 12. desember: 1235, 522.
13. desember: 4723, 2429 14. desember: 288,2834. 15. desember: 1334, 4711.
16. desember: 2833, 4710 17. desember: 3672,1605. 18. desember: 3235, 4148.
19. desember: 3243, 2497.
Reykjanes
Skrífstofa Kjördæmissambandsins að Digranesvegi 12, Kópavogi er opin
mánudaga og miðvikudaga kl. 17.00-19.00, simi 43222.
Borgarnes —
Breyttur opnunartími
Frá og með 1. október verður opið hús I Framsóknarhúsinu að Brákarbraut 1 á þriðju-
dögum frá ki. 20.30 tii 21.30, en ekki á mánudagskvöldum eins og veríð hefur undan-
farin ár.
Bæjarfulltrúar flokksins munu verða til viðtals á þessum tima og ennfremur eru allir,
sem vilja ræða bæjamnálin og landsmálin, velkomnir. Að sjálfsögöu verður hellt á
könnuna eftir þörfum.
Framsóknarfélag Borgarness.
Kópavogur — Opið hús
Framsóknarfélögin i Kópavogi hafa opið hús á laugardögum kl. 10-12 að Digranes-
vegi 12. Lftiö inn, fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö. Framsóknarfélögin
Jólaglögg nefnda SUF
Hið áriega ómissandi jólaglögg nefnda SUF verður að venju haldið á Fógetanum
laugardagskvöldiö 19. desember og hefst kl. 21.00.
Dagskrá:
Hátlðarávörp formanna nefnda.
Minningarorð Hriflusamtakanna.
Óvænt uppákoma.
Mætum öll og tökum með okkur gesti.
Utanríkismilanefnd SUF
Þjóðmálanefnd SUF
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
KÓPAVOGUR
Svæöisstjóm málefna fatlaöra á Reykjanessvæði
leitar eftir kaupum á hentugu húsnæöi fyrir sambýli i
Kópavogi. Um er aö ræöa einbýlis- eða raðhús, 150-
220 m2 aö stærð aö meðtalinni bílgeymslu, helst i
vesturbænum.
Tilboö, er greini staösetningu, stærð, byggingarár og
-efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat, af-
hendingartima og söluverö, sendist eignadeild fjár-
málaráöuneytisins, Amarhvoli, 150 Reykjavik, fyrir 6.
mars 1993.
Fjármálaráðuneytiö, 18. desember 1992
Þorbjöm Magnússon
Fæddur 3. júlí 1920
Dáinn 10. desember 1992
Andans mikilmenni hefur nú kvatt!
Það er haustið 1975. Ungur piltur,
að hefja nám í menntaskóla og ný-
fluttur í Sjálfsbjargarhúsið, er að
snæða sína fyrstu kvöldmáltíð í mat-
sal hússins. Hann lítur yfir matsal-
inn til að finna sér sæti og rennir sér
þvínæst upp að borði ekki fjarri af-
greiðslunni, á móti skarpleitum og
skörulegum manni, og spyr galsa-
lega hvort hann megi sitja þar. „Og
hver ætti svo sem að banna þér
það?“ er svarað.
Þannig hófust kynni mín af Þor-
birni Magnússyni, kynni sem áttu
eftir að þroskast og eflast allt til
hinstu stundar. Þorbjörn var ákaf-
lega sérstakur persónuleiki. Þor-
björn var ekki margmáll, en leiftr-
andi athugull og þegar hann lagði
orð í belg í umræðum, var að finna í
athugasemdum hans visku sem ekki
hefði verið komið betur á framfæri í
löngum orðræðum. Þyrfti maður að
leysa úr málum sem þurftu sérstakr-
ar athugunar við, bar maður það
gjarnan undir Þorbjörn og gat þá
verið viss um að málið yrði rætt af
skarpskyggni og íhygli. Þorbjörn var
sannur sósíalisti og félagshyggju-
maður og fylgdist vel með þjóðmála-
umræðunni. Hann tók virkan þátt í
baráttu Sjálfsbjargar fyrir fullri þátt-
töku og jafnrétti fötluðum til handa
og átti alltaf góð ráð að gefa þegar
málefni Sjálfsbjargar báru á góma.
f----------------------------------V
V.....................J
Við borðið í matsal Sjálfsbjargar
voru oft fjörugar umræður um ým-
islegustu málefni, allt frá dægur-
málum til eldheitra stjómmálaum-
ræðna.
En það var önnur og ekki síðri hlið
á Þorbirni. Glettni hans og athuga-
semdir, sem hann læddi út úr sér
með prakkarasvip svo lítið bar á,
voru einstakar. Þorbjörn var líka
maður gleðinnar og veisluhalda. Þá
naut hann sín og Iék á als oddi. Um-
fram allt var Þorbjörn þó listamaður
og bókaunnandi. Kveðskapur hans
var sérlega vandaður og fallegur og
bókasafnið sem hann átti bar vott
um djúpstæðan áhuga hans á bók-
menntum og kveðskap. Auk síns
eigin bókasafns sá hann um bóka-
safn Sjálfsbjargar og útlán frá Borg-
arbókasafni Reykjavíkur í Sjálfs-
bjargarhúsinu. Flestir, ef ekki allir,
sem komu í Sjálfsbjargarhúsið
minnast þó Þorbjarnar vegna þess
að öll þau ár, sem hann bjó í húsinu,
sá hann um að selja matarmiða í
matsal hússins. í því sem öðru, er
hann tók sér fyrir hendur, sýndi
hann slíka trúmennsku að ef honum
svo mikið sem seinkaði í matinn var
alveg víst að eitthvað sérstakt var á
seyði.
Með Þorbimi er horfmn á braut
mikill maður, góður vinur og trú-
fastur félagi. Við Sjálfsbjargarfélagar
kveðjum Þorbjörn með söknuði og
óskum systkinum hans og fjölskyld-
um þeirra Guðs blessunar.
F.h. Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra,
Jóhann Pétur Sveinsson
Þráhyggj a krata
Þeir, sem fylgst hafa með krötum
gegnum tíðina, hafa greint tvær
meinlokur, sem þeir losna ekki við.
Önnur er eins konar alþjóðahyggja,
hin óvild til bænda. Við skulum at-
huga þetta nokkru nánar.
_ Kratar em ekki þjóðernissinnaðir.
ísland, ættjörðin, er ekki það, sem
meginmáli skiptir. Þannig eru þeir
ævinlega opnir fyrir samvinnu og
samruna við önnur ríki. Þeir vildu
ekki slíta sambandinu við Dani og
stofna sjálfstætt lýðveldi 1944. Þeg-
ar EB-umræðan komst í hámæli
um og upp úr 1960, vildi viðskipta-
ráðherra þeirra, Gylfi Þ. Gíslason,
ólmur sækja um aðild þá þegar.
Aðrir réðu þó ferðinni í viðreisnar-
stjórninni, og fundin var millileið,
fríverslunarsamningur EFTA. Nú
gengur utanríkisráðherra þeirra,
Jón Baldvin Hannibalsson, ber-
serksgang til að koma okkur í EES,
sem þó felur í sér bæði valda- og
opnun landhelginnar. Svo mikið
liggur á, að ekki má leggja málið
undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Al-
C — ''v
Lesendur skrifa
v____________________ J
þingi starfar í umboði kjósenda, og
þó á einfaldur meirihluti þar að
þvinga EES upp á þjóðina. Það er
vissulega brot á lýðræðisreglum, ef
ekki á stjórnarskránni. Þessi al-
þjóðahyggja krata kann að hafa
orðið til þegar við stofnun Alþýðu-
flokksins 1916, þegar flokkurinn
starfaði undir kjörorðinu: „Öreigar
allra landa sameinist!"
Hin áráttan er líka gömul. Fylgi
flokksins í upphafi var bundin við
verkamenn í þorpum og kaupstöð-
um við sjávarsíðuna. Framsóknar-
flokkurinn var stofnaður sama ár
sem bændaflokkur, og litu kratar á
hann sem keppinaut og andstæð-
ing. Nú vill Alþýðuflokkurinn flytja
inn búvörur að utan, sem njóta rík-
isstyrkja þar. Búvörustyrki hér á
skv. þeim að leggja niður. Þetta
mun kollvarpa íslenskum landbún-
aði, þar með þeirri ómetanlegu
menningu og uppeldi, sem sveit-
irnar hafa verið landsins börnum.
Fiskimiðin geta eyðst með inn-
göngu í EES, ef litið er til reynslu
Nýfundnalands. Ef kratar fá að
ráða, verður kjöt líka ófáanlegt í
landinu. Aldrei skyldi því þó gleymt
að íslenskar búvörur eru með öllu
ómengaðar og mættu af þeirri
ástæðu einni kosta tvöfalt meira en
innflutta varan. Á.S.
Meðleigjandi
Single White Female ★★★ 1/2
Handrit: Don Roos.
Byggt á skáldsögu Johns Lutz, „SFW
Seeks Same".
Framlelöandi og leikstjóri:
Barbet Schroeder.
Aöalhlutverk: Jennifer Jason Leigh,
Brídget Fonda, Steven Weber, Peter
Fríedman og Stephen Tobolowsky.
Stjömubió.
Bönnuö innan 16 ára.
Það er vinsælt efni í kvikmyndum
þessa dagana að láta geðsjúkar per-
sónur ryðjast inn í líf venjulegs fólks
með fagurgala og leggja svo líf
þeirra smátt og smátt í rúst. Nægir
þar að nefna The Hand That Rocks
the Cradle og Unlawful Entry, og af
aðeins eldri myndum má nefna
Pacific Heights. Meðleigjandi óskast
byggir á sömu forskrift og er, líkt og
hinar þrjár, góð spennumynd, ef
ekki betri. Þetta er mjög góð form-
úla fyrir spennumyndir, ef handrit,
leikstjórn og leikur eru til fyrir-
myndar. í Meðleigjandi óskast eru
allir þessir þættir fjarska vel unnir,
sem gerir hana að fyrsta flokks
spennumynd og góða byrjun á jóla-
vertíð kvikmyndahúsanna.
í byrjun myndarinnar stendur til
að Allie Jones (Fonda) og Sam, unn-
usti hennar, gangi í hjónaband, en
hún aflýsir giftingunni þegar hún
kemst að framhjáhaldi hans. Hún
auglýsir eftir einhleypri konu til að
Ieigja með sér íbúðina sína og lýst
best á Hedru Carlson (Leigh). Þeim
kemur í fyrstu mjög vel saman, en
óskast
fljótlega fer Hedra að sýna á sér ein-
kennilegar hliðar. Hún byrjar að
líkja eftir Allie í klæðaburði og hár-
greiðslu, og tekur því ekki íþrótta-
mannslega þegar Sam og Allie taka
saman aftur. Allie fer að gruna ýmis-
legt og kemst að því hver fortíð
Hedru er, en það er hægara sagt en
gert að koma henni úr íbúðinni.
Myndin byrjar hægt, jafnvel of
hægt, en spennan tekur að magnast
og síðustu 40 mínúturnar er hún
allt að því óbærileg. Eins og alltaf í
spennumyndum er nauðsynlegt að
tónlistin sé góð og Howard Shore,
sem sér um þann þátt myndarinnar,
lætur mann finna vel fýrir áhrifa-
mætti hennar. Barbet Schroeder
hefur gert geysisterka mynd, sem
sýnir um leið fjölhæfni hans sem
leikstjóra. Síðustu myndir hans,
Barfly og Reversal of Fortune, báðar
velheppnaðar, eiga fátt sameiginlegt
með Meðleigjandi óskast.
Bridget Fonda og Jennifer Jason
Leigh leika sambýlingana mjög vel,
en sú síðarnefnda er þó alltaf skrefi
framar í frábærri túlkun sinni á
Hedru Carlson. Þessi sakleysislega
og hlédræga persóna, sem umturn-
ast svo stigvaxandi, verður eftir-
minnileg öllum sem sjá þessa
mynd. Aukaleikararnir þrír standa
sig einnig vel, en Steven Weber er
fremstur meðal jafningja í hlutverki
Sams.
Það er rétt að komi fram að algert
glapræði væri fyrir spennufíkla að
missa af þessari mynd. Þetta er frá-
bær afþreying og gott betur, vegna
eftirminniiegrar frammistöðu
Leigh. Öra Markússon
Danskur talkennari óskar eftir starfi
Danskur talkennari, sem vill flytja til Islands, leitar aö hentugu
starfi meöan hann lærir íslensku, t.d. á hjúkrunarheimili eöa slíkri
stofnun á Reykjavíkursvæðinu. Getur byrjaö 1. febrúar eða slöar.
Verður á Islandi frá og meö 18. des. nk. til 3. janúar.
Nánari upplýsingar gefnar í síma 46454.
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa
að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag.
Þœrþurfa að vera vélrítaðar.