Tíminn - 19.12.1992, Page 23

Tíminn - 19.12.1992, Page 23
Laugardagur 19. desember 1992 Tíminn 23 María Amalía Þórðardóttir Fædd 16. apríl 1898 Dáin 1. desember 1992 Lát mig starfa, lát mig vaka. Lifa meðan dagur er. Létt sem fuglinn lát mig kvaka. Lofsöng, Drottinn, flytja þér meðan œvin endist mér. Lát mig iðja, lát mig biðja, lífsins faðir, Drottinn hár. Lát mig þreytta þjáða styðja, þerra tár og græða sár, gleðja og fóma öll mín ár. (OterdahL Margrét Jónsdóttir þýddi). Ég vissi að lífsklukka vinkonu minnar var farin að slitna. Hún taldi sig samt eiga svo margt ógert. Að vísu var hún nýbúin að taka allt hús- ið sitt í gegn, húsið sem Ingimar hennar hafði byggt meira og minna með sínum tveimur höndum í frí- stundum sínum. Hún hafði hugsað sér að skila öliu af sér í lagi. Hún var búin að setja nýtt gler í alla glugga, klæða húsið að utan og nú síðastlið- ið sumar var þakið allt endurnýjað. Slík dugnaðarkona var hún María mín í Skipasundinu, sem var „að- eins 94 ára“. Við sem eftir lifum Iút- um höfði í virðingu og þökk, er við horfum á eftir fólkinu okkar sem var fætt á öldinni sem leið, því við vitum aö þar var og er kjarni þjóðar vorrar. María hét fullu nafni María Amalía Þórðardóttir og var fædd 16. aprfl 1898 að Auðsholti í Biskupstungum. Hún var dóttir hjónanna Ólafíu ÓI- afsdóttur og Þórðar Magnússonar. Börn þeirra urðu tíu, en sex komust til fullorðinsára. Þau eru: Magnús, skipstjóri, sem kvæntist norskri konu og bjó í Bergen í Noregi. Sig- urður, sjómaður, ókvæntur. Val- gerður, giftist norskum manni og bjó í Tönsberg í Noregi. Helga, gift- ist dönskum manni og bjó á Engi fýrir ofan Reykjavíkurborg. Þóra, bjó hér í Reykjavík, ógift. Eru nú öll systkinin og makar þeirra horfin yf- ir móðuna miklu. Á þessum árum fóru ungar stúlkur gjarnan til Reykjavíkur í vist á góð heimili og var það talið á við bestu húsmæðraskóla. María fór í slíkar vistir, t.d. hjá Indriða Einarssyni rit- höfundi. Síðar sigldi hún með gamla Gullfossi og réðst í vist í Nor- egi og vann einnig á hóteli í Ósló, en alls var hún í Noregi í um tvö ár. Þegar María kom heim aftur kynnt- ist hún ungum manni, Ingimar Þor- kelssyni. Þau felldu hugi saman og giftu sig 19. maí 1928. María og Ingimar eignuðust fjögur mannvænleg börn. Þau eru: Hauk- ur, bifreiðasmiður, kvæntur Ásu Hjálmarsdóttur og eiga þau eina dóttur, Maríu, gifta Þorsteini Sæ- mundssyni og eiga þau tvö börn. Þorkell, þungavélaviðgerðarmaður, kvæntur Gretu Karlsen. Börn þeirra eru tvö: Christian Emil, sem kvænt- ur er Önnu Ragnheiði Harðardóttur og eiga þau eitt barn; Anna María er í sambúð með Páli Inga Kristjóns- syni og eiga þau tvö börn. Martha, fulltrúi á Félagsmálastofnun, gift AI- exander Goodall og eiga þau tvö börn, James Ingimar og Elísabetu. Ólafur, sjómaður, kvæntur Guðnýju Kjartansdóttur, en Ólafur drukknaði er hann tók út af togaranum Guð- mundi Pétri í desember 1973. Var það þeim hjónum Maríu og Ingimar sár harmur að missa son sinn frá konu og þremur litlum börnum, en þau eru: Halldóra Katrín, gift Kára J. Húnfjörð og eiga þau tvö börn, Oddur Magnús, ókvæntur, og Krist- ján Gunnar, ókvæntur. Eina stúlku ólu þau upp sem sína eigin dóttur, Karlottu Áðalsteins- dóttur, og var hún fjögurra ára þeg- ar hún kom til þeirra, þá nýbúin að missa móður sína. Enn barði sorgin að dyrum hjá þeim hjónum, því Karlotta veiktist af krabbameini og lést í apríl 1979 frá tveimur börn- um, Helgu, sem er ógift, og Sigurði, sem á eitt barn með unnustu sinni. Árið 1933 keyptu María og Ingimar sér litla íbúð að Bjarnarstíg 3. Þetta var á kreppuárunum. Ingimar vann við höfnina og var oft lítil vinna, jafnvel var vinnan skömmtuð og ekkert eða lítið til. Þá kom sér vel að eiga útsjónarsama konu, sem kunni að gera mikið úr litlu. Hafa kunnug- ir sagt mér að á Bjamarstígnum hafi verið mikill gestagangur og gest- risni í fyrirrúmi, svo enginn fór það- an svangur. Árið 1955 kaupa Ingi- mar og María húseignina að Skipa- sundi 86, sem Ingimar endurbyggði, og bjuggu þar æ síðan. Lóðin var stór og María hafði nóg að gera við að móta garðinn. Húsið og garður- inn voru stolt Maríu, það er ekki of- mælt að hún „hafi dekrað við garð- inn sinn“. Matreiddi hún m.a. fín- ustu rétti úr hinum ótrúlegustu grösum og jurtum úr garðinum. Þessi kunnátta nýttist Maríu vel þegar Ingimar missti heilsuna. Þá var ánægjulegt að sjá hvað hún skreytti matarbakkann hans til að hann hefði kannski betri lyst. Mann sinn missti María í maí 1980. Ég sem þessar línur rita hef verið heimagangur hjá þeim hjónum og komið til þeirra bæði í gleði og sorg. Bæði vom þau ráðholl og úrræða- góð. María var há og tíguleg kona. Hún var ákaflega berdreymin, þann- ig að hún sá oft fram í framtíðina og margir leituðu tii hennar og ætíð vildi hún hvers manns vanda leysa. Góð móðir var hún einnig og mátti ekkert aumt sjá og vildi alltaf vera að gleðja og hjálpa. Hún fór ekki troðn- ar slóðir. Hún skapaði sér starf sem hún hafði mikla ánægju af, en hún saumaði tuskudúkkur og hafði hver dúkka sitt sérkenni eins og mann- fólkið. Eftir að María fór að missa sjónina lét hún ekki deigan síga, sat oft við saumavélina og saumaði, „er að sauma upp í pantanir". Dúkkur Maríu hafa verið sendar út um allan heim. Þegar ég hugsa um alla kostgang- arana hennar Maríu og öll litlu hús- in, sem héngu á trjánum út um all- an garðinn, kemur mér í hug lítið lióð um snjótittlinginn sem Katrín Árnadóttir frá Oddgeirshólum, upp- eldissystir mín, orti og kom út árið 1936 í ljóðakveri sem heitir Kátir krakkar. En þið megið gá út um gluggann, gæta að fuglunum smá, þegar þeir koma og kroppa í komið ergaman að sjá. Fuglinn var hikandi og hrœddur og horfði upp í loftin blá. Svo byrjaði hann komið að kroppa og krafsa með fótum smá. Einn lítill fugl var mikið uppáhald hjá Maríu. Hún gaf honum nafn og nefndi Surtlu. Hann gerði sig heimakominn og pikkaði í gluggann og lét vita að gott væri að fá meiri mat, munnarnirværu margir.Ávor- in fjölgaði í litlu húsunum og þá varð María að fara og skoða öll börn- in. Að sjálfsögðu var sungið fyrir hana í staðinn. Svo komu þeir allir í einu, og alltaf færðust þeir nær. Loks svifu þeir saddir í burtu og sungu um stúlkumar tvœr. María og bóndi hennar höfðu ákaf- lega gaman af að ferðast meðan Ingimar hafði sjón og heilsu. Þá ferðuðust þau mikiö á bfl sínum og nutu samverunnar úti í náttúrunni og fegurð landsins. Þau byggðu sér lítið sumarhús í Iandi Haukholts í Hrunamannahreppi og nefndu hús- ið Dalakofann. Einnig þar kom ég og gisti og naut þess að láta stjana við mig. Þar var líka lítill garður og hagamúsin var ekki afskipt. Þá upp- lifði ég einu sinni enn hve María var stórkostleg og átti fáa sína líka. Hún hafði verið að gefa krumma mat, setti matinn út fyrir hlið. Allt í einu heyrist „krunk, krunk“, hún fer að athuga og segir: „Ég er nýbúin að gefa þér, krummi minn.“ Krummi lét sig ekki, vildi fá hana út fyrir hlið. Er hún kemur út fyrir er krummi kominn með ungana sína þrjá og var stórkostlegt að sjá Maríu og krumma tala saman. Svona var þetta líka í Skipasundinu, fuglarnir virtust þekkja Maríu og skilja hana. Lítill fugl skaust úr lautu, lofaði guð mér ofar. Sjálfur sat ég í lautu sárglaður og með tárum. (Jónas Hallgrímsson) Um leið og ég kveð mína tryggu vinkonu vil ég þakka henni fyrir 40 ára kynni og öll hollu ráðin sem mér tókst ekki alltaf að fara eftir. Ég leyfi mér að þakka öllum sem heimsóttu Maríu og gáfu sér tíma til að líta til hennar. María var heima til hinstu stundar og andaðist aðfaranótt 1. desember. Ég bið Guð að styrkja börn hennar, barnabörn og barnabarnabörn, svo og alla hennar vini. Nú legg ég augun aftur. Óguð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil svo égsofi rótt. (Foersom — Sb. 1872 — S. EgiUson) Að ieiðarlokum óska ég Maríu minni góðrar heimkomu og endur- fundar við mann sinn. María var lögð til hinstu hvfldar við hlið manns síns. Jarðarförin fór fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 9. desember kl. 13.30. Veri María Þórðardóttir kært kvödd, Guði á hendur falin. Hafi hún hjartans þökk fyrir allt og allt. Jónína Bjömsdóttir frá Oddgeirshólum Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móö- ur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu Helgu Gunnlaugsdóttur frá Hallgilsstööum á Langanesi Sérstakar þakkirfæmm viö þeim sem önnuöust hana á Hjúkrunarheimilinu Skjóli. Böm, tengdabörn, barnabörn og bamabarnabarn ______________________Z____________ J Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg- arverkfraeöings, óskar eftir tilboðum í byggingu á smáhýsum og öörum mannvirkjum í fjölskyldugaröinn í Laugardal. Um er að ræöa 10 smáhús og skýli samtals að flatarmáli 252 m2, önnur mannvirki eru samtals 7. Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik, gegn kr. 20.000,- skilatryggingu. Tilboöin verða opnuö á sama stað fimmtudaginn 14. janúar 1993, kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í málun á íbúðum aldraðra. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 7. janúar 1993, kl. 14,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR 0 ° ° Fríkirkjuvegi 3-Sími 25800 Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í máiun á dagvistarhúsnæði Reykjavíkurborgar. Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. janúar 1993, kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR « ° Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 P ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum i málun á leiguíbúðum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 6. janúar 1993, kl. 11,00. INNKAÚPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR °° 6 Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 (|| ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg- arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í 13 stálhurðir og ýmsan frágang í Laugardalshöll. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykjavik, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 21. janúar 1993, kl. 11,00. lísÍNkAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBÖRGÁR ° Fríkirkjuvegi 3 - Sími 2Í800 0 r O- Tilkynning frá Ferðamálasjóði Ferðamálasjóður hefur flutt aðsetur sitt. Frá og með mánudeginum 21. desember 1992 verður hann til húsa á annarri hæð Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Símanúmer helst óbreytt, 624070. Ferðamálasjóður.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.