Tíminn - 27.07.1994, Page 12
12
Mi&vikudagur 27. júlí 1994
VERSLUNARMANNAHELGIN
FIB-menn starfrœkja hjálparþjónustu um
verslunarmannahelgina:
FIB-síminn
Félag íslenskra bifreiðaeig-
enda, FÍB, verður með hjálp-
arþjónustu um verslunar-
mannahelgina í svipuðu formi
og undanfarin ár. Símavakt
verður á skrifstofu félagsins frá
föstudegi til mánudags kl. 10-
18.00, auk þess sem símsvari
vísar á farsíma utan þess tíma.
FÍB-síminn er 91-629999.
Félagið mun aöstoða við að
koma biluðum bifreiðum á
verkstæði og annast útvegun
varahluta eftir því sem auðið er.
Nokkrir upplýsinga- og aðstoð-
arbílar verða á fjölförnustu leið-
unum.
Flest bifreiðaumboðin og vara-
91-629999
hlutasalar hafa góðfúslega
skipulagt bakvaktir, vegna vara-
hlutaafgreiðslu og víða út um
land eru viðgerðarverkstæði op-
in fyrir neyðarþjónustu og er
FÍB í sambandi við þessa aðila.
í framhaldi af þessu vill FÍB
minna eigendur ökutækja á ab
gæta þess aö hafa ökutæki sín
vel búin til ferðalaga og gæta
þess að nauðsynleg verkfæri séu
til staðar og sjálfsagðir varahlut-
ir, svo sem viftureim, ljósaperur
og rafmagnsöryggi, vélarolía,
brúsar, sem nota má fyrir vatn
eða eldsneyti, einangrunar-
band, dráttartóg, startkaplar og
auðvitað sjúkrakassi. ■
Skoöunarferö um A-Skaftafellssýslu:
Óvibjafnanleg litadýrö
Daglegar ferðir eru í sumar
um eina náttúruperlu A-
Skaftafellssýslu, Lónsöræfi, þar
sem litast er um í landslagi sem
skartar óviðjafnanlegri litadýrb
og ætti enginn, sem þarna á leiö
um, að láta þessa ferb framhjá
sér fara.
Feröin hefst klukkan 9.00 við
þjónustumiðstöðina á Höfn.
Þegar komið er ab Almanna-
skarbi, er numib staðar við út-
sýnispall og horft yfir Horna-
fjörb til skribjökla Vatnajökuls.
Af þessum stab er talin ein feg-
ursta útsýn á landinu. Ferðinni
er síðan haldið áfram inn Þóris-
dal og síðan ekið yfir Skyndi-
dalsá óbrúaða. Síðan er ekið sém
leið liggur upp á Kjarrdalsheiði
og niður á Illakamb. Lengra
verður ekki komist á vélknúnu
ökutæki, en síðan er gengið af
kambinum niður ab skála Ferða-
félags A- Skaftafellssýslu, en það
er um 30 mínútna ganga. Þar er
síban snætt.
Etir að hafa setið að snæðingi
er tilvalið ab nota tímann til aö
skoða einstaklega litskrúðug gil
og gljúfur í nágrenninu, en
Lónsöræfi eru stórkostlegt
gönguland. Kollumúli er gömul
eldstöð og litadýrbin mikil. ■
Fjölskylduhátíð í Vík um verslunarmannahelgina
/
V VIK’94 V
Dansleikir
Götukörfubolti
Fjársjóðsleit
Harmonikkuball
íþróttir og leikir
Lyðveldishlaupið
Morgunleikfimi
Söngvarakeppni
Vatnsfótbolti
Trúður
Dagskrá Vík ’94
Föstudaginn 29. júlí
23.00 Varðeldur
24.00 Harmonikkuball í tjaldi
Laugardaginn 30. júlí
10.00 Morgunleikfimi
11.00 Trúður
13.00 íþróttir og leikir
14.00 Vatnsfótbolti
17.00 Söngvarakeppni
19.00 Útigrill
20.00 Lýöveldishlaup UMFÍ
22.00 Varðeldur
23.30 Dansleikur
Sunnudaginn 31. júlí
10.00 Morgunleikfimi
11.00 Trúður
13.00 Götukörfubolti
17.00 Fjársjóðsleit
19.00 Útigrill
20.00 Lýðveldishlaup UMFÍ
22.00 Varðeldur
23.30 Dansleikur
KAUPFÉLAG AUSTUR-SKAFTFELLINGA
býöur feröafóík velkomið í þjónustustöðvar sínar á nokkra af fegurstu
áningarstöðum íandsins
Þjónustumiðstöðin
í Skaftafelli:
Verslun — Veitingar —
Bensín, olíur o.fl.
Fagurhólsmýri:
Alhliða verslun —
Bensín, olíur o.fl.
Djúpavogi:
Alhliða verslun.
Höfn, Hornafirði:
Alhliða verslun —
Ferðamannaverslun —
Bakarí — Byggingavörur
— Bensín, olíuro.fl.
Verið velkomin á Suð-Austurland
KAUPFÉLAG AUSTUR-SKAFTFELLINGA
HÖFN — SKAFTAFELLI — FAGURHÓLSMÝRI — DJÚPAVOGI