Tíminn - 27.07.1994, Síða 17
8 liöa úrslit Mjólkurbikars karla:
Grindavík
sló út ÍBV
KR, Stjarnan, Grindavík og Þór
eru komin í undanúrslit Mjólk-
urbikarkeppni karla, en dregib
verbur í hádeginu í dag hva&a
Iið mætast þar.
Izudin Daði Dervic og Tryggvi
Guömundsson skoruðu mörk KR
í 1-2 sigri á Breiðablik í Kópavogi,
en Sigurjón Kristjánsson gerði
mark heimamanna.
Lúðvík Jónasson og Ottó Karl
Ottósson komu Stjörnunni í 0-2
gegn Fylki, á heimavelli Fylkis,
áður en Ómar Bendtsen minnk-
aði muninn fyrir Árbæinga.
Bjarni Gaukur Sigurðsson inn-
siglaði síðan 1-3 sigur Stjörnunn-
ar undir lokin.
Grindvíkingar eru komnir
áfram eftir mikinn baráttuleik
gegn Vestmannaeyingum.
Markalaust var eftir framleng-
ingu, en Haukur Bragason, mark-
vöröur Grindavíkur, varði loks 7.
spyrnu ÍBV og því sigraöi 2.
deildarliðið 6-5. ■
Körfuknattleikur á
Friöarleikunum:
Rússar lögðu
Bandaríkin
Friðarleikarnir standa nú yfir í St.
Pétursborg og þar gerðust þau
tíðindi að Rússar sigruðu Banda-
ríkjamenn 77-75, en í liði Banda-
ríkjanna eru engir leikmenn frá
NBA-deildinni. Hins vegar verða
NBA- leikmenn á ferðinni í næsta
mánuði í liði Bandaríkjanna,
þegar HM hefst í Kanada, eins og
komiö hefur fram í Tímanum.
Einnig vekur athygli slæleg
frammistaða Króata, sem töpuðu
öllum leikjum riðlakeppninnar.
Helstu úrslit í riðlakeppninni á
HM urðu þessi:
A-ribill
Puerto Rico-Brasilía..........109-98
Ítalía-Króatía.................79-77
Brasilía-Ítalía ...............64-72
Króatía-Puerto Rico............79-93
Brasilía-Króatía .............101-89
Puerto Rico-Ítalía ............69-73
Lokastaöan
Ítalía..............3 3 0234-213 6
Puerto R............3 2 1 271-255 5
Brasilía ...........3 1 2 263-275 4
Króatía.............3 0 3 245-270 3
B-riðill
Kína-Bandaríkin.............80-89
Argentína-Kína .............74-49
Rússland-Bandaríkin.........77-75
Argentína-Rússland .........80-89
Rússland-Kína...............95-93
Bandaríkin-Argentína .......83-71
Lokastaðan
Rússland.........3 3 0 262-248 6
Bandaríkin ......3 2 1 257-228 5
Argentína........3 1 2 225-221 4
Kína.............3 0 3 222-268 3
í kvöld fara svo fram undanúr-
slit þar sem mætast Ítalía og
Bandaríkin og Rússland og Pu-
erto Rico. ■
í kvöld
Knattspyrna
1. deild kvenna
ÍA-Höttur................kl. 20
3. deild karla
Skallagr.-Dalvík ......kl. 20
Reynir S.-Haukar......kl. 20
BÍ-Höttur................kl. 20
Völsungur-Tindast.....kl. 20
4. deild karla
Ægir-Afturelding ......kl. 20
Leiknir R.-Grótta .....kl. 20
Hamar-Ármann.............kl. 20
Njarðvík-Árvakur ......kl. 20
Víkingur Ól.-Framh....kl. 20
Neisti H.-Þrymur......kl. 20
Kormákur-KS..............kl. 20
SM-HSÞ.b.................kl. 20
KVA-KBS..................kl. 20
Fyrsta Norður-
landamótið í
glímu
Glímulandslið íslands tekur
þátt í Norðurlandamóti, sem
fer fram í Hróarskeldu í Dan-
mörku. Mótiö hefst í dag og er
haldið samhiiða Víkingaleik-
um í bænum. Ólafur H. Ólafs-
son, sem leiðir hópinn, sagði
við Tímann að þetta væri
fyrsta Norðurlandamótið sem
færi fram í glímu og ef vel
tækist til væri jafnvel verið að
tala um keppni á hverju ári
hér eftir. íslendingarnir ætla
þó ekki einungis að keppa,
heldur verða þeir með sýning-
ar til kynningar á íþróttinni
þar sem ferill glímunnar verð-
ur tekinn fyrir.
„Upphafið að þessu móti má
rekja til Lars Enoksen frá Sví-
þjóð. Hann kom hingaö til ís-
lands fyrir 5-6 árum til að
kynna sér fornbókmenntirnar
okkar og af því leiddi að hann
kynntist glímunni. í kjölfarið
fær hann brennandi áhuga og
æfir með okkur. Hann fær síðan
menn héðan til að fara út og
kenna og tekur síðan dómara-
réttindi. I Svíþjóö eru u.þ.b; 30
sem æfa hjá Lars og óhætt að
segja að hann sé að gera góða
hluti fyrir glímuna," sagði Ölaf-
ur H. Ólafsson.
Danmörk, Svíþjób og ísland og
líklega Noregur verða með lið á
mótinu. Að sögn Ólafs, sem
jafnvel er aö hugsa um að
keppa, þá ættu íslendingar aö
vinna nokkub öruggan sigur á
þessu fyrsta Norðurlandamóti
og líklega ættu Svíarnir eftir að
veita þeim mesta keppni. Ólafur
sagði það vera mjög jákvætt að
þetta mót færi fram og það ætti
örugglega eftir aö ýta undir
uppgang íþróttarinnar bæði hér
heima og á hinum Noröurlönd-
Ólafur Haukur Ólafsson leibir íslenska landslibshópinn í glímu á NM-
mótinu, sem hófst í Danmörku í dag.
unum.
Þeir, sem skipa þennan lands-
liöshóp íslendinga, utan Ólafs,
eru eftirtaldir: Orri Björnsson
KR, Óskar Gíslason KR, Helgi
Bjarnason KR, Fjölnir Elvarsson
KR, Halldór Konráðsson Vík-
verja, Stefán Báröarson Víkverja
og Lárus Kjartansson HSK. Jó-
hannes Sveinbjörnsson HSK og
Arngeir Friðriksson HSÞ áttu
ekki tök á þvi að komast með,
vegna anna í vinnu. ■
Óvíst hvort
Andri fer
aftur til Lyn
Andri Marteinsson gekk til
liös við Lyn í Noregi í fyrra og
ætlaði sér að leika með þeim í
sumar. Hann fékk hinsvegar
fá tækifæri með liðinu og var
því leigður til FH aftur. Leigu-
samningurinn milli félaganna.
er til loka október. Andri sótti
nýverið um framtíðarstarf hér
á landi og þá vaknaði spurn-
ingin um hvort hann væri
hættur viö að fara út til Lyn
aftur.
„Ég á eftir eitt ár af samningi
mínum við Lyn, en það kemur
ekkert í ljós fyrr á nýju ári hvort
ég fer út. Ég er alveg eins að leita
eftir framtíöarvinnu hérna
heima ef eitthvað gott kemur
upp á borðib. Dvölin úti var góð
meban á henni stóö, en forráða-
mönnum Lyn tókst að klúðra
málum bæbi fyrir leikmönnum
og félaginu, sem á nú í fjárhags-
erfiðleikum þrátt fyrir að fá mik-
ib fjármagn fyrir tímabilið. Þeir
hafa m.a. þurft að selja sína
skærustu stjömu til að rétta úr
Andri Marteinsson er ekki viss um
hvort hann fer aftur íatvinnu-
mennsku til Lyn í Noregi.
kútnum. Þaö virðist því vera svo
ab skútan ætli að sigla í strand.
Ég vil ekki segja að ég hafi lítinn
áhuga á að fara aftur út, en ég
skoba bara málin þegar þar ab
kemur. Meðan þau eru í ólestri
er kannski ekki mikill áhugi frá
mínum bæjardyrum séð," sagði
Andri við Tímann. ■
Molar . . .
... Valsmenn leika heimaleik
sinn við ÍBV á morgun að
Hlíðarenda en ekki á Laugar-
dalsvelli. Ástæöan fyrir þessu
er að verið er að gera vib
mibju Laugardalsvallar og því
var ákvebið að leika aö Hlíðar-
enda. Óvíst er hvar Valur leik-
ur þá heimaleiki sem eftir eru.
... Carl Lewis hafnaði aðeins í
4. sæti í lOOm hlaupi á Frið-
arleikunum og má greinilega
muna sinn fífil fegri. Hann
hætti síðan við að keppa á
móti Mike Powell í langstökki
og sagði Lewis ástæðuna vera
að hann væri ekki í nógu
góðu formi.
... Gheorghe Hagi fer til
Barcelona þrátt fyrir allt og
fær 70 miljónir í árslaun.
Þröngt verbur á þingi í stór-
libinu, enda eru þar fyrir stór-
stjörnurnar Romario, Sto-
ichkov og Koeman, en abeins
mega þrír útlendingar leika í
einu.
... ísland er í 42. sæti af 173
þjóbum á styrkleikalista FIFA
og hefur fallib niður um fjög-
ur sæti á einum mánubi,
enda ekkert leikið. Búlgaria
tekur stærsta stökkið, hoppar
úr 29. sæti uppí það 14.
Brassar eru efstir, ítalir í 2.
sæti og Svíar í 3. sæti, en þeir
voru í 10. sæti.
Benedikt Geirsson, formaöur SKÍ, um komu kanadíska skíöalandsliös-
ins í Kerlingarfjöll:
ísland framtíöarkost-
ur erlendra landsliða
— Sncefellsjökull kemur til greina
Armannshlaupið
hefst á morgun
„Viö hjá Skíðasambandinu
viljum meina það að ísland
sé framtíbarkostur til æfinga
fyrir erlend skíðalandsliö yf-
ir sumarmánuðina," segir
Benedikt Geirsson, formaður
SKÍ, en eins og Tíminn
greindi frá í gær þá ætlar
kanadíska skíðalandsliðið
ab dvelja vib æfingar í Kerl-
ingarfjöllum frá og meb deg-
inum á morgun. Mebal
þeirra, sem eru í hópnum, er
skíðamabur sem varb í 16.
sæti á síöustu ólympíuleik-
um og hefur unnib til heims-
bikartitils.
„Öll helstu skíðasvæði í Evr-
ópu eru löngu frátekin, enda
eru ekki nema 2-3 jöklar í Ölp-
unum sem hægt er að nota yf-
ir sumartímann. ísland er því
ab verða álitlegur kostur fyrir
erlenda skíðamenn og því er
mikilvægt ab vel takist til með
dvöl Kanadamannanna hér á
landi. Fyrir utan Kerlingarfjöll
tel ég Snæfellsjökul koma vel
til greina sem æfingaaðstöðu
fyrir landsliðin," sagði Bene-
dikt Geirsson að lokum við
Tímann. ■
Hib árlega fjölskylduhlaup Ár-
manns fer fram á morgun og
hefst hlaupið klukkan 20 við Ár-
mannsheimilið. Boðið verður
uppá 2, 4 og lOkm hlaup og
sem fyrr er ekkert skilyrði að
hlaupa, heldur getur fólk bara
gengib, ef því sýnist svo. Sú ný-
breytni verður í lOkm hlaupinu
að það verður aidursflokkaskipt
og fá þrír efstu í hverjum flokki
verðlaunapening. Skráning í
hlaupið er í dag milli kl. 16-22
og á morgun frá kl. 12. Þátt-
tökugjald er krónur 500 fyrir
fullorðna og 200 fyrir börn.
Fjölskylduafsláttur er veittur sé
greitt í dag fyrir hlaupiö. Upp-
hitun verður í höndum Magn-
úsar Scheving. ■