Tíminn - 27.07.1994, Síða 18
18
Mi&vikudagur 27. júlf 1994
Auglýsing
um kosningarétt íslenskra
ríkisborgara sem búsettir
eru erlendis
Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis hafa Islending-
ar sem flust hafa af landi brott og sest að erlendis kosn-
ingarétt hér í átta ár frá því að þeir fluttu lögheimili sitt, talið
frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Þeir eru því sjálf-
krafa á kjörskrá þann tíma. Að þessum átta árum liðnum
falla menn af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá
að halda kosningarétti.
Því þurfa þeir, sem vilja vera á kjörskrá, en fluttu af landi
brott fyrir 1. desember 1986 og hafa verið búsettir erlendis
síðan, að senda umsókn til Hagstofu (slands fyrir 1. des-
ember 1994, til þess að halda kosningarétti. Kosningarétt-
urinn gildir þá til 1. desember 1998, en endurnýja þarf
hann með nýrri umsókn fyrir lok þess tíma.
Umsókn skal senda Hagstofu (slands en eyðublöð fást í
sendiráðum íslands erlendis, sendiræðisskrifstofum, skrif-
stofum kjörræðismanna og hjá fastanefndum við alþjóða-
stofnanir. Einnig er hægt að fá eyðublöðin á afgreiðslu
Hagstofunnar.
Umsækjandi verður sjálfur að undirrita umsókn sína.
Einungis þeir sem einhvern tíma hafa átt lögheimili á ís-
landi geta haft kosningarétt hér. Kosningaréttur fellur niður
ef Islendingur gerist ríkisborgari í öðru ríki. Kosningaréttur
miðast við 18 ára aldur. Reglur þessa gilda með sama
hætti um kjör forseta íslands en ekki um kosningar til sveit-
arstjórna.
Sé umsókn fullnægjandi skráir Hagstofa íslands umsækj-
anda á kjörskrá þar sem hann seinast átti lögheimili sam-
kvæmt þjóðskrá.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 26. júlí 1994
ÚTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið
Álftanesæð 1. áfangi.
Verkið felst í að endurnýja hluta af aðveituæð fyrir Bessa-
staðahrepp milli Engidals og Garðaholts.
Æðin er 0300 mm stálpípa í 0450 mm plastkápu. Heildar-
lengd er um 1.200 m.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 28. júlí 1994,
gegn 15.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 16. ágúst
1994 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
ÚTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið
„Nesjavallavegur, Vegmálun".
Verkið felst í að mála miðlínur og marklínur á Nesjavallaveg og
heimreið að Nesjavöllum. Lengd vega er samtals um 25 km.
Verkið skal vinna á tímabilinu 15. - 25. ágúst 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn 10.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 10. ágúst 1994
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Aðsendar gréinar, afmælis-
og minningargreinar
sem birtast eiga í blabinu þufa að hafa borist ritstjórn bla&sins,
Stakkholti 4, gengiib inn frá Brautaholti, tveimur dögum fyrir
birtingardag, á disklingum vistab í hinum
ýmsu ritvinnsluforritum'sem texti, e&a
vélrita&ar. sími (91) 631600
Á skíöum skemmti ég mér...
Börn oð leik eftir velheppnaöa skíöaferö. Tjaldstœöi Kerlingarfjalla í baksýn.
Camli skíöarefurinn Valdimar Örnólfsson stjórnar kvöldvöku afröggsemi.