Tíminn - 27.07.1994, Blaðsíða 19
Mi&vikudagur 27. júlí 1994
VMmi
19
Fögur er fjallasýn.
Perla í mi&ju landi
Myndir og texti: Cunnar Sverrisson
Það eru ekki margir mánuðir yfir
vetrartímann sem skíöamenn geta
stundað íþrótt sína hér á landi. En
það er vænn kostur að geta heim-
sótt Kerlingarfjöll á mibju sumri.
Ekki spillir fyrir fegurö staðarins
til að njóta náttúrunnar. Tjald-
stæbi, gistiskálar, matur og heitir
laugarpottar standa ferðalangnum
til boöa, allt á einum stað. Og ferð
í Kerlingarfjöll er brábsnibug fyrir
þá sem eru ab stíga sín fyrstu skref
í átt til að vera góðir skíöamenn.
Það er boðið upp á fyrirmyndar
skíðakennslu, bæöi fyrir byrjend-
ur og þá sem lengra eru komnir.
Engum ætti aö leiðast þegar
kvölda tekur, því skíðakennarar
og abrir starfsmenn bjóða upp á
skemmtilegar kvöldvökur fyrir
unga sem aldna undir traustri
stjórn Valdimars Örnólfssonar. ■
Skíbakappi í léttri sveiflu.
Skíbabretti njóta sífellt meiri vinsælda og eins og sjá má á þessari mynd er margt hægt.