Tíminn - 20.05.1995, Side 10
10
Laugardagur 20. maí 1995
Frá Pétri Bjarnasyni, fréttaritara Tím-
ans á ísafirbi:
í hugum margra lýkur skíöa-
vertíö og skíöaiökun rétt um
páskana. Þá er skíöunum oft
fleygt inn í geymslu og ekki
hugaö aö þeim fyrr en næsta
vetur. Um þetta leyti fer hins
vegar í hönd skemmtilegasti
skíöatíminn vestur á ísafiröi
og þar í grennd. Fram til þess
tíma nýta skíöagöngumenn
gjarnan Tungudal og Selja-
landsdal til aö iöka íþrótt sína,
en á vorin og langt fram á
sumar er hiö ákjósanlegasta
göngufæri uppi á Breiöadals-
og Botnsheiöum.
Frá ísafiröi er um tíu mín-
útna akstur upp undir vega-
mótin yfir aö Suöureyri og þar
er bara aö leggja bílnum út í
kantinn og spenna á sig skíð-
in. Allajafna er þar nægur
snjór út júní og á þessum tíma
er að vænta sólskins og góð-
viðris og því taka menn fljótt
lit þarna í hálendinu. Göngu-
land er við allra hæfi, víölend-
ar sléttur eöa brekkur ef menn
kjósa þann kostinn. Útsýni er
mjög fagurt noröur yfir Djúpið
og ef lengra er gengiö, má sjá
niður í Súgandafjörð eöa langt
inn á Vestfjarðahálendið.
Þarna hefur verið lýst nærtæk-
asta og algengasta skíðasvæði
ísfiröinga á vorin, en mögu-
leikarnir eru að sjálfsögðu
margir fleiri á nálægum svæö-
um, t.d. norðan Djúpsins, á
Hornströndum, í Jökulfjörð-
um og allan ársins hring er
nægur snjór á hjarnbreiöum
Drangajökuls, en veöráttan
þar er auövitað hagstæðust yf-
ir sumartimann.
Áb á Hesteyri ábur en lagt er á heibina.
Um síðustu páska var efnt til
hópferðar í skíðagöngu frá
Hesteyri í Jökulfjöröum yfir að
Látrum í Aöalvík og var farið
þangað meö Fagranesinu og á
gúmmítuörum í land á Stekk-
eyri, þar sem Norðmenn ráku
hvalstöð og Kveldúlfur hf. síð-
ar síidarverksmiðju um margra
ára skeið. Þaðan var svo gengið
á skíðunum út aö Hesteyri, þar
sem tekið var manntal og fjall-
gangan hófst síðan formlega.
Þátttaka varð mjög góö, um
fjörutíu manns tóku þátt í
göngunni sem fór fram í blíð-
asta veðri, glampandi sól og
svölu veðri. Göngumenn voru
af báðum kynjum, jafnt vanir
göngumenn og allt að því ný-
liðar í íþróttinni. Leiðin, sem
farin var, er mjög hagstæð, af-
líðandi brekkur og léttar til
göngu báðum megin. Útsýni
er fagurt af heiðinni, yfir Djúp-
ið og síðan niður í Aðalvíkina
og út á Atlantshafið. Þarna get-
ur að líta í fjarska hernaðar-
mannvirki gerð af Bretum
uppi á fjallinu Darra að sunn-
an og leifar af bandarískri rat-
sjárstöð uppi á Straumnesfjalli
að norðan. Hægt er að skreppa
út á Mannsíjall í leiðinni til aö
sjá betur yfir víkina.
Þeir, sem fyrstir fóru, brugðu
sér í leiðinni yfir í Rekavík bak
Látur, en þar er yfir lágan háls
að fara. Með útúrdúrnum tók
sjálf gönguferðin aðeins um
þrjá tíma, en fara mætti þessa
leið á mun skemmri tíma.
Fagranesið kom síðan og sótti
gönguhópinn að Látrum og þá
var siglt fyrir Ritinn og inn
Djúp á sléttum sjó í síðdegis-
sólinni.
Til ísafjarðar var komið í
tæka tíð til þess að bregöa sér í
gamla Turnhúsið á harm-
onikuball, eða á djasskvöld á
Hótel ísafirði og sumir notuðu
sér það. Aðrir, sem lúnir voru
eftir daginn, brugðu sér í heitt
bað og olíubáru sólbökuö and-
lit sín. Öllum bar saman um að
ferð sem þessi væri mjög ákjós-
anleg dagsferð og ekki of erfið.
ítreka má að oftast er gott
göngufæri á skíðum út júní-
mánuð rétt við þjóðveginn frá
ísafirði upp á Breiðadals- og
Botnsheiðar, svo ef til vill er
það góð hugmynd fyrir ferða-
menn, sem eru snemma á ferð-
inni, að kippa skíðunum meö í
farangrinum.
Hollenskir ferbamenn á skíbum um mibjan júní í fyrra.
Fagranesib lónar fyrir landi meb gúmmítubrurnar klárar til ab sækja mannskapinn.