Tíminn - 20.05.1995, Blaðsíða 11
Laugardagur 20. maí 1995
11
Deilan um Fiskiöjusamlag Húsavíkur:
Stjórnmálaskoöanir eða
hagsmunir heimamanna
í upphafi þessa árs spáöi völva
nokkur átökum á milli þess
sem hún nefndi kolkrabbann
og smokkfiskinn og átti þar
augljóslega vib hina tvo stóru
útflutningsaðila á sviöi sjávar-
afurða. Trúlega hefur völvan
þó fremur rýnt í fréttir af þró-
un mála í landinu en glerkúl-
una, er hún taldi sig sjá þessi
átök fyrir, því þarna hefur
hún reynst nokkuö sannspá.
Átök þessara aöila hófust
skömmu eftir áramótin meb
slag íslenskra sjávarafurða og
Sölumiöstöövar hraöfrysti-
húsanna um viðskipti vib Út-
geröarfélag Akureyringa og
lauk þeim meö þeim hætti aö
um óbreytt viðskipti félagsins
viö Sölumiöstöbina var ab
ræba eftir aö máliö haföi verib
rætt mjög ítarlega í bæjar-
stjóm Akureyrar og framsókn-
armenn, sem hafa forystu í
bæjarstjórninni, gefiö eftir til
aö ná samstööu um málib.
En átökum stóru útflutnings-
fyrirtækjanna um viðskiptaað-
ila var ekki lokið og aöeins liöu
nokkrar vikur þar til þau tókust
á aö nýju og í það skiptið um
viðskipti viö Fiskiðjusamlag
Húsavíkur. Þau átök hafa nú
leitt til þeirrar niðurstöðu að ís-
lenskar sjávarafurðir munu á-
fram selja afuröir fiskiöjusam-
lagsins. Af þessu hafa vaknaö
spurningar um hvort um aukna
samkeppni sé aö ræöa á sviöi út-
flutningsmála sjávarútvegsins
eöa hvort fremur sé um pólitísk
átök útflutningsaöilanna aö
ræöa, þar sem annar þeirra
tengist ákveönum hring fyrir-
tækja sem stýrt er af ýmsum á-
hrifamönnum í Sjálfstæöis-
flokknum, en hinn er aö nokkru
vaxinn af rót samvinnuhreyf-
ingarinnar.
Bob og yfirboö í
hlutafjáraukningu
Forsaga Húsavíkurmálsins er
sú, aö ákveöiö var aö auka
hlutafé í Fiskiöjusamlagi Húsa-
víkur um 100 milljónir króna í
tengslum við endurskipulagn-
ingu á rekstri þess, er verið hef-
ur nokkuð þungur um skeið. ís-
lenskar sjávarafurðir og fyrir-
tæki tengd þeim buðust þegar í
stað til þess að kaupa 75%
hlutafjáraukningarinnar á nafn-
veröi eða genginu 1.00. Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna yfir-
bauð þá keppinautinn og
bauöst til aö kaupa alla hluta-
fjáraukninguna á genginu 1.25.
í kjölfar þess hófust viöræöur
meirihluta bæjarstjórnar Húsa-
víkur viö íslenskar sjávarafurðir,
sem lyktaöi meö þeim hætti að
Tryggingamiöstööin, Olíufélag-
ið, Útvegsmannafélag sam-
vinnumanna og Húsavíkurbær
buðust til aö kaupa alla hluta-
fjáraukninguna þannig aö nafn-
verö veröi greitt fyrir þann
hluta er forkaupsréttarákvæöi
gilda um, en afgangurinn
greiddur á svipuðu gengi og
Sölumiðstöðin bauö. Þessu máli
tengist einnig hagræöing og
sameining þriggja útvegsfyrir-
tækja á Húsavík: Fiskiöjusam-
lagsins, íshafs og Höföa, en
þessi fyrirtæki hafa að mestu
leyti átt viðskipti við íslenskar
sjávarafuröir, og í tengslum viö
tilboö þeirra í hlutafé í fiskiöju-
samlaginu var lagt til að þessi
sameining yrði aö veruleika.
Eimskip og
Sjóvá-Almennar
að baki
Sölumiðstöbinni
Húsavíkurbær er meirihluta-
eigandi í fiskiðjusamlaginu og
samþykkti bæjarstjórn á
stormasömum fundi síðastlið-
inn þriðjudag aö taka tilboði
fyrirtækjanna þriggja og bæjar-
sjóös í hlutafjárútboð þess og
vinna að sameiningu við íshaf
og Höföa á þeim grundvelli er
þegar hafi veriö lagöur. Fram-
sóknar- og alþýöubandalags-
menn og óháöir mynda meiri-
hluta í bæjarstjórn Húsavíkur
gegn minnihluta sjálfstæðis- og
alþýöuflokksmanna. Meirihluti
bæjarstjórnarinnar stóö aö sam-
þykktinni um sölu hlutabréf-
anna, áframhaldandi viöskipti
viö íslenskar sjávarafurðir og
sameiningu útvegsfyrirtækj-
anna þriggja, en bæjarfulltrúar
minnihlutaflokkanna og þá
einkum Sjálfstæöisflokksins
gagnrýndu meirihlutann harð-
lega og sökuöu hann um aö
hafa aldrei viljað ræða tilboö
Sölumiöstöðvarinnar og ekki
gefið fulltrúum minnihlutans
kost á aö fylgjast með viöræö-
um viö íslenskar sjávarafuröir.
Á bæjarstjórnarfundinum kom
fram aö hefði verið gengið til
samninga viö Sölumiðstöðina,
heföu Eimskip, Sjóvá-Almennar
og Þormóður rammi á Siglufiröi
aö líkindum orðiö kaupendur
aö hlutafé í Fiskiöjusamlagi
Húsavíkur, auk þess sem Sölu-
miðstööin hefði takið aö sér út-
flutning sjávarafurða hinna
húsvísku fyrirtækja og flutning-
ur á framleiöslu þeirra færst frá
Samskipum til Eimskips.
Minnir á ÚA-málin
Afstaða bæjarfulltrúa á Húsa-
vík til hinna stóru útflutnings-
aðila sjávarafurða fór í öllum
meginatriöum eftir pólitískum
línum þar sem framsóknar- og
alþýðubandalagsmenn stóðu
með íslenskum sjávarafuröum,
en sjálfstæðis- og alþýðuflokks-
menn vildu fremur kanna kosti
tilboös Sölumiðstöðvarinnar.
Þessi niöurstaöa minnir óneit-
anlega nokkuð á þau átök sem
urðu á Akureyri fyrr á árinu um
viðskipti Útgeröarfélags Akur-
eyringa. í því máli tóku sjálf-
stæöis- og alþýöuflokksmenn
strax afstöðu með áframhald-
andi viöskiptum viö Sölumiö-
stöð hraöfrystihúsanna, en
framsóknarmenn vildu reyna
aö ná samkomulagi viö íslensk-
FRETTASKYRING
ÞÓRÐUR INGIMARSSON
ar sjávarafurðir að því tilskildu
að þeir flyttu höfuðstöðvar sín-
ar með um 80 manna starfsliði
norður. Þegar bæjarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins lögðust á
sveif meö Sölumiðstööinni tóku
framsóknarmenn þann köst aö
mynda einingu um málið og
ganga að framkomnu tilboði
Sölumiðstöðvarinnar um flutn-
ing hluta á starfsemi þess fyrir-
tækis norður, fremur en rjúfa
meirihlutasamstarf með Al-
þýðuflokknum.
Stjórnmálaskobanir
eba hagsmunir
heimamanna
Á bæjarstjómarfundinum
Húsavík á þriöjudag upplýsti
Kristján Ásgeirsson, oddviti al-
þýöubandalagsmanna og ó-
háöra í bæjarstjórn, að minni-
hlutinn (sjálfstæðis- og alþýöu-
flokksmenn) hafi boöiö Alþýðu-
bandalaginu til nýs
meirihlutasamstarfs í bæjar-
stjórninni og freistað þeirra
meö tilboði um aö alþýðu-
bandalagsmenn mættu tilnefna
nýjan bæjarstjóra í staö Einars
Njálssonar, bæjarstjóra fram-
sóknarmanna. í ljósi þeirrar
pólitísku samstöðu, er myndaö-
ist á Akureyri fyrr í vetur um
samninga og viðskipti við Sölu-
miðstöö hraðfrystihúsanna,
þarf ekki að koma á óvart þótt
sú leið væri reynd á Húsavík að
ná samstöðu Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags um sömu leið. Fram hefur
komið að fylgjendur áframhald-
á andi viðsklpta fiskiðjusamlags-
ins við íslenskar sjávarafurðir
óttuðust að stigið yrði skref til
baka með því að færa viðskiptin
til Sölumiðstöðvarinnar, vegna
þess þróunarstarfs sem unnið
hefur veriö í samvinnu við ÍS.
Með tilkomu viðskipta við Sölu-
miðstöðina yrði að aðlaga fram-
leiðsluna þeim pakkningum
sem hún leggi meiri áherslu á,
og þar sem um minni full-
vinnslu væri að ræða, gæti það
þýtt minni atvinnu og samdrátt
framleiðslutekna. Ef litið er yfir
framgang málsins í bæjarstjórn
Húsavíkur og á hvern hátt af-
staða bæjarfulltrúa til útflutn-
ingsfyrirtækjanna skiptist eftir
stjórnmálaflokkum, er ekki
annað sýnt en hin pólitíska af-
staða hafi vegið þungt í þessum
málum, þótt hagsmunir heima-
manna hafi einnig komið við
sögu.
IDESiT
◄^ihdesit
Kæliskápur
GR 2600
• HæS: 152 cm
• Breidd: 55 cm
• Dýpt: 60 cm
• Kælir 187 Itr.
• Frystir: 67 Itr.
• Orkunotkun:
1.25 kwst/24 tímum
VerS kr.49.664,-
'sesö*
^►i'ndesit ►
Kæliskápur
GR 3300
• HæS:l 70 cm
• Breidd: 60 cm
• Dýpt: 60 cm
• Kælir:225 Itr.
• Frystir 75 Itr.
• Orkunotkun:
1.50 kwst/24 tíma
VerS kr. 58.350,-
Q
O
Ai^ihdesit
Kæliskápur
GR 1400
• HæS: 85 cm
• Breidd: 51 cm
• Dýpt: 56 cm
• kælir: 140 I.
• Orkunotkun:
0,9 kwt/24 tímum.
Verð kr. 29.350,
Ai^ihdesit
Kæliskápur
GR 1860
• HæS: 117 cm
• Breidd: 50 cm
• Dýpt: 60 cm
• Kælir: 140 Itr.
• Frystir 45 Itr.
• Orkunotkun:
1.15 kwst/24 tíma
Verb kr. 41.939,-
i^ihdesrt ►
Kæliskápur
GR 2260
• HæS: 140 cm
• Breidd: 50 cm
• Dýpt: 60 cm
• Kælir: 180 Itr.
• Frystir 45 Itr.
• Orkunotkun:
1.30 kwst/24 tíma
Verð kr. 47.280,-
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi.
Guöni Hailgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal
Vestfiröir: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi.
Rafverk, Bolungarvík.StraumurjsafirÖi.
Noröurland: Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavík.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.
Skagfiröingabúö.Sauöárkróki. KEA byggingavörur,
Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvik. Kf. Þingeyinga, Húsavík.
_ Urö, Raufarhöfn.
: ^ Austurland: Sveinn GuömundssQn, Egilsstööum.
BRÆÐURNIR O Kf. Vopnfirðinga, Vopnafiröi. Stál, Seyöisfiröi.
Verslunin Vik, Neskaupsstaö.
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfirði. KASK, Höfn
Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli.
Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. FIT, Hafnarfiröi
=)]ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 553 8820
INDEStT INDESIT (NDESIT iNDEStT iNDESIT INDESIT iNDESIT ÍNDESÍT ÍNDESiT tNDESiT 1NDE5IT iNDESIT