Tíminn - 20.05.1995, Blaðsíða 19
Laugardagur 20. maí 1995
19
Höfuðbein Egils
Skallagrímssonar
Aldrei hef ég getaö skiliö þá
menn, sem halda aö samtíöar-
sögur hljóti aö vera aö flestu
leyti réttari en þær sem eru
samdar eftir á. Menn reyni aö
ímynda sér hverskonar „saga"
þaö heföi oröiö af Jónasi Jóns-
syni, ef framsóknarmaður eöa
íhaldsmaður hefði tekið til við
aö semja hana áriö 1935. En ný-
leg saga um hann 60 árum síðar
(eftir Guöjón Friðriksson) virö-
ist hafa vel heppnast.
Aö sögurnar af Agli, Gretti og
Gunnari þurfi aö vera skáldsög-
ur af því að þær eru vel sagðar,
er boöskapur sem mínu geöi
hefur aldrei þóknast aö með-
taka. En þetta hefur veriö al-
mennt trúboö hér á landi um
áratugi. Jafnvel þegar annar eins
fræöimaöur og próf. Steblín-
Kamenskíj sagði hér berum orö-
um: „Viö vitum vel hvernig
skáldsagan varö til á Vestur-
löndum á 18. öld" og að þetta
skáldsögutai stæöist ekki, þökk-
uöu menn þessum Galíleó kurt-
eislega fyrir sig, en héldu svo
áfram aö boöa kenningu Aris-
tótelesar um fall hluta. Þaö er aö
segja sumir, því fjöldi manns
hefur vitað betur. En hinir voru
háværari.
Ævisaga Egils Skallagrímsson-
ar er einhver skemmtilegasta
saga sem rituð hefur veriö, en
Egill Skallagrímsson.
LESENDUR
hún er jafnsönn fyrir því. Eng-
inn sem les t.d. formála Sigurð-
ar Nordals að Egilssöguútgáfu
hans (1933) getur veriö í vafa
um, að hann fæst við hana fyrst
og fremst sem sagnfræðirit.
Honum tekst jafnvel aö leið-
rétta út frá henni hina marg-
endurteknu „12 ára skekkju" í
tímatali 9.-10. aldar, sem ein-
hverntíma haföi komist þar
inn. Samband atburöanna hef-
ur ráðið meira í hug Snorra en
einberar ártalaraöir.
Undarlegt er, ef einhverjir
halda, að það sé óviðurkvæmi-
legt að grafa upp líkamsleifar
frægra manna. Slíkt er gert víöa
um heim, vegna persóna frá
ólíkustu tímaskeiðum og vekur
oft mikla athygli; getur enda
haft verulega þýöingu fyrir
sagnfræöina, en hinsvegar held
ég þaö sé algert sérfyrirbæri hér-
lent, ef því er haldið fram, aö
sagnfræöi og fornleifafræði
megi ekki starfa saman.
Það á að grafa Egil upp. Það er
fyrsta skrefiö til þess aö átta sig á
sögunni að nýju, eftir 50 ára
ómenningu. Þaö er aö vísu al-
veg rétt sem próf. Þorsteinn Vil-
hjálmsson sagöi nýlega á fundi,
að meö því væru ekki öll atriði
sögunnar sönnuð — enda dett-
ur engum í hug, að öll smáatriði
hafi varðveist nákvæmlega. En
sögnin um upptöku beinanna
er sú sem stendur næst söguhöf-
undinum í tíma, og sannist
hún, verður allt auðveldara um
skilning. Einungis þeir, sem eru
hræddir við staöreyndir, geta
verið mótfallnir upptöku beina
úr Mosfellskirkjugaröi.
Þorsteinn Guðjónsson
DAGBÓK
ir
maí
140. dagur ársins - 225 dagar eftir.
20. vika
Sólris kl. 3.58
sólarlag kl. 22.53
Dagurinn lengist um
7 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Sunnudagur: Brids, tvímenn-
ingur, kl. 13 og félagsvist kl. 14 í
Risinu. Síöasti dagur í fjögurra
daga keppni. Dansaö í Risinu kl.
20 um kvöldið.
Næsta ferð félagsins verður 31.
maí kl. 13 frá Risinu. Ekiö verður
um Reykjanesið. Fararstjóri er Jón
Tómasson. Upplýsingar og skrá-
setning á skrifstofu félagsins, s.
5528812.
Flórgobadagur
Fuglaverndarfélagsins
Fuglaverndarfélag íslands hefur
nú í tvö ár staðið fyrir flórgoða-
degi og er ætlunin aö viðhalda
þeim sið að vekja athygli á þess-
um skrautlega og skemmtilega
fugli, sem á undir högg að sækja
og er í útrýmingarhættu hér á
landi.
Flórgoöadagurinn verður á
morgun, sunnudag, viö Ástjörn
sunnan Hafnarfjarðar. Þar munu
reyndir fuglaskoðarar veröa fólki
til leiösagnar og fróðleiks frá kl.
14 til 16 og segja frá flórgoðanum
og kynna hið fjölskrúðuga fuglalíf
sem náttúruperlan Ástjörn fóstrar
svo ríkulega.
Biðilsleikur flórgoða er einn
áhrifamesti sjónleikur í íslenskri
náttúru.
Sinfóníuhljómsveitin á
Suburlandí
Dagana 20. til 23. maí leggur
Sinfóníuhljómsveit íslands land
undir fót og er förinni heitið um
Suðurland. Að þessu sinni verður
leikiö á fjórum stöðum: Höfn í
Homafirði 20. maí, Kirkjubæjar-
klaustri 21. maí, Vík í Mýrdal 22.
maí og á Flúðum í Hrunamanna-
hreppi 23. maí. Hljómsveitarstjóri
í ferðinni verður Bernharður
Wilkinson.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt. M.a. verða leikin verk eftir
Anton Dvorák, Johann Strauss og
Leonard Bernstein.
Drekadans á
Laugaveginum
Um þessar mundir er Sjanghæ,
kínverska veitingahúsið á íslandi,
10 ára. í tilefni þess efnir veitinga-
húsiö til dreka-skrúðgöngu niöur
eftir Laugaveginum. Hefst hún kl.
15 í dag og lýkur á Ingólfstorgi. í
skrúðgöngunni verða dansarar og
trúðleikarar frá Kína, sem dansa,
berja bumbur, slá gjöll og láta öll-
um illum látum, skrýddir íburðar-
miklum og litskrúðugum klæön-
aöi.
í tilefni 10 ára afmælisins býöur
Sjanghæ sérstakan matseöil á
lækkuöu verði. Hægt er að fá fjóra
rétti ásamt súpu og eftirrétti á að-
eins kr. 1290 og fimm rétti meö
súpu og eftirrétti á kr. 1490. Fyrir
bjórglas með matnum greiöa
menn krónu fyrir hvert ár sem
Sjanghæ hefur starfaö, bjórinn
kostar því 10 krónur! í hádeginu
veröur sérstakur núðluréttamat-
seöill, þar sem allir réttirnir kosta
600 kr. 10% afsláttur er af öllum
öðrum réttum á matseölinum.
Afmælistilboðið gildir frá því í
dag, laugardag, fram á fimmtu-
daginn 25. maí, uppstigningar-
dag.
Sænsku stúdentasöngv-
ararnir syngja á íslandi
Stockholms Studentsángarför-
bund („Stúdentasöngvararnir")
eru nú staddir í söngferð á íslandi.
Fyrstu tónleikana halda þeir í
Keflavík kl. 20 sunnudagskvöldið
21. maí. Þá veröa tónleikar á Ak-
ureyri kl. 20.30 þriöjudaginn 23.
maí og þriðju og síöustu tónleikar
kórsins í íslandsferðinni verða í
Fella- og Hólakirkju í Reykjavík
fimmtudaginn 25. maí, uppstign-
ingardag, kl. 20. Karlakór Reykja-
víkur kemur einnig fram á þeim
tónieikum og syngur með sænska
kórnum.
Á efnisskrá Svíanna er kirkjuleg
tónlist, m.a. eftir Roulenc og Ma-
detoja, sígild sænsk karlakóralög,
m.a. eftir Alfvén og Petersson-
Berger og kvöldljóð eftir Söder-
man og fleiri.
Háskólafyrirlestur
Astrid Sæther, forsteamanuens-
is (dósent) og forstöðumaður
Stofnunar Ibsen-rannsókna við
háskólann í Ósló, flytur opinber-
an fyrirlestur í boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands mánudag-
inn 22. maí kl. 17.15 í stofu 101 í
Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist „Livsgle-
de og livsfornektelse. Nedslag av
Nietzsches tanker om det apoll-
oniske og det dionysiske i Ibsens
dramaer" og verður fluttur á
norsku.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Astrid Sæther flytur annan fyrir-
lestur með skyggnum á Ibsen-
kvöldi í Norræna húsinu á þriðju-
daginn. Hann verður kynntur
nánar síðar.
Fyrirlestur í Odda
Dr. Ole Ivar Lovaas prófessor
við University of California
(UCLA) heldur opinberan fyrir-
lestur í boði félagsvísindadeildar
H.í. n.k. mánudag, 22. maí. Fyrir-
lesturinn hefst kl. 16 í stofu 101 í
Odda og er öllum opinn. Hann
verður fluttur á ensku og nefnist
„Early behavioral intervention in
autism" og fjallar um atferlismeö-
ferð ungra bama með einhverfu. í
lokin mun dr. Lovaas svara fyrir-
spurnum frá áheyrendum.
Fréttir I vikulok
ísland úr leik
íslendingar náðu ekki markmiði sínu að komast í 8-liða úrslit
HM í handbolta. Þeir máttu þola stórtap fyrir Rússum í 16-liða
úrslitum og töpuðu fyrir Hvít-Rússum daginn eftir. Úrslitin eru
mikil vonbrigði og er nú veriö að leita að nýjum þjálfara, en
samningur liðsins við Þorberg Aðalsteinsson er runninn út.
15. sætift í Eurovision
Björgvin Halldórsson varð í 15. sæti í Eurovision, þannig að
enn verður bið á að ísland slái í gegn á þeim vettvangi.
Barni bjargab í
Kópavogslæknum
Stefán Arngrímsson bjargaði sjö ára dreng sem sat fastur í
Kópavogslæk. Þetta er í annað sinn sem Stefán bjargar barni frá
drukknun á þessum stað.
Hæg vorkoma
norban heiba
Voriö lætur enn standa á sér norðan heiöa. Sem dæmi má
nefna að enn er þörf á snjódekkjum á Norðurlandi.
Amalgam hættulaust?
Nýjar rannsóknir sýna að amalgam, sem notað er til tannfyll-
inga, er skaðlaust. Á Norðurlöndum hefur fólk rokið til síðustu
misseri og látið skipta um fyllingar.
Alþingi sett
Alþingi kom saman í vikunni og var þingsetning með hefð-
bundnum hætti. Búið er að skipa í allar nefndir, en ekki er ljóst
hve langt fram á vorið þingið stendur.
Þorskafli smábáta eykst
Þorskafli smábáta jókst um 17% í síöasta mánuði, úr 2.366
tonnum í 2.766.
Skógarbruni í
Þjórsárdal
Alvarlegur skógarbruni varð í Þjórsárdal, þegar bóndinn á
Skriðufelli hugðist brenna sinu. Sinubrunar eru bannaöir eftir
1. maí og hyggst Skógrækt ríkisins leggja fram kæru, enda tjón
á trjágróðri verulegt.
Nýr slökkvibúnabur
í gagnib
Brátt verður tekinn í notkun nýr tölvuhugbúnaður hjá
Slökkviliði Reykjavíkur, sem mun gera slökkvistarf markviss-
ara. Hægt veröur strax eftir útkall að fá upplýsingar um aö-
stæður á brunastað, sem áður voru ekki fyrir hendi.