Réttur - 01.10.1970, Síða 20
EINAR OLGEIRSSON:
Byltingarsinnub
kristni
i.
En vei yður, þér ríku, því að þér hafið tekið út
huggun yðar.1)
Sælir eruð þér, fátækir, því að yðar er guðs-
riki.2)
Auðveldara er fyrir úlfalda að ganga gegnum
nálarauga en fyrir rikan mann að ganga inn i guðs-
ríkið.3)
Vei yður, fræðimenn og Farísear, þér hræsnarar
. . . . Þér höggormar, þér nöðru-afkvæmi, hvernig
ættuð þér að geta umflúið dóm helvítis.'1)
Enginn þjónn getur þjónað tveimur herrum, því
að annaðhvort mun hann hata annan og elska hinn,
J) Lúkasar guðspjall 6, 24.
2) Lúkasar guðspjall 6, 20.
s) Matteusar guðspjall, 19, 24.
4) Matteusar guðspjall 23, 29 og 33.
156
eða aðhyllast annan og lítilsvirða hinn. Þér getið
ekki þjónað Guði og mammon.5)
Ætlið ekki að ég sé kominn til að flytja frið á
jörð; ég er ekki kominn til að flytja frið, heldur
sverð.0)
Ég er kominn til að varpa eldi á jörðina, og
hversu vildi ég að hann væri þegar kveiktur!7)
Það er enginn hörgull á svona tilvitnunum í ræður
meistarans frá Nasaret, þegar hann var að ,,æsa
upp lýðinn" forðum daga, enda var hann krossfest-
ur af þjónum rómverska keisaraveldisins og lepp-
stjórn þess í Gyðingalandi. Og svipuð örlög vofa
5) Lúkasar guðspjall 16, 13.
“) Matteusar guðspjall 10, 34.
’) Lúkasar guðspjall 12, 49.
■