Réttur - 01.10.1970, Blaðsíða 44
STAÐA VERKA-
LÝÐSSAMTAKANNA
Verkalýðssamtökin hafa mótmælt skerð-
ingarákvæðunum í frumvarpi ríkisstjórnar-
innar. Þau hafa bent á að með skerðingunni
og með því að kippa ákveðnum vöru- og
þjónustuliðum út úr vísitölugrundvellinum,
sé ríkisstjórnin að kippa grundvellinum und-
an samningunum frá 19. júní sl. og síðar.
Hefur miðstjórn Alþýðusambands Islands
lýst því yfir í einróma samþykktri ályktun,
að hún telji að samningarnir frá í sumar séu
úr gildi fallnir, verði stjórnarfrumvarpið sam-
þykkt. Og jafnframt hvatti miðstjórnin verka-
lýðsfélögin í landinu til þess að krefjast nýrra
samninga. Má því gera ráð fyrir því að vet-
urinn verði róstusamari en búizt hafði verið
við.
FLOKKSRÁÐSFUNDUR
ALÞÝÐU-
BANDALAGSINS
Alþýðubandalagið efndi til flokksráðs-
fundar í Reykjavík í októbermánuði síðla.
Á fundinum var fjallað um stjórnmálaástand-
ið, næstu verkefni Alþýðubandalagsins,
vinstrasamstarf og um náttúruvernd. Fundur-
inn tókst vel, umræður urðu miklar og já-
kvæðar og fundurinn hefði vafalaust orðið
mjög árangursríkur hefði undirbúningur ver-
ið sem skyldi. Alþýðubandalagið á enn í ýms-
um örðugleikum með framkvæmdaatriði
einkum vegna fjárskorts sem háir flokknum
mjög verulega.
Alyktanir flokksstjórnarfundar voru allar
birtar í Þjóðviljanum, en það sem kannski
var athyglisverðast var hvernig fundurinn tók
á málum og álykmnum um vinstrasamstarf
og álykmn um náttúruvernd.
Þetta mun hafa verið í fyrsta sinn sem
stjórnmálaflokkur tekur náttúru- og um-
hverfisvernd til sérstakrar umræðu á fundi í
einni af æðsm stofnunum flokksins. Umræðu-
grundvöllurinn varð greinargóð ræða Hjör-
leifs Guttormssonar líffræðings í Neskaup-
stað, en Hjörleifur hefur unnið merkt braut-
ryðjendastarf á sviði náttúruverndar á Ausmr-
landi. Á grundvelli framsögu Hjörleifs gerði
flokksráðsfundurinn samþykkt um náttúru-
verndarmál, sem einnig hefur verið birt í
Þjóðviljanum.
Flokksráðsfundurinn samþykkti að síðla
vetrar skuli haldin landsráðstefna Alþýðu-
bandalagsins. Þá var samþykkt að fela mið-
stjórn að setja niður nefnd til þess að endur-
skoða flokkslögin og samþykkt var að gera
ráðstafanir til þess að flýta sem mest gerð
fræðilegrar stefnuskrár flokksins.
Fyrsti fundur miðstjórnar Alþýðubanda-
lagsins hefur verið haldinn og var kosin fram-
kvæmdastjórn Alþýðubandalagsins. Formað-
ur framkvæmdanefndar er Guðmundur Vig-
fússon.
ÁLEITRIÐ
Allmiklar umræður hafa átt sér stað vegna
eitrunar frá álverksmiðjunni —— flúoreitrunar.
Hófust þær umræður á nýtt stig í haust er
Ingólfur Davíðsson grasafræðingur birti úr-
slit könnunar er hann hafði gert á flúor-
mengun í nágrenni álverksmiðjunnar. Kom
í Ijós —- eins og raunar hafði verið gizkað á
áður — að mengun er mjög veruleg og
háskaleg lífríki í grennd verksmiðjunnar. Ný-
lega birti sérstök rannsóknarnefnd á vegum
Isals fréttir af könnun sinni og þrátt fyrir
það að reynt væri að draga sem mest úr meng-
un í skýrslunni var viðurkennt að flúormeng-
un í grasi í grennd verksmiðjunnar næmi því
magni sem getur orðið dýrum háskalegt. Tré
180