Réttur - 01.10.1970, Page 45
og runnar í grennd álverksmiðjunnar eru að
drepast og hefur álverksmiðjan orðið að
borga skaðabætur til eigenda lands í grennd
verksmiðjunnar. Magnús Kjartansson hefur
flutt á Alþingi tillögu um að tafarlaust skuli
sett hreinsitæki í verksmiðjuna til þess að
draga úr hættum mengunarinnar. Má vænta
að á næstunni verði gert út um þetta mál á
alþingi, en forsætisráðherra Jóhann Hafstein
hefur viðurkennt að ríkisstjórnin geti hvenær
sem er skipað Isal að setja upp hreinsitæki í
álverksmiðjunni.
VINSTRASAMSTARF
í haust kom frá þingflokki Alþýðuflokks-
ins tilboð til þingflokks Alþýðubandalagsins
um viðræður um vinstrasamstarf. Samskonar
boð var einnig sent hannibalismm. Þingflokk-
ur Alþýðubandalagsins svaraði samstarfstil-
boðinu jákvætt og lýsti þingflokkurinn sig
reiðubúinn að koma á fund með þingflokki
Alþýðuflokksins — að vísu 17 tímum seinna
en Alþýðuflokkurinn hafði gert ráð fyrir í
upphafi. Vegna þessa — að þingmenn Al-
þýðubandalagsins kusu heldur að mæta á
fundi kl. 10 á föstudagsmorgni en kl. 17 á
fimmtudegi, gekk einn þingmanna Alþýðu-
bandalagsins úr þingflokknum, það er Karl
Guðjónsson. Þessi úrsögn Karls kom fáum á
óvart — Alþýðubandalagsmenn hafa lengi
vitað að hann væri óánægður innan þing-
flokksins og hann hefur aldrei verið flokks-
maður í Alþýðubandalaginu. Kjördæmisráð
Alþýðubandalagsins á Suðurlandi fordæmdi
vinnubrögð Karls og skoraði á hann að láta af
þingmennsku og afsala þingsæti sínu til vara-
manns. Þessu hefur Karl neitað.
Það hefur svo komið í ljós að Karl Guð-
jónsson og hannibalistar hafa ekki meiri á-
huga á vinstra samstarfi en svo að þeir neita
að mæta á viðræðufundum með Alþýðu-
bandalaginu og Alþýðuflokknum. Er talið
líklegt að þeir kjósi heldur að sitja á einmæl-
um við Gylfa Þ. Gíslason og aðra þingmenn
Alþýðuflokksins vegna þess að þeir séu að
tryggja sína persónulegu valdastöðu, þ. e.
þingsæti, með hrossakaupum við Alþýðu-
flokkinn.
NÝR TÖNN
Nýlega voru haldin þing Sambands bygg-
ingamanna og Málm- og skipasmiðasam-
bandsins. Þing þessi sendu frá sér merkar
ályktanir um kjara- og atvinnumál, sem hafa
verið birtar í heild í Þjóðviljanum.
I ályktun Sambands byggingamanna kveð-
ur við nýjan tón í ályktun frá verkalýðssam-
tökum. Þar er bent á hið augljósa samhengi,
sem hlýmr að vera milli baráttu verkalýðs-
samtaka og stjórnmálabarátm verkalýðsins.
Fer hér á eftir lokakafli álykmnar Sambands
byggingamanna — en álykmnin var sam-
þykkt samhljóða á þingi þeirra.
„Barátta verkalýðshreyfingarinnar hefur
einskorðazt við faglegu hliðina. Komið hefur
í ljós, að hana skortir vald til að tryggja þann
árangur sem næst í einstökum átökum.
Verkalýðsstéttin á Islandi á því fyrir höndum
langvinna barátm. I þeirri barátm verða kjara-
átökin aðeins hluti af annarri, sem stefnir
miklu lengra, stefnir að því að ná yfirráðum
yfir öllum valdastofnunum þjóðfélagsins.
Framundan em pólitísk átök, sem standa
munu árum saman. Hver kjaradeila, hverjar
kosningar til þings og sveitarstjórna eiga
framvegis að verða leið að sama marki. Því
að hversu mikill sem árangur hverra átaka á
vinnumarkaði kann að verða, verður hann að
engu, ef almenningur velur þau öfl til póli-
tískrar forysm, sem hann berst við í hinni
faglegu barátm." — sv.
181