Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 15
Just Lippe
látinn
Stundum berast oss lregnir um fráfall
gamalla vina og félaga úr heimshreyfingu
kommúnista seint og síðar meir. Á pásk-
unum í fyrra lést Just Lippe, ótrauður
baráttumaður og tryggur vinur, sem ég
alltaf heimsótti, ef ég kom til Osló.
Just Lippe var fæddur 13. jauúar 1904.
Seytján ára gamall, 1921. gekk hann í
norska Verkamannaflokkinn, sem þá var
í Alþjóðasambandi kommúnista. Við
vorum löngum samferða á baráttuleið-
inni, því sama ár gekk ég í Alþýðuflokk-
inn, hið rauða Jafnaðarmannafélag
Reykjavíkur. Á árunum 1925-29 var
hann ritari Sambands ungra kommúnista
í Noregi og hlóðust síðan á hann fjöldi
trúnaðarstarfa í hreyfingunni, heima og
erlendis. Hann var í stjórn Alþjóðasam-
bands ungra kommúnista, kennari við
Leninskólann í Moskvu um tíma, í mið-
stjórn norska kommúnistaílokksins og
löngum blaðamaður við „Arbeideren",
aðalblað flokksins.
Just Lippe
Just Lippe var einarður baráttumaður
gegn fasismanum og lagði í að komast til
Englands um Svíþjóð til þess að ganga í
norska herinn. Hann varð að sitja all-
lengi í sænsku fangelsi áður en jrað tæk-
ist. Og er til Englands kom kynntist
hann í norska hernum því steinblinda
afturhaldi, sem pá var á vissum háum
stöðum, ef kommúnistar áttu í hlut. -
Hákon konungur var gersamlega laus við
þá galla. -
Það er eftirtektarverð sagan, sem Lippe
segir1) frá um framkomuna við Nordal
Grieg í því sambandi:
Sven Nielsen, hægrimaður, er sæti átti
í norsku stjórninni í London, krafðist
jæss að Nordal Grieg væri bannað að lesa
upp kvæði sín í norska Lundúnaútvarp-
inu. — Fyrir okkur, sem hlustuðum á
95