Réttur - 01.04.1979, Side 22
Hér heima hrópa hinsvegar atvinnurek-
endur og braskaralýðurinn - í hvert sinn
er verkaiýðurinn hækkar kaup, sem er
helmingi lægra en í Skandinavíu - á rík-
ið: að það verði að hækka verðlagið,
hækka álagninguna, ábyrgjast útgerð
sína o. s. frv. - og láta svo blöð sín böl-
sótast út af öllum ríkisafskiptum um leið!
Islenska yfirstéttin gerir með verð-
bólguaðferð sinni þjóðfélagið að útung-
unarbæli fyrir braskara. — Hvaða 250
þúsund manna bær eða borgarbluti er-
lendis myndi balda uppi 1000 beildsöl-
um, tugum tryggingafélaga, þrem olíu-
félögum auk alls þess þunga, sem illa rek-
inn atvinnurekstur, of margir bankar og
önnur yfirbygging væri slíku bæjarfélagi?
Braskbákn yfirstéttanna er að sliga
íslenska þjóðfélagið - og er orðin ópol-
andi byrði þeirri alþýðu er undir því
stendur með þrotlausri vinnu sinni.
bað er þetta braskbákn, sem verður að
skera niður, það er óreiða þess í efna-
hagslífinu, sem verður að uppræta, það
er gróðalind braskaranna, verðbólgan,
sem verður að stöðva án þess að grípa til
atvinnuleysis.
I stjórnarsáttmálanum stendur m.a.:
„Rikisstjórnin mun vinna að félags-
legum umbótum. Hun mun leitast við
að jafna lífskjör, auka félagslegt rétt-
lœti og upþrceta spillingu, misrétti og
forréttindi.“
„Unnið verði að gerð þjóðhags- og
framkvæmdacuetlunar, sem marki m.a.
stefnu í atvinnuþróun, fjárfestingu,
tekjuskiptingu og kjaramálum.“
„Mörkuð verði gerbreytt fjárfest-
ingarstefna. Með samrœmdum aðgerð-
um verði fjárfestingu beint í tcekni-
búnað, endurskipulagningu og hag-
rœðingu í þjóðfélagslega arðbœrum at-
vinnurekstri. Fjárfesting í landinu
verði sett undir stjórn, sem marki
heildarstefnu i fjárfestingu og setji
samrœmdar lánareglur fyrir fjárfest-
ingarsjóðma i samráði við rikisstjórn-
ina.“ ,
„Leitað verði nýrra leiða til að lcekka
verðlag í landinu. Sérstaklega verði
stranglega hamlað gegn verðhcekkun-
um í oj)inberri þjónustu og slíkum
aðilum gerl að endurskoða rekstur
sinn með tilliti til þess.“
„Skipulag og rekstur innflutnings-
verslunarinnar verði tekið til rœkilegr-
ar rannsóknar. Stefnl verði að sem hag-
kvœmustum innflutningi á mikilvœg-
um vörutegundum, m. a. með útboð-
um.“
Það vantaði ekki frekar en vant var lof-
orðin um skynsamlega stjórn á efnahags-
lífinu bjá Framsókn, meðan hún var að
komast í stjórn, — en svo kom að spurn-
ingunni um efndirnar.
102