Réttur - 01.04.1979, Síða 23
II.
Hvað verður ofan á í ríkisstjórninni?
Á „loðna loppan“ og afturgöngur „viSreisnaráranna að fá að ráða? - eða tekst að
fá ríkisstjórnina til þess að leggja til atlögu við verðbólguvaldann: afætubákn heild-
sala og braskara og skipuleggja allt íslenskt atvinnulíf af viti og réttlæti?
„Síðasta þingi heilsaði verkalýðnum
með vonum. Komandi þing verður
lieilsað með spumingum." Svo var sagt
um fyrsta þing fyrstu Framsóknarstjórn-
arinnar á Islandi.4) Og svo er enn.
Sósíalistar hafa knúið fram nokkur um-
bótamál. Eftirlit með gjaldeyrisbraski
verður hert. Rannsóknarnefnd hefur
verið sett í olíumálin. (Sjá nánar um
fleiri mál í innl. víðsjá.)
En hin stóra atlaga að undirrót verð-
bólgunnar: valdi atvinnurekenda til að
velta hverri kauphækkun af sér út í verð-
lagið og vaða svo áfram í sama sukkinu
og fyr - hún hefur ekki verið hafin. Lof-
orðin um „að u]tpræta spillinguna, mis-
rétti og forréttindi" hafa ekki verið efnd.
Heildsalarnir þúsund, olíubáknin þrjú,
Lryggingafélógiu tugum saman, óreiðan
í atvinnurekstrinum - allt er yfirstéttar-
báknið ósnert. Það bólar ekki á viðleitni
til að skipuleggja allt atvinnulífið, þurrka
burtu „kommissara“-kraðakið og leggja
grundvöll að vitrænum áætlunarbúskap
lyrir allt íslenska þjóðarbúið, jrar sem
heildaryfirsýn ráði, en ekki þröngsýn
hreppapólitík.
Alþýða íslands - og alveg sérstaklega
verkalýðshreyfingin öll - verður að átta
sig á því að stéttabaráttan er líka háð inn-
an ríkisstjórnarinnar, þegar um vinstri
stjórn er að ræða, - og að þar er við
ramman reip að draga.
Verkalýðshreyfingin verður að vera
minnug fyrri viðureigna sinna undir slík-
um skilyrðum. Alþýðan hefur áður feng-
ið að kenna á því að vilhjálmar peninga-
og spillinga-valdsins í Framsókn hafa sett
framsæknari öflum þar og annarsstaðar
stólinn fyrir dyrnar, jafnvel svínbeygt
forustuna þar í krafti peningavalds síns.
íslensk verkalýðshreyfing man að
Framsókn var látin slíta stjórnarsamstarfi
óbeinu við Aljjýðuflokkinn út af kaup-
gjaldsmálum 1931, var látin reka Alþýðu-
flokkinn úr ríkisstjórn 1938 með gerðar-
dómi gegn sjómönnum, að Framsókn
sprengdi möguleika vinstri stjórnar 1942
með kröfu um kauplækkun - og sprengdi
síðan sjálfa sig út úr þátttöku í nýsköp-
unarstjórninni haustið 1944 með kröfu
um kauplækkun. Framsókn eyðilagði
afreksríka vinstri stjórn í desember 1958
með kröfu um kauplækkun og fór svipað
að 1974.
Sporin hræða því, þegar um stjómar-
samstarf við Framsókn er að ræða. Og Jdó
veit verkalýður íslands að Jrað eru ekki
sannir samvinnumenn og vinnandi bænd-
ur og sveitaalþýða, sem Jjessum ósköpum
veldur.
103