Réttur - 01.04.1979, Síða 34
Ung kona i þýska alþýðulýðveldinu.
fleira er öðruvísi en við höfum hugsað?“
spyr páfi. „Guð er kona,“ svaraði geim-
farinn. „Við látum þetta ekki fara
lengra,“ kvað páfi.
En Bebel ræðir ekki aðeins alla for-
tíðina og söguþróunina í þessari merki-
legu bók. Hann reynir og að lýsa nokk-
uð framtíðarþjóðfélagi sósíalismans og
segir þar m.a. þessi orð, sem eiga erindi
til okkar nú, er við hugsum um hvernig
móta skuli hið sósíalistíska mannfélag
framtíðarinnar:
„Þeirri hugmynd að skoðanadeilur
verði bældar niður í mannfélagi sósíal-
ismans, geta þeir einir haldið fram, sem
álíta borgaralega jrjóðfélagið fullkomn-
asta stig mannfélagsins og reyna því
vegna fjandskapar við sósíalismann að
rægja hann og gera lítið úr honum.
Mannfélag, sem reist er á fullkomnum
jöfnuði og lýðréttindum, þekkir ei né
jrolir neina kúgun. Aðeins hið fullkomn-
asta skoðanafrelsi gerir stöðugar fram-
farir mögulegar, en jrær eru lífsskilyrði
mannfélagsins." Og hann bætir við síð-
an, er hann hefur tætt sundur blekking-
ar yfirstéttanna í þessum efnum: „Raun-
verulegt skoðanafrelsi er í Jreirra augum
jrað liættulegasta af öllu illu.“3)
Bók Bebels - jrótt aldargömul sé - hef-
ur því sósíalistum beggja kynja og alþýðu
allri margan boðskap og fræðslu að færa.
SKÝRINGAR:
1. i „Rétti" 1975, bls. 26-28.
2. „Stiidies in Ancient Greek Society, tlie Prehistoric
Ægean" Lawrence & Wishart, London. 1949
kom 1. útgáfan.
•'i. Þessar tilvitiianir eru í útgáfuna þýsku 1922.
(Þá voru prentuð eintök merkt 176-180 þúsund.)
Utgáfufélagið „Zeit im Bild“ í Dresden, Þýska
alþýðulýðveldinu, hefur gefið út bók á ensku
til að minnast 100 ára afmælis „Konunnar og
sósíalismans" og heitir hún „Konur í DDR."
Nokkrar myndir úr þeirri bók eru notaðar hér.
--------------------------
Greiðið
áskrift
með útsendum
gíróseðlum
sem fyrst
RÉTTUR
V______________________________y
114