Réttur - 01.04.1979, Síða 35
„SALT 11“
undirritaður
En hindra hœttulegustu morðvargar heims -
herdrotnar Bandarikjanna - samþykkt samn-
ingsins?
Samningurinn um að draga úr kapphlaupi Bandaríkjanna og Sovétríkjanna um smíði
hættulegustu gereyðingarvopnanna, var undirritaður í Vínarborg í júní af þeim Bres-
hnef og Carter. Vitað er að sá samningur verður samþykktur af æðsta ráði Sov
étríkjanna. í því er enginn einstaklingur, sem græðir á vopnaframleiðslu. Það veit
hvert mannsbarn í því mikla landi að vopnaframleiðslan dregur úr lífsgæðum hvers
einstaklings, en er því miður óhjákvæmileg til varnar, því Bandaríkin hafa þegar
vopn til að drepa hvert mannsbarn á jörðunni tíu sinnum - ef einhver skyldi ganga
aftur.
En það er þegar vitað að meirihluti
öldungadeildar Bandaríkjanna er á móti
samþykkt samningsins. Það þarf hins-
vegar % meirihluta tii að eyðileggja
hann, ef Carter lætur hart mæta hörðu.
Og hverjir eru það, sem standa á bak
við þessa öldungaráðsþingmenn, sem
vilja fá vitfyrringu vígbúnaðarins í
brjálað kapphlaup á ný? Hverjir eru
það, sem láta kjósa þessa þingmenn, -
múta þeim, - eiga þá?
I'að eru voldugustu auðhringir Banda-
ríkjanna. Þeir græða meir á vopnafram-
leiðslu en nokkru öðru - og þar er ör-
uggur ótæmandi markaður, sem gefui
sívaxandi gróða: það er ríkið sjálft, sem
kaupir og borgar. Þessvegna vilja jieir
stóraukna vopnaframleiðslu.
Það var sjálfur Eisenhower, hershöfð-
ingi og forsetinn, sem í skilnaðai'ræðu
sinni varaði Bandaríkjaþjóð við þessum
glæframönnum: hernaðar- og stóriðju-
klíkunni (the military - industrial com-
plex.) (M. a. s. hann sá glötunina, er
blasti við ef þessi auðhringaklíka, þessir
„stórkaupmenn dauðans“ fengju sitt
fram.
115