Réttur - 01.04.1979, Side 38
GuSmundur Guðmundsson
Guðmundur Jóhann Arason
Saga Alusuisse
Árið 1886 fundu Frakkinn Herault og
Bandaríkjamaðurinn Hall hvor í sínu
lagi upp aðferð til að vinna ál („primary
aluminium") úr súráli („alumina") í
bráðnu krýolíti með rafgreiningu (mynd
l)2. Aðferðin er ákaflega orkukræf, og
var því ekki að furða að fyrstu verksmiðj-
urnar í Evrópu, sem unnu ál með þess-
um hætti, voru reistar í Sviss, landi ódýrr-
ar fallorku.
Árið 1888 var félagið Aluminiurn-
Induslrie-AG (AIAG, síðar Alusuisse)
stofnað í Neuhausen í Sviss, og var sam-
vinna við Herault þann franska tryggð
frá upphafi. Fram að aldamótum vann
félagið kappsamlega að því að koma und-
ir sig fótunum, stofnaði fyrirtæki í Þýzka-
landi og Austurríki, og komst yfir
báxítnámu í S-Frakklandi. Skjótur vöxt-
ur AIAG hélst í hendur við ört vaxandi
eftirspum eftir hinum nýja málmi, eink-
um frá hernum.
Allt frá aldamótum og fram til 1945
verður vöxtur fyrirtækisins mestur í
syðsta fylki Sviss, kantónunni Valais
(Wallis), en þar á áin Rhone upptök sín
og því gnægð ódýrrar fallorku. Fljótlega
fengu AIAG og stórfyrirtækið Lonza AG
(efnaiðnaður) geysisterka stöðu innan
þessa héraðs.3 Ekki gekk vöxtur AIAG
átakalaust fyrir sig. Tvívegis, 1917 og
118