Réttur - 01.04.1979, Blaðsíða 51
„Flóttinn“ frá Víetnam
Fréttastofa auðvaldsins básúnar nú
„flóttann frá Víetnam" út um allan
lieim - og auðvitað bergmálar „amer-
íska“ fréttastofa ríkisútvarpsins í Reykja-
vík það sama skýringarlaust.
Af liverja flýja menn frá Víetnam?
í fyrsta lagi af því blóðhundastjórnin
í Washington lét í 7 ár eins mikln
sprengjumagni rigna yfir þetta litla land
eins og hent var yfir Evrópn og Afríku
í síðustu heimsstyrjöld. Þess utan köst-
uðu Bandaríkjamenn ægilegu eitur-
rnagni yfir akra og skóga landsins til þess
að gera stóra hluta landsins óbyggilega
í heilan mannsaldur. Það er níðingsskap-
ur Bandaríkjastjórnar, sem veldur því að
itiargir verða nú að flýja, sem ella kysu
að vera kyrrir. - Kerling sú, sem nú er
forsætisráðherra Breta fjargviðrast nú út
í Víetnama út af flótta þessum. En hún
hélt kjafti, meðan manndrápssprengjum
rigndi yfir land þeirra. Þá voru vinir
hennar og bandamenn að verki. Hún má
segja sem gömul kerling ein íslensk:
„Þagað gat ég þó með sann,
þegar hún Skálholtskirkja brann.“
I öðru lagi flytja nú frá Víetnam fjöldi
‘Uiðugra stríðsgróðamanna og annar lýð-
ur, er jrreifst vel og græddi á hernámi og
hryðjuverkum Kananna í Víetnam.
^fargt kaupmanna í jressum löndum eru
uf kínversku bergi brotnir. Þetta fólk
kaupir skipráðendur til að flytja sig -
og þeir skipráðendur eru oft svindlarar
hinir mestu, reyna að feta í fótspor
bandarískra braskara. Er því ei von að
vel fari.
Ef réttlæti ríkti ætti að skylda Banda-
ríkin til að taka við öllum flóttamönnum
frá Víetnam og Pentagon og CIA til að
kosta uppihald jreirra. Það mætti þá drag-
ast frá hernaðarútgjöldunum. - Það er
ekki sanngjarnt að víetnömsk börn verði
að blæða fyrir glæpi Bandaríkjaauðvalds-
ins. Nógu mörg víetnömsk börn hafa orð-
ið að deyja vegna blóðhundanna frá My
Lai etc.
Börnin í Bandaríkjunum
Mondale, varaforseti Bandaríkjanna,
varð eitt sinn að viðurkenna eftirfarandi:
„Það er ekkert auðveldar í amerísku
þjóðlífi en að láta sér sjást yfir vandamál
barnanna. Þau gera ekki verkfall. Þau
bara eru þama.“
í þessu ríkasta landi heims eru 800.000
börn á aldrinum 8-15 ára neydd til jress
að vinna marga klukkutíma á dag fyrir
smánarlaun. — í landinu eru allt að 23
miljónum manna, sem ekki kunna að lesa
eða skrifa.
Oslo-Moskva
22.-26. maí var sendinefnd norska
Verkamannaflokksins í boði Kommún-
istaflokks Sovétríkjanna. Norðmennirnir
131