Réttur - 01.04.1979, Blaðsíða 53
í sendinefndinni vorn: Reiulf Steen, for-
maður flokksins, Gro Harlem Brundt-
land, varaformaður, Gutorm Hansen,
forseti Stórþingsins, Jon Halvorsen for-
seti Alþýðusambandsins, og fleiri. Þann
25. maí hitti nefndin sérstaklega þá
Suslov, Ponomarjqv og Schaposchnikow,
— alla aðalmenn alþjóðanefndar flokksins,
svo og A. Schibajew, forseta Alþýðusam-
bandsins og ræddi ýtarlega við þá.
Tölur til umhugsunar á barnaári
Það fæðast 80 miljónir barna á jörð-
inni á hverju ári. - Hvemig er heimur-
inn, sem þau fæðast í?
600 miljónir barna, eða um 40% allra
barna í heiminum, búa við eymd. 200
miljónir barna svelta. 80.000 börn deyja
daglega úr hungri.
Þeir, sem urðu að blæða fyrir árásir
Bandaríkjanna á Víetnam, voru 60%
börn. Stríðið í því landi skildi eftir sig
800.000 munaðarlaus böm.
Páfinn í Póllandi
í síðasta hefti ,,Réttar“, bls. 76-77, var
sagt frá heimsókn pólska páfans nýkjörna
í Mexíco og hvernig hann ráðlagði prest-
um rómönsku Ameríku að skifta sér ekki
af stjórnmálum: m. ö. orðum: leyfa harð-
stjórunum þar að myrða alþýðu manna
óáreittir og auðvaldinu að valda alþýðu
fátækt og eymd.
í júní kom hann til Póllands. Þar
hvatti hann kirkjunnar þjóna til að skifta
sér af stjórnmálum — eins og ,,Rétt“ hafði
grunað.
Hvað veldur?
A kirkjan að vera hlutlaus, ef alþýða
er svift möguleikum til að afla sér fæðis
og klæðis, frumstæðustu mannréttinda?
Páfinn mætti minnast dæmisögunnar
um unga manninn, sem vildi fylgja Jesú
frá Nasaret, en fór í burt, er Jesú sagði
honum að selja eignir sínar og gefa fá-
tækum, jrví hann átti „miklar eignir“.
Vatikanið, páfastóllinn, er með ríkustu
stofnunum heims, einnigað hlutabréfum
í miklum gróðafyrirtækjum.
Er jrað máske Jressvegna að páfi vill
ekki iáta presta og fylgjendur kaþólsku
kirkjunnar berjast gegn blóðidrifnum
harðstjórum, sem um leið eru leppar
amerísks auðvalds?
Eða er það bara ofstæki gegn sósíal-
isrna, sem hér er að verki?
Nicaragua
Uppreisn þjóðfrelsissinna, Sandinista,
aean blóðhundinum Somoza, sem með
Bandaríkjaher að bakhjarli, hefur ki'igað
þjóðina og |)jáð, hefur verið hin víðtæk-
asta til Jressa. Harðstjórinn lætur hins-
vegar bandarískar eldflaugar og fallbyssu-
skothríð dynja yfir fátækrahverfi borg-
anna, drepa fólkið og leggja hýbýlin í
rústir. Brátt virðist nú útkljáð að Jrað
takist að steypa þessari blóðstjórn.
En hitt er ljóst hverjir vildu halda
henni við:
Aljrjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF)
ákvað að veita Somoza-stjórninni lán að
upphæð 67,700,000 dollara. Og Export-
Import bankinn, sem ýmsir íslendingar
kannast við, ákvað að ábyrgjast 30-40
milljónir dollara, sem er andvirði birgða,
er Somoza-stjórninni voru sendar!
Vitað er að Somoza-ættin, sem scilsað
hefur undir sig allan þorra stóreigna og
stórfyrirtækja í Nicaragua í 40 ár, hefur
aðeins haldið einræðisvöldum sínum í
skjóli bandárfskra vopna og mútna.
Var einhver að tala um að Bandaríkin
væru verndari lýðræðis í heiminum?
133