Réttur


Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 56

Réttur - 01.04.1979, Qupperneq 56
w NEISTAR Framsýni foringjans Carter, forseti voldugasta rikis á jörðunni, sagði m.a. í ræðu fyrir íranskeisara á gamlárskvöld 1977, er hann kvaddi hann í Teheran: „Sökuin liinna framúrskarandi forustuhæfileika kcisarans er íran eyja staðfcstunnar í órólegustu landsvæðum heimsins. Það er tákn virðingarinnar fyrir yður, keisari góður, tákn forustu yðar, tákn fyrir aðdáun þá og ást, sem þjóð yðar ber til yðar. I>að er mikils- vert, að við höfum gagn af raun- sæi álits yðar og góðum ráðlegg- ingum yðar. Málstaður mannrétt- indanna cr virtur jafnt af leið- togum beggja Ianda vorra. Ekk- ert land jarðarinnar er eins mikif- v;egt fyrir oss sem yðar, hvað hern- aðarlegt öryggi snertir. Vér höf- uin ekki eins náið samband og gagnkvæm skoðanaskipti við neitt Iand sem yðar, hvað vandamál þessa landsvæðis snertir. Það er cnginn sá ríkisleiðtogi til, sem vér eigum meiri þakkarskuld að gjalda né erum tengdir sterkari og per- sónulegum vináttuböndum við en yður." „Alræði braskaranna" „Það stjórnarfar, sem myndi skapast hér á landi, ef íhaldið fengi meirihluta væri alræði brask- aranna - versta og skaðlegasta stjórnarfar, sem til er f heiminum, þegar skipulag kommúnismans er undanskilið. I'að eru braskarar, sem ráða Sjálfstæðisfl., og þcir myndu nota valdaaðslöðuna án minnstu iniskunar og tillitssemi. .........íhaldið myndi vissulega misbeita þannig valdinu, ef það fengi það einsamalt, að eftir það yrði ekki til lýðræði á íslandi nema að nafninu til. Og ekki myndi horfl í það að þiggja er- lenda aðstoð, ef völdin yrðu ekki tryggð með öðrum hætti. Þetta geta menn bezt dæmt um, ef þeir kynna sér, hvernig alræði braskaranna hefir gefist, þar sem það hefir koinizt á í Suður-Amer- (ku. Samanburður eins og sá, að bera saman Sjálfstæðisflokkinn og brezka íhaldsflokkiiin, er ekkert annað cn heimskulegur hugar- burður. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki fýðræðissinnaður íhaldsflokk- ur, er stendur á gömlum og þjóð- legum tnerg, lieldur valdatæki ófyrirleitinna braskara cins og fhaldsflokkarnir í Suður-Ameríku eru.“ „Úr leiðara Timans 2. okt. 1954: „Baráttan gegn alrrcði braskar- anna." Seint vitkast sumir, en . . . Sósíalistar 1948: „Reynslan hafði einnig sýnt, að útgerðarauðvaldið brást í þessari samvinnu þjóðarinnar, jafnvel þótt um þess eigin hagsmunamál væri að berjast, ef stéttar- og gróða- tengsl þess við verslunarauðvaldið væri í vcði. Þessa reynslu þarf jzjóðin að hafa í buga, þegar hún ræðsl í næstu og stærstu áfang- anna á Ieið draumsjóna aldamót- anna til veruleika. Þessi áfangi er: virkjun foss- anna i stærsta stíl, sem hægt er, sköpun stóriðju á grundveili þeirrar ódýru orku, er þarmeð fengist og mikil aukning iðnað- arins, - og vélbylting í landbún- aðarins samfara visindalegri hag- nýtingu landsins til margbreyti- legri ræktunar en nú er. Með því átaki sem gert liefur verið í sjávarútveginum 1941—10 og því framhaldi sem óhjákvæmilega leiðir af Jiví (fiskiðnaði og vísinda- legri nýtingu fiskjarins og allra efna í honum) er stigið það stóra spor til Iiagnýtiugar þeirra auð- linda, sem fiskimið vor eru, að varl verður stigið lengra á þeirri braut án stóraukinnar hættu á of fljótri eyðileggingu fiskimið- anna." .. . „Framhald nýsköpunar í at- vinnulífinu verður því ekki að auka stórum fiskveiðar frá því, sem nýbyggingarráð gerði áætlun um að yrði utn 1950-51, heldur að skapa nýja atvinnugrein í viðbót eða gerbreyta svo gamalli, að ný- sköpun sé. Og þessi atvinnugrein er iðnaðurinn." E. O. i „íslensk stóriðja i þjón- ustu þjóðarinnar", i „liétti" 1948, bls. 227-28. Morgunblaðið 1979: Fyrirsögn: Niðurstaða þriggja ungra vísindamanna varðandi fisk- veiðar: 40-60% minni sókn skilar miklum arði. . .. „Árið 1950 var fiskiskipa- floti okkar hæfilega stór, en stærri floti hefur ekki aukið aflann, held- ur jjverl á móti minnkað liann. Með því að reka útgerðina með fullri hagkvæmni gæti hún skilað 50 miljarða kr. arði í slað jjess að vera á núlli eins og í dag.“ Morgunblaðið 25. júni 1979. 136

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.