Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur
1988 — 3. hefti
Tveir sögulegir atburðir gerðust í lok septembermánaðar, annar aust-
ur í Sovétríkjunum, hinn hér á voru landi.
Austur í Moskvu tókst Gorbatshoff á fundi miðstjórnar flokks og á
þingi að knýja fram stórbreytingar á forustu flokksins, þannig að all-
margir afturhaldssinnaðir embættismenn viku úr sætum sínum fyrir
yngri og róttækari mönnum. Tókst þetta giftusamlega og friðsamlega,
þótt ýmsir erfiðleikar hafi auðvitað verið þar á.
Vafalaust verður nú smátt og smátt reynt að koma á svipaðri skipan í hin-
um sósíalísku löndunum og mun vissulega ekki af veita sumstaðar. En tví-
mælalaust verður það að gerast með varúð og taka sinn tíma. — Það er gott
að muna, að þegar „vorinu11 var á komið í Tékkóslóvakíu fyrir 20 árum þá sáu
m.a.s. sumir forsprakkarnir og samstarfsmenn Dubceks, að of hratt varfarið,
eins og Mlynar getur sérstaklega um í endurminningabók sinni. — Látum oss
vona að þær nauðsynlegu breytingar, sem Gorbatshoff nú er að knýja fram,