Réttur


Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 18

Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 18
vopnakaup en þaö hefði þýtt óheyrilegan gróðamissi fyrir vopnaframleiðendur a.m.k. um stundarsakir. Það er nauðsynlegt að ítreka, að hergögn í Bandaríkjunum eru ekki framleidd í ríkisfyrirtækjum, heldur einkafyrirtækjum, sem síðan selja stjórn Bandaríkjanna eða öðrum ríkjum vopna- búnaðinn. í löndum Vestur-Evrópu eru þau ýmist framleidd af einkafyrirtækjum einum eða ríkið á hlut í þeim. Eitthvað varð að gera og nú voru góð ráð dýr. Sem betur fór fyrir vopnafram- leiðendur tókst þeim brátt að stinga Trúmann forseta í vasa sinn og tryggja síðan endurkosningu hans með ríflegum framlögum í kosningasjóði. Síðan var far- ið að predika nauðsyn þess að Bandaríkin hefðu herstöðvar um víða veröld og byggja þær nýjustu vopnum til að tryggja frið og frelsi um alla framtíð. Tilmælin um bækistöðvar á íslandi voru aðeins ein af mörgum og ekkert sérstök í sjálfu sér. Hér vildi hinsvegar svo óhönduglega til að Islendingar höfðu fyrir aðeins rúmu ári endurheimt fullt sjálfstæði eftir nær 7 alda undirokun. Og slík krafa féll því ekki í góðan jarðveg meðal almennings og síst þar sem Bandaríkin höfðu áður lofað því hátíðlega að hverfa burt með allan her sinn undir eins og styrjöldinni lyki. Það er þó misskilningur að halda að Islendingar hafi verið á móti þessum tilmælum Banda- ríkjanna. í forystugrein í dagblaðinu Vísi 27. október 1945 segir m.a. um þetta: „Sýnist með öllu ástæðulaust að verða ekki við slíkum tilmælum. Fjarri öllu lagi er að efna til áróðurs gegn mála- leitunum þessara þjóða, þótt nærri hagsmunum okkar kunni gengið. Vilj- um við tryggja framtíðarhag okkar verðum við aö beina viðskiptum okkar til vesturs með því að Evrópumarkað- urinn virðist vera mjög ótryggur". Þetta sjónarmið er út af fyrir sig einkar skiljanlegt. Á íslandi hafði nefnilega það sama gerst og í Bandaríkjunum, ýmsir höfðu grætt á stríðinu, að vísu í milljón sinnum minni stíl, en samt, — og þetta blessaða fólk sá fram á dapurlega tíð, þegar ekki var lengur neinn stríðsgróð- inn. Þetta átti ekki síst við um ýmsa kaup- sýslumenn og iðnmeistara, sem í stríðinu höfðu verið að byrja að koma undir sig fótunum sem verktakar. Fyrir þessa aðila þýddu nýjar herstöðvar ekkert annað en aukin verkefni. En þessir sömu aðilar voru enn ekki orönir nógu áhrifamiklir í þingflokkunum, til þess að sigrast á þeirri afdráttarlausu og óhagsýnu þjóðernis- kennd, sem enn var ríkjandi árið eftir stofnun lýðveldisins. Sem dæmi um hana má nefna grein sem Halldór Laxness skrifaði strax í október 1945, en þar mun hann fyrstur allra nota orðið landráða- maður um sporgöngumenn Bandaríkj- anna hér á landi: „Sá íslenskur valdamaður, sem vill af- henda landið til sóknar eða varnar ákveðnum stríðsaðila í næsta stríði er ekki aöeins landráðamaður í þeirri gömlu góðu merkingu þess orðs, held- ur hlýtur hann einnig að vilja dauða ís- lensku þjóðarinnar. Um lcið og vér af- hendum væntanlegum aðila í næsta heimsstríði landsréttindi á Islandi, höf- uin vér undirskrifað dauðadóm ís- lensku þjóðarinnar í bókstaflegri merkingu." Og í næsta mánuði orti Jóhannes úr Kötlum ljóðið: „Eiður vor“: „Vér stöndum hver einasti einn um ísland hinn skylduf>a vörð: af hjarta vér leggjum nú hönd á heilaga jörð 114

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.