Réttur


Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 27

Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 27
þingflokkanna, aðallega held ég að við höfum óskað eftir samtali við forseta sameinaðs Alþingis til þess að taka við ályktun fundarins, en það fékkst ekki, og að síðustu óskuðum við eftir því að tala við Sigurð Guðnason og afhentum hon- um samþykktina. Hann fékk ekki að lesa hana upp öðru vísi en í ræðu, sem hann flutti í þinginu. Þjóðaratkvæðis krafist Ragnar: Og hver var krafa ykkar? Stefán: Krafa okkar var sú, eins og seg- ir í útifundarfregnmiðanum frá okkur: „Fundurinn er boðaður af Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna og Dagsbrún til þess að krefjast þess að tækifæri gefist til þjóð- aratkvæðagreiðslu um inngöngu íslands í hernaðarbandalag Norðuratlantshafs- ríkja, enn einu sinni, áður en Alþingi hef- ur tekið fullnaðarákvörðun um málið“. Þetta cr í samræmi við bæði þennan ræðu- stúf, sem ég flutti þarna og samþykktina sem gerð var. Það var krafan um þjóðar- atkvæði. Ragnar: Höfðuð þið einhverja von um að meirihluti þingmanna kynni að fallast á þessa kröfu um þjóðaratkvæði? Stefán: Maður vissi að það var tvískinn- ungur í Alþýðuflokknum og Framsóknar- flokknum svo ekki var hægt að segja um það fyrirfram, hvernig Iressu yrði tekið, en ég býst nú við að maður hafi verið frekar svartsýnn á að það yrði tekið vel undir þessa ósk, á sama hátt og þegar við skoruðum á Alþingi að fella Keflavíkur- samninginn. Enn syng ég gamalt stef við þinn sœngurstokk í kvöld, er sólin rennur langt að fjallabaki ttni þá sem sitja sléttir og slóttugir við völd og sleppa aldrei neinu fantataki. Morðingjar heimsins og myrkraverka her munu reyna að draga úr þér kjarkinn en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er að á mörgum þeirra höggvist sundur barkinn. (Þetta var úr „Vöggukvæði róttækrar móður“ eftir Böðvar Guðmundsson). Ragnar: Þegar þið komuð frá fundinum við Miðbæjarskólann, hvernig var að- koman á Austurvelli? Skólaföt og stríðsgallar Ólafur: Við fylgdum eftir þeim Stefáni Ögmundssyni að Alþingishúsinu, við sem tókum þátt í fundinum við Miðbæjarskól- ann. Og þegar við komum þangað var Stefún Ógmunds.son I 123

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.