Réttur


Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 46

Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 46
KRLEND nino i Á ; ^■ VIÐSJA i Gorbatsjov og Honecker Aðalleiðtogar Sovétríkjanna og Þýska alþýðulýðveldisins, þeir Michael Gorbat- sjov og Erich Hor.ecker hittust í Moskvu í september sl. Honecker skýrði Gorbatsjov í stuttu máli frá því sem á döfinni er í Þýska al- þýðulýðveldinu. Sú stefna sem mótuð var á 11. þingi Sósíalíska einingarflokksins, og sú efna- hagsstefna sem þar var mótuð, hefur ver- ið giftusamlega framkvæmd. Nú fara fram kosningafundir í stofnunum flokksins, þar sem kommúnistar og verkafólk ræða stöðu mála. I Þýska alþýðulýðveldinu ríkir mikill áhugi á perestrojku og framvindu mála í Sovétríkjunum. „Fyrir mér og félögum mínum er það enginn vafi, að perestrojka var söguleg nauðsyn. Við erum vissir um að framkvæmd hennar mun takast og réttlæta þær vonir sem Sovétríkin binda við hana“, sagði Honecker. Gorbatsjov þakkaði honum samstöð- una við þá stefnu sem mótuð var á 27. flokksþingi KFS og útfærð nánar á 19. flokksráðstefnunni og fundum miðstjórn- ar KFS, og kvað framkvæmd hennar lífs- nauðsyn fyrir Sovétríkin. Samstaða þessara ríkja og flokka er hin mikilvægasta fyrir styrkleika sósíalismans í Evrópu. Er það mikið fagnaðarefni að góður gagnkvæmur skilningur ríkir á milli flokkanna. Verða samskipti þeirra vafalaust þróuð vel á næstu árum og mun vinátta þessara ríkja fara vaxandi. Er það öllum marxistum mikið fagn- aðarefni. Gorbatsjov og Honecker. 142

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.