Réttur


Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 48

Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 48
NEISTAR Bjarni Benediktsson um Efnahagsbandalagið: „Ég er búinn að stúdera Rómar- sáttmálann. Ég get bara ekki skilið, hvernig nokkrum islendingi dettur í hug að vera með því að ganga í Efnahagsbandalagið." B.B. í samtali við E.O. (Sjá: „ísland í skugga heims- valdastefnunnar", bls. 192). Þorsteinn Valdimarsson: Úr „Hrafnamál“ „Hnigin er öld áður hafin sé. — Svo kvað röddin ráma. — Slíkir hrópa nú hæst um rétt, er helst bera fé í dóma. Þjóðin sem geymir Sólarljóð, hún metur nú flest til dala; margur er sá fyrir mútugjöld er heiðurinn lætur falan. Slíkir flimta um frelsið mest, er svipunni sveifla gjarnast; hatrið er æst og heiftin blind gegn hverjum er snýst til varna. Dreyra sár og svíða. Ættlerar veljast ármenn helstir, — svo kvað röddin djúpa. — Þau ein brugga þeir fremdarráð, að seyðið er samt að súpa. Þau ein brugga þeir fremdarráð að voðinn af stendur. — Lýður er felldur í fjötra gulls og land í hers hendur. Þjóðin sem geymir Hávamál, má stafkarls stigu rata. — Reis ei sól fyrr en runnin var og frelsinu þreyða glatað. Endist hverjum til skemstra stunda undir himninum heiða á tröll að heita til verndar sér og láta sig blindan leiða. Dreyra sár og svíða. Undrast hef ég við árroðans lind — svo kvað röddin skæra — eilífðarfagra landið þaö, sem speglast í djúpinu tæra. Undrað hafa mig augu barns og Ijóminn, er af þeim stendur. — Fjöturinn verður ei fundinn neinn er felldur verði á þær hendur. Dauði er hjóm og líf er líf, þó grimmd og óvit hrelli. Sá er dómurinn nær en veit er saklaus dreyrinn fellir. Gróa sár þótt svíði. Regnið felldi dagsbrún rauð og dvala höfgum frá. — Heyrði eg ei framar hjalið það né holtið nokkurt sá. Hrafnar voru af þingi. (Birtist allt í „Rétti" 1949) „Ó, ísland, fagra ættarbyggð, um eilífð sé þín gæfa tryggð, öll grimmd frá þinni ströndu styggð og stöðugt allt þitt ráð. Hver dagur líti dáð á ný. Hver draumur rætist verkum í, svo verði íslands ástkær byggð ei öðrum þjóðum háð. Svo aldrei framar íslands byggð, sé öðrum þjóðum háð. Hulda „Land þjóð og tunga“ Land þjóð og tunga, þrenning sönn og ein, þér var ég gefinn barn á móðurkné; ég lék hjá þér við læk og blóm og stein, þú leiddir mig í orðs þíns háu vé. Á dimmum vegi dýrð þín um mig skein, í dögun þeirri er líkn og stormahlé og sókn og vaka; eining hörð og hrein, þú heimtar trúnað, spyr hver efnd mín sé. Þú átt mig, ég er aðeins til í þér. Örlagastundin nálgast grimm og köld; hiki ég þá og bregðist bý ég mér bann þitt og útlegð fram á hinzta kvöld. ísland, í lyftum heilum höndum ver ég heiður þinn og líf gegn trylltri öld. Snorri Hjartarson (1944) • Vonir og óskir á Þingvöllum 17. júní 1944 „Hvort sem krýnist þessi þjóð þyrnum eða rósum, hennar sögur, hennar Ijóð, hennar líf vér kjósum. Ein á hörpu íss og báls aldaslag síns guðamáls æ hún leiki ung og frjáls undir norðurljgsum." Jóhannes úr Kötlum 144

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.