Réttur


Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 32

Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 32
Þingmenn í stofufangelsi Ragnar: Upphaf átakanna, kom það ykkur einhvernveginn svona fyrir sjónir eins og hér var áðan lýst? Jón Múli: Ég verð nú að játa það, að ég var ekki á fundinum við Miðbæjarskól- ann. Það var af þeim ástæðum að ég hafði verið á vakt í útvarpinu þennan morgun og var þulur í hádegisútvarpinu og var að lesa fréttir, sem fjölluðu mest um þetta, svo og tilkynninguna og áskoranir frá ríkisstjórninni til borgarbúa um að koma á Austurvöll. Þegar hádegisútvarpinu lauk fór ég heim vestur á Hringbraut. Ég átti þá heima í Goðahúsunum. Þá var bærinn undirlagður af áróðri fyrir þessum fundi, t.d. þegar ég kom vestur á Bræðra- borgarstíg þá koma 4 Heimdellingar í bíl með þetta skjal, sem þú varst að lesa hérna um áskorun að koma á fundinn, þar sem kommúnistar, sennilega ég, ætia að kollvarpa stjórninni og annað eftir því. Ég fór heim að borða og svo fórum við hjónin niður eftir. Við vorum ekki komin fyrr en kl. að ganga þrjú niður á Austur- völl. Og þegar við komum niður Túngötu í Kirkjustræti, þá virðist vera mannþröng á Austurvelii. Fjöldi fólks fyrir framan Al- þingishúsið; þessir menn, sem verið var að tala um áðan og svo Austurvöllurinn allur fullur af fólki. Þó er nú ekki fleira fólk þar, þegar við komum, að það er greiðfært yfir völlinn, bæði yfir túnblett- ina og á gangstígunum. Við fórum beint út að styttu Jóns Sigurðssonar á miöjum vellinum. Þaðan mátti nú fylgjast með því sem var að gerast. Þá voru strákar að gera hasar í löggunni eins og tíðkast þegar löggan er búin að stilla sér upp með hjálma og kylfur svona líkt og gerðist á gamlárskvöld í gamla daga og náttúrlega verið að henda skít og eggjum í Heim- dellinga, því margir höfðu nú lært það af þeim sjálfum að beita slíkum aðferðum á útifundum. Fólkið á Austurvelli, þetta var frið- semdarfólk. Þetta var miídu líkara sam- komu, t.d. þegar lúðrasveitin spilar á Austurvelli að því undanskildu, að það var töluverður hamagangur í kringum lögguna. Löggan var alltaf lögga. Hún var að ýta ágengustu strákunum frá þarna og þeir sóttu strax að henni aftur. Og það eina sem ég heyröi af hrópum, það var Stefán Ögmundsson, sem var að kalla í hátalara. Sennilega hefur hann verið þarna á jeppa uppi á gangstéttinni nálægt gamla húsinu, seni búið er aö flytja núna upp í Árbæ. Þar var Stefán að segja frá því, sem gerst hal'ði á fundinum og því, sem gerst hafði, þegar hann og félagi hans komu með ályktun fundarins niður að Al- þingishúsi, líka sagði hann frá því hvað væri að gerast inni í húsinu; m.a. sagði Stefán Ögmundsson frá því að þingmenn Sósíalistaflokksins væru eiginlega í stofu- fangelsi inni í Alþingishúsinu. Þetta þjark þarna framan við húsið gekk nokkuð lengi og var svo fjarri því að vera í nokkrum uppreisnar- eða bylting- arstíl. Þetta var svona meira eins og þegar strákar eru að gera hasar. En þegar svo lögreglan er að ýta frá sér og skapa sér rými, eins og Ólafur var að segja áðan, þá er lögreglan auðvitað að undirbúa það að þessi sveit Heimdellinga, hvítliðanna svokölluðu, sem Jón Böðvarsson var að scgja okkur frá áðan, geti farið að taka til starfa. Ég vil taka það fram að ég tel Jón ekki hvítliða. Hvítliðarnir voru í mínum augum þeir, sem voru með hjálma og kylfur og biðu eftir að gera útrásina úr Alþingishúsinu. Þeir, sem stóðu undir gaflinum á Alþingishúsinu, það var svona mest friðsemdarfólk, venjulegir Heim- 128

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.