Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 3
PÁLL BERGÞÓRSSON:
Ný móðuharðindi
af mannavöldum
Nú eru fjórir mánuðir liðnir síðan Kanadastjórn stóð fyrir fjölmennri ráð-
stefnu í Toronto. Þar voru samankomnir meira en 300 vísindamenn og áhrifa-
menn um stefnumótun frá 48 þjóðum. Sérstofnanir Sameinuðu þjóðanna og
ýmsar alþjóðlegar stofnanir tóku þátt í ráðstefnunni.
Og um hvaða alvörumál ræddi allur
þessi mannfjöldi? Þar var talað um ósýni-
leg efni, sem oft er líkt við bókstaflega
ekki neitt, andrúmsloftið á jörðinni. Al-
vörumálið er það, að lofthjúpur jarðar-
innar er að breytast af manna völdum.
Sumir telja að þessar breytingar gangi
næst þeim sem mætti vænta af kjarnorku-
styrjöld. Mengun streymir út í gufuhvolf-
ið, svo að aldrei hefur annað eins þekkst,
jarðefni, einkum olía, eru brennd, en
nýting eldsneytisins er slæm og auk þess
bruðlað með það meira en hófi gegnir.
Mikil fjölgun mannkynsins gerir málið
enn örðugra viðfangs. Þessar breytingar
ógna öryggi þjóðanna og hafa þegar haft
skaðleg áhrif víða um lönd. í ályktun
þessarar ráðstefnu er fullum fetum sagt,
að hlýnun loftslags og hækkun sjávar-
borðs muni hafa víðtæk áhrif, en vitneskja
um þetta verði nú æ öruggari vegna sívax-
andi kolsýru í loftinu og annarra loftteg-
unda sem hafi svokölluð gróðurhúsáhrif.
Ennfremur er bent á eyðingu ósonlagsins
í gufuhvolfinu, en af því leiðir vaxandi
skaða af útfjólubláu Ijósi sólarinnar. Þær
spár sem eru taldar áreiðanlegastar benda
til þess að alvarleg röskun geti orðið á
efnahag og þjóðfélagsaðstæðum komandi
kynslóða, en af henni leiði aftur víðsjár í
Páll Bergþórssoi1