Réttur


Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 37

Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 37
Við lok átakanna á Austurvelli. ríkisstjórnarinnar, einkum í Sjálfstæðis- flokknum. En þetta var allt greinilega undirbúið til þess arna. Því miður vantaði þessa fylkingu, sem gekk með rauðu fán- ana í gamla daga, varnarlið verkalýðsins með rauðu fánarna á snyrtilegum flagg- stöngum, sem voru svona tvö fet með linúð í endann. Ég þykist viss um að þeir sem hjálpuðu forustumönnum stjórnarflokkanna, að undirbúa þessa atburði, þeir kunnu alveg sitt fag. Það hefur verið sagt, að forustu- menn þessara flokka hafi lært sitt fag í Þýskalandi, það þarf ekkert að vera, að vísu hafa náttúrlega veriö góðir kennarar í þessu þar. En bandaríski herinn hafði hér sína fulltrúa og kapítalistarnir í Bandaríkjunum þeir voru fyrir löngu búnir að fullkomna sig í þeim aðferðum að berja niður þjóðfrelsishreyfingar, ég tala nú ekki um verkalýðinn og þar með sinn eigin verkalýð í Badaríkjunum, í verkföllum og öðru slíku. Ólafur: Ég minnist þess að dagana fyrir óeirðirnar þá lásum við eftir bróður þinn Jón, hann Jónas, að það hefðu heyrst skipanir lir Kveldúlfsportinu, einn tveir, einn tveir, en þú ert hálfvegis að gefa það til kynna, að þjálfunarstaðurinn hafi ver- ið á Keflavíkurflugvellinum, í einhverj- um húsum þar, sem maður veit ekki um. Jón Múli: Nei, ég er bara að gefa það til kynna, að þetta var skipulagt með að- stoö þeirra, sem kunnu fagið, því að þó Heimdellingar og forystumenn Sjálf- stæðisflokksins séu miklar hetjur og garp- ar á sinn hátt, þá kunnu þeir ekki þessar bardagaaðferðir. Þeir höl'ðu lært þær hjá I 133

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.