Réttur


Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 10

Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 10
hvernig álbræðslan drepur jurtalífið í margra kílómetra fjarlægð. P»að er ekki rannsakað ennþá hvaða skaða það eitur- efni sem í sjóinn fer og sígur þar til botns, gerir gagnvart uppeldisstöðvum fisksins. Og samt vilja þrælar auðvaldsins fá fleiri eitrandi verksmiðjur inn í landið, verka- mönnum, sem í þeim vinna til heilsu- tjóns, og lífinu í kring til voða. Og mengunin er margvísleg. Útblástur frá verksmiðjum og bílum eitra andrúms- loftið, svo nú eru komin göt yfir bæði Norður og Suður pól, þar sem drepandi hiti og ljós geta streymt í gegn og valdið óútreiknanlegu tjóni á öllu Iífi. Dæmið um Brasilíu er veröld allri til viðvörunar. Brasilía með sínum gífurlegu frumskógum hefur verið einskonar lunga mannkynsins. Jafnhliða hafa þessir frum- skógar verið heimili frumstæðra indíána, sem lifað hafa þarna löngum óáreittir. En á síðustu áratugum hafa gróðafíknir auð- menn tekið að höggva þessa skóga — og sú stórhættulega eyðilegging gengur fljótt, — en gefur mikinn gróða. Og það er þó ekki hikað við að höggva indíánana líka, ef þeir þrjóskast við að heimur þeirra sé eyðilagður. Og með upprætingu frumskóga Brasilíu er verið að eyðileggja lungu mannkyns- ins. En auðvaldið hugsar ekki um slíkt, ef það bara græðir á því. Grípi mannkynið ekki inn í og stöðvi þessa eyðingu, þá er hér enn einu sinni verið að vega að rótum mannlífsins á jöröinni í gróðaskyni. Pað er vissulega tími til kominn að stöðva þennan glæp. En þá verður mannkynið fyrst að vita hvað í húfi er — og taka sér það vald sem þarf til að bjarga lífinu, gera mönnunum mögulegt að draga andann. Pannig mætti taka hvert dæmið af öðru til að sýna, hver hætta vofir yfir mannkyninu, ef auðvald heims fær á öll- um sviðum að fara sínu fram án tillits til alls nema gróðans. Tekst sósíalismanum að sigra í tíma — eða... Auðvaldið er með hverju ári sem líður að eyðileggja grundvöll heilbrigðs líf's á jörðinni. Takist ekki að opna augu al- mennings fyrir þessari hættu, er voðinn vís. Og vér mennirnir höfum ekki ótak- markaðan tíma til þess að bjarga jörðinni og okkur sjálfum. Þótt sósíalisminn á þessari öld og vafa- laust langt fram á næstu, komi fyrst og fremst fram sem sterkt baráttuvald, þá verðum við að muna að sósíalisminn er í eðli sínu og framtíðar hugsjón vorri fyrst og fremst þjóðfélag bræðralags og jafnað- ar allra manna. Sósíalisminn getur, eftir að hann hefur sigrað á jörðinni, tryggt ör- ugga afkomu allra jarðarbúa, — þar sem tugir milljóna eru nú drepnir úr sulti ár- lega vegna kúgunar kapítalismans. Sósíal- isminn myndi, er hann liefur sigrað, tryggja varðveislu náttúruauðæfanna, því takmark hans er velferð mannanna, en ekki ofsagróði einstakra auðdrottna. Og með sigri sósíalismans tækist að gera mennina betri, fá þá til að hugsa um vel- ferð hvers annars, (eins og Jesús frá Nasaret boðaði), en útrýma hinni lífs- hættulegu gróðagirnd, sem nú ógnar til- veru lífsins á jörðinni. Auðvaldið hefur einskis svifist til aö hindra framgang sósíalismans. Múgmorð stríðanna hafa ekki veriö eina aðferðin. Hundruö einstaklinga sem auðvaldið hef- ur óttast, hafa og orðið að láta lífið, ekki 106

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.