Réttur


Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 14

Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 14
Mætið hjá deildarforingjanum þegar í stað. Ég hljóp út húfulaus og stakk pappír- unum í vasa mína á leiðinni. Verið var að leiða hestana út úr húsagörðunum, ridd- araliðsmenn æddu um og æptu í myrkr- inu. Deildarforinginn klæddi sig í frakk- ann meðan hann sagði okkur að Pólverjar hefðu brotist gegnum víglínuna í grennd við Lúblín og að okkur hefði verið falið að ráðast á þá frá hlið. Árásin átti að hefj- ast eftir klukkustund. Gamli maðurinn hafði vaknað og horfði á mig órólegur undan laufkrónu sítrónutrésins. — Þér lofið að koma aftur, sagði hann og tinaði. Elísabet brá sér í pelsjakka utan yfir léreftsnáttkjólinn og kom út til að kveðja. Ósýnilegur herflokkur þaut framhjá okk- ur í myrkrinu. Við vegamótin leit ég um öxl. Tomilína laut yfir drenginn sem stóð fyrir framan hana og var að hneppa jakk- anum hans. Lampaljósið úr glugganum lék flöktandi um blíðlegan, grannan hnakka hennar. Þegar við höfðum riðið hundrað kíló- metra leið án hvíldar sameinuðumst við fjórtándu deild og hófum aðgerðirnar. Við sváfum í hnökkunum. Á áningar- stöðunum 'bar svefninn okkur ofurliði og við duttum af baki og hestarnir rykktu í taumana og drógu okkur sofandi yfir slegna akra. Tekið var að hausta og hljóðlátt regn streymdi yfir okkur án afláts. Við mynduöum samvaxinn, þöglan og slæptan hóp, þvældumst um, fórum í hringi, gengum í gildru Pólverja og út úr henni altur. Við glötuðum tímaskyninu. Kvöld nokkurt, er við bjuggumst til hvíldar í kirkju, hafði ég ekki hugmynd um að við værum staddir í aðeins níu rasta fjarlægð frá Búdjatitsjí. Súroftsef benti mér á það. Við horfðumst í augu. — Verst að hestarnir skuli vera svona þreyttir, sagði hann glaðlega. Annars hefðum við geta skroppið þangað. — Útilokað, sagði ég. Pví yrði veitt eftitekt í nótt. Svo lögðum við af stað. Við spenntum gjafir á hnakkbogana: sykur, skinnkápu og lifandi tveggja vikna kiðling. Vegurinn lá um vindbarinn votan skóg, stálstjarna reikaði milli eikarkrónanna. Eftir tæpa klukkustund vorum við komnir á leiðar- enda. Miðbik þorpsins hafði brunnið og þar var kraðak af rykugum vörubílum, byssuvögnum og brotnum vagnstöngum. Án þess að fara af baki bankaði ég á kunnuglegan glugga og hvítt ský leið um herbergið. Tomilína hljóp út á dyrapall- inn, klædd sama náttkjólnum með lösnu knipplingunum. Hún tók hönd mína í sína heitu hönd og leiddi mig inn í húsið. í stofunni hengu karlmannanærföt til þerris á brotnum greinum sítrónutrjánna og ókunnir menn sváfu á beddum sem stóðu þétt saman einsog á herspítala. Óhreinir fætur þeirra gægðust undan teppunum og á andlitum þeirra voru stirðnaðar grettur, þeir æptu hásir upp úr svefninum og andardráttur þeirra var áfergjulegur og hávær. Herfangsnefnd okkar hafði lagt undir sig húsið. Tomilín- fjölskuldan varð að gera sér að góðu að hírast í einu herbergi. — Hvenær ætliö þið að sækja okkur? spurði Elísabet og þrýsti hönd mína. Gamli maðurinn vaknaði og hristi höfuðiö. Misja Iitli faðmaði að sér kiðl- inginn og hló hljóðlátum hamingjuhlátri. Yfir hann gnæfði Súroftsef sem dró hróðugur upp úr vösum sinna víðu.kós- akkabuxna spora, gataðar myntir og flautu í fléttaðri, gulri snúru. í þessu húsi, herteknu af herfangsnefndinni, var hvergi 110

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.