Réttur - 01.08.1988, Side 8
Sósíalisminn
sigrar ef auðvaldið
ekki útrýmir
mannkyninu áður
Fávísir áróðursmenn auðvaldsins reyna að telja alþýðu trú um að sósíalisminn
sé búinn að vera, einmitt nú, þegar næstum helmingur mannkyns býr við frum-
stig sósíalískrar þróunar.
Sósíalisniinn nú verður fyrst og
fremst að vera vald
Þegar alþýðan nær völdum til þess að
fá þannig frumskilyrði til að framkvæma
hugsjón sína um bræðralag mannanna,
sameign og samhjálp, brýtur auðmanna-
stéttin þetta vald alþýðu, kæfir það í blóði
eins og gerðist 1871 með Parísarkomm-
únuna, er verkalýður Evrópu fyrst tók
völd í sínar hendur.
Fyrsta skilyrði til þess að sósíalisminn
fái að komast á, lifa og þroskast, er því aö
alþýðan sé nógu sterkt vald til þess að
geta varist'auðvaldinu og fengið að lifa.
Eftir að rússneska byltingin var gerð
1917, réðust 14 auðvaldsríki og herjar á
hana 1918 til 1921 til þess að reyna að
kæfa hana í blóði. F*að tókst ekki. —
1941-45 reyndi Hitlcrfasisminn þaö
sama. 20 milljónir kvenna, barna og
karlmanna í Sovétríkjunum létu lífiö í
þeim hildarlcik, þriöjungur hins evrópska
Rússlands lá í eyöi eftir árásirnar, en
Sovétþjóðirnar sigruöu fasismann mcð
þessum ógnarfórnum og hctjuskap, —
frelsuðu Evrópu frá ógnum nasismans.
En auðvaldsstéttirnar gáfust ekki upp
við að kæfa sósíalismann í blóði.
í Grikklandi var það bandaríski
herinn, sem eftir stríðið braut undir sig
Grikkland, sem gríski frelsisherinn hafði
rekið böðlana burtu frá og frelsað landið.
Auðvaldið ameríska óttaðist þróun til
sósíalisma, ef Grikkland fengi að vera
frjálst.
Á Spáni réðst nasisminn og herforingj-
ar Francos á þjóöina, er hún eftir 1936
ætlaði að koma á lýðræðislegu þjóðfélagi,
sem hugsanlegt var að þróaðist til alþýðu-
valda. Og með óbeinni aðstoð enska og
franska auðvaldsins tókst á þrem árum að
hindra lýðræðislega þróun þar — og
koma á fasisma. Óttinn við friðsamlega
þróun til sósíalisma sameinaði afturhald
Evrópu til illverkanna.
í Chile gerðu herforingjarnir uppreisn,
myrtu hinn löglega kjörna forseta og tóku
völdin, börðu frelsishreyfingar alþýðu
niður, — allt af ótta við að sósíalismi
fengi að þróast í því landi á þingræðisleg-
an hátt. Og meðan níðingsverkið var
framið biðu bandarísk herskip úti fyrir
104