Réttur


Réttur - 01.08.1988, Qupperneq 30

Réttur - 01.08.1988, Qupperneq 30
og fyllti hann raunar, stóðu þessir menn kyrrir og stilltir og kröfðust þess að fá samband við þingmenn Sósíalistaflokks- ins, sem voru inni í húsinu. Hið eina sem má segja að hafi verið aðgerð af hálfu þessa fólks var að Stefán Ögmundsson talaði 1 hátalara, sem var á bifreið þar. En svo greip um sig mikil ókyrrð hjá lögregl- unni. Hefði mátt ætla að hún varaði fólk við eða bæði menn að yfirgefa völlinn en allt í einu hófst árás og skotið var tára- gasi. Þessir 50 menn rudddust út og byrj- uðu að berja á báðar hendur. Þá leituðu flestir undan, ja einkum og sér í Iagi vegna þess, að táragas er þannig að fáir vilja vera kyrrir, þegar það kemur í vit manna. Ég man sérstaklega vel að ég sá einn þessara drengja hefja upp kylfu til þess að berja á gömlum manni, sem hafði hrasað. Góður kunningi minn, þó að hann væri pólitískur andstæðingur þá, greip um kylfuna, kippti henni af hvítlið- anum en gerði ekkert annað. Fyrir þetta var hann dæmdur í tveggja mánaða fang- elsi. Ragnar: Höfðu þessir atburðir mikil og langvarandi áhrif á þig? Jón B.: Já. Segja má að augu mín hafi upplokist og ég hætti að trúa forystumönn- um Sjálfstæðisflokks. Þetta var ákaflega sársaukafullt, tók nokkurn tíma, en tveim árum seinna var ég kominn í virkt starf hjá þeim sem ég kalla raunverulega sjálf- stæðismenn, þ.e.a.s. hernámsandstæðinga. Ragnar: Ég sé að þú ert þarna me'ð fyr- ir framan þig úrklippu úr blaðagrein, sem þú skrifaðir einhverntírna, var það ekki? Jón B.: Jú. Því miður var svo, að marg- ir félagar mínir, sem urðu ákaflega hneykslaðir og hafa ekki fyrirfram trúað, að svona færi létu sefjast smám saman og sættu sig við þetta. Þeir gengu í björg. En vegna þess að ég snerist af þessum sökum, gekk úr Heimdalli skömmu seinna og síð- an til liðs við Félag róttækra stúdenta, var ég beðinn að skrifa um þessa atburði. Þegar þið á Rót báðuð mig að koma, gróf ég upp þessa grein. Ég lagði út af frásögn um Jón Loftsson, sjálfstæðisforingjann því að mér fannst sjálfsstæðisflokksmenn hafa breytt inntaki og efni frægra um- mæla Jóns og sagt; Heyra má ég erki-Nat- óboðskap og ráðinn er ég að halda hann í öllu, því víst hygg ég að Trúmann vilji betur og viti en foreldrar mínir sem trúðu á land míns föður. Ragnar: Þakka þér fyrir Jón. Hvað tefur þig bróðir? Hvað tefur þig bróðir? Á tindunum sólskinið logar. Af tárum er risin sú glóð. En smánin í blóði mér brennur. Pú veist hvað sá heitir, sem bregst sínu landi og þjóð. Pú veist hvað ég meina, því moldin og steinarnir hrópa. Ó, mundu þau dómsorðin hörð. Pú verður að má þennan blett, því að börn okkar vaxa. Peim ber þessi hrjóstruga jörð. 126

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.