Réttur


Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 31

Réttur - 01.08.1988, Blaðsíða 31
Við þekktum það fyrri, að reimt var á Reykjanesskaga, en ræðum nú fœrra um það. Hvað veldur því, bróðir, að vangi þinn roðnar af blygðun ef varirnar nefna þann stað? Og nær urðu Pórshöfn og Aðalvík ógæfustaðir? Hver átti að standa þar vörð? Og Hornafjörð manstu. Er helgi þíns lands ekki flekkuð? Og hver hefur svívirt þá jörð? A sólin að skína á skömmina ógæfubleika? A skuld þín að stœkka í ár? Er dollaraglýjan í augum þér orðin að blindu? Var erfingjaréttur þinn smár? Pér skal ekki hlíft, þó hrjúf sé mín rödd eins og landið, sem heimtar þinn trúnað og lið. Og vittu að í gröfinni vœrðin skal bregðast þér liðnum, ef velur þú svikarans frið. Pví stundin er runnin og heimtar þig heilan til hvíldar. Af hlut þínum dagsljóma ber. Ég fylgi þér, bróðir. Ég veit að þú hlýtur að vaka og vita hver skylda þín er: Að hlaða þeim virkjum sem vegendur dauðanum ristu, í valkesti auðnar og sands, að afmá hvert spor, sem af stríðsmannafótum er stigið á stein eða gras þessa lands. Pú mátt ekki bregðast mér, bróðir, því dagurinn líður og bráðum er komin sú stund, aðframtíðin heimtar úr höndum þér stirðnandi, og köldum án hlífðar þitt œvidags-pund. Pá vil ég hún sjái, að með vöxtum sé skuldin þín goldin og vígt sé að nýju þitt land, að börn okkar geti án kinnroða nefnt okkar kynslóð, og kletta og heiðar og sand. Jakobína Sigurðardóttir I. des. 1955

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.