Réttur - 01.08.1988, Page 35
Táragasið breiðist um Austurvöll. Lögreglumaður með gasgrímu.
dellingar. Parna voru pabbadrengir, pen-
ingamenn, kennarar og ágætisfólk af
ýmsu tagi, skipstjórar og stýrimenn og
hitt og þetta úr öllum stéttum, eins og úti
á vellinum.
Hvítliðar ryðjast út
En þarna gerist ekkert alvarlegt fyrr en
þessum Heimdallarlýð, sem er vopnaður
inni í húsinu er hleypt út. Nú er búið að
halda yfir þeim ræður skilst mér, áður en
að því kemur að þeim er safnað þarna
saman. Pað er nú svona rétt hægt að
ímynda sér hvað þessum piltum hefur
verið sagt inni í húsinu, hvað búið var að
trylla þá af æsingi til þess að fá þá til að
berjast eins og vitlausir menn þegar þeir
komu út á völlinn, því þannig voru þeir
þegar þeir komu. Þeir komu æðandi með
kylfur á lofti og börðu allt sem fyrir var,
þeir náðu alveg út að styttu. Það barði nú
enginn mig, — einum tókst að berja kon-
una mína og barði af henni veskið hennar
og hún hefur ekki séð það síðan. Þetta
var árangurinn af þessu öllu saman, löngu
undirbúinn náttúrlega af ríkisstjórnar-
forsprökkunum og kapítalistunum, sem
kunna að búa til svona próvokasjón til
þess að geta framið sín landráð. Og til
þess að geta logið því öllu upp á komm-
únista á eftir.
Ragnar: En nú voru þarna fleiri en
þeir, sem komu frá Miðbæjarskólanum,
svo þeir hljóta nú að hafa barið ýmsa af
sínum mönnum.
Jón Múli: Peir börðu allt sem fyrir var,
131