Fréttablaðið - 11.03.2009, Page 2
2 11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
T
B
W
A
\R
e
yk
ja
ví
k
\
S
ÍA
\
0
9
4
1
9
7
STJÓRNMÁL Hugsanlegt er að
afskrifa þurfi allt að 40 prósent
skulda verst settu fjölskyldnanna
í landinu og eru stjórnvöld reiðu-
búin að beita sér fyrir slíkum
aðgerðum.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra greindi frá þessu á fundi
með blaðamönnum í gær.
Seðlabankinn hefur unnið að
kortlagningu á fjárhagsstöðu
heimilanna í landinu og sam-
kvæmt bráðabirgðaniðurstöðum
er eiginfjárstaða fjórtán þúsund
heimila (18% heimila landsins)
neikvæð. Þá nemur eiginfjárstaða
um sextán þúsund heimila (20%
heimila landsins) innan við fimm
milljónum króna.
Í bráðabirgðaniðurstöðunum
er ekki tekið tillit til bílalána og
yfirdráttarlána sem ugglaust gera
stöðuna enn verri.
Jóhanna sagði aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar fyrst og fremst mið-
ast við að hjálpa verst stöddu heim-
ilunum. Hún hafni því hugmyndum
um flata tuttugu prósenta afskrift.
„Við teljum ekki rétt að afskrifa
flatt yfir alla línuna hvort sem fólk
þarf á því að halda eða ekki. Við
viljum frekar hafa svigrúm til að
gera betur og meira fyrir þá sem
eru verst settir.“
Jóhanna greindi frá fimm
málum sem ríkisstjórnin hefur
afgreitt eða vinnur að og eru íviln-
andi fyrir heimilin.
Ríkisstjórnin samþykkti í gær
stofnun eignaumsýslufélags sem
á að taka yfir og leysa úr málum
„þjóðhagslega mjög mikilvægra
fyrirtækja,“ eins og Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra orðaði
það á blaðamannafundinum. Mikil-
vægið ræðst af nauðsyn starfsemi
fyrirtækjanna fyrir samfélagið og
tiltók Steingrímur öryggisþætti á
borð við fæðuöryggi, samgönguör-
yggi og fjarskiptaöryggi.
Eingaumsýslufélagið verður
sjálfstætt fyrirtæki með sjálf-
stæðri stjórn og tekur ákvarðanir
á grundvelli laga og reglna í sam-
starfi við Seðlabankann og aðila
vinnumarkaðarins.
Þá greindi Steingrímur frá
hugmyndum sem uppi eru um að
breyta greiðsluröð vegna van-
skila á skattakröfum á þann veg að
greitt verði fyrst inn á höfuðstól
skuldarinnar en ekki af vöxtum
líkt og nú er.
bjorn@frettabladid.is
Miklir erfiðleikar á
30 þúsund heimilum
Eiginfjárstaða 30 þúsund heimila er neikvæð eða við það að verða neikvæð.
Bílalán og yfirdráttarlán eru ekki tekin með í reikninginn. Forsætisráðherra
segir hugsanlegt að afskrifa þurfi 40 prósent af skuldum þeirra verst settu.
Peter, liggur Golfstraumurinn
suður til Spánar núna?
„Já, hann liggur allavega ekki lengur
til Íslands með sinn snjó og klaka.“
Hundruð Íslendinga eru á leið til Spánar
að spila golf í apríl. Peter Salmon er yfir-
maður golfdeildar Vita-ferða. Hann segir
veðráttuna á Íslandi valda því að fólk
sækir til útlanda til að iðka íþróttina.
■ Gera á fólki mögulegt að breyta
gengistryggðum lánum yfir í hefð-
bundin verðtryggingarlán.
■ Hámarksupphæð greiddra vaxta-
bóta og viðmiðunarfjárhæð vaxta-
bóta hækka um 25 prósent.
■ Greiðsluaðlögun verður útvíkkuð
með því að láta hana ná til fast-
eignaveðkrafna.
■ Unnið er að samkomulagi um
að öll greiðsluerfiðleikaúrræði
Íbúðalánasjóðs nái skilyrðislaust til
allra lánastofnana.
■ Til skoðunar er að Íbúðalánasjóði
verði heimilt að veita íbúðalán til
að greiða upp íbúðalán hjá bönk-
um og sparisjóðum.
AÐGERÐIR FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
ÞRÖNG STAÐA MARGRA Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra upplýsti í gær
að eiginfjárstaða um 30 þúsund heimila væri neikvæð eða við það að verða
neikvæð. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra greindi frá stofnun eigna-
umsýslufélags ríkisins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FERÐALÖG Þeir Hjalti Vigfús Hjalta-
son og Gísli Jónsson, sem báðir
starfa hjá Arctic trucks, eru
nýkomnir heim úr sögulegri ferð á
Suðurpólinn. Þeir óku, í félagi við
aðra, fjórum sérútbúnum jeppum
frá Arctic Trucks á pólinn en þetta
er í fyrsta skipti sem fjórhjóladrif-
in farartæki ná því marki.
Í ferðinni gegndu þeir hlutverki
þjónustuaðila fyrir þátttakendur í
gönguskíðakeppninni Amundsen
Omega 3 ski race ásamt því að
fylgja kvikmyndatökuliði og öðru
fylgdarliði keppninnar á pólinn.
Ferðin tók í heildina tæpa þrá
mánuði og býður árangurinn upp á
ýmsa framtíðarmöguleika.
- ve / sjá allt
Söguleg ferð á Suðurpólinn:
Sigur fyrir ís-
lenskt hugvit
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
áfrýjað til Hæstaréttar dómi yfir
manni, sem dæmdur var fyrir kyn-
ferðisbrot gegn barnungri dóttur
sinni. Dómnum er áfrýjað til refsi-
þyngingar.
Dómur Héraðsdóms Reykja-
ness í máli mannsins, sem gekk
9. febrúar, vakti mikla umræðu.
Maðurinn var þá dæmdur í tveggja
ára fangelsi fyrir að misnota barn-
unga dóttur sína ítrekað frá árun-
um 2006 til nóvember 2008. Hún
var tveggja ára þegar misnotkun-
in hófst.
Foreldrar barnsins höfðu verið
skjólstæðingar félagsmálayfir-
valda allt frá því að það fæddist.
Var haft eftirlit með því hvernig
barninu vegnaði vegna þess að
báðir foreldrar höfðu átt við mikil
vandamál að stríða um margra ára
skeið. Þar kom að sálfræðingur var
fenginn til að meta forsjárhæfni
þeirra. Niðurstaða hans var sú að
hann taldi stefnuleysi, geðsjúk-
dóma og ýmsa andlega bresti ein-
kennandi; hugsun þeirra væri of
óskýr og dómgreind slök varðandi
barnið. Barnaverndarnefnd höfð-
aði því mál í febrúar 2007 til að
svipta foreldrana forsjá yfir litlu
stúlkunni. Dómstólar fóru fram á
foreldrahæfnismat. Á þeim tíma
var faðirinn kominn með forræð-
ið yfir stúlkunni og mat sálfræð-
ingur hann hæfan.
Barnaverndaryfirvöld hættu þá
við að krefjast forræðissviptingar.
- jss
Ríkissaksóknari áfrýjar vegna kynferðisbrots:
Vill þyngri refsingu
yfir föðurnum
LÖGREGLUMÁL Karlmaður um fertugt er alvarlega
slasaður eftir að bíll hans hafnaði á brúarstólpa við
Reykjanesbraut undir Breiðholtsbraut seinnipart
dags í gær.
Maðurinn var á flótta undan lögreglu, sem hafði
veitt honum eftirför frá Reykjanesbæ. Hann var
einn í bílnum. Mildi þykir að enginn annar skuli hafa
slasast við ofsaakstur mannsins.
Maðurinn ók á kyrrstæðan bíl fyrrverandi eigin-
konu sinnar í Reykjanesbæ og ók á brott. Enginn
var í bílnum, sem er mikið skemmdur. Lögreglan
á Suðurnesjum veitti honum eftirför, og lögregla
höfuðborgar svæðisins tók við eftirförinni til móts
við álverið í Straumsvík.
Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu,
og reyndu lögreglumenn ítrekað að króa bíl hans af.
Um var að ræða stóran mikið breyttan jeppa og ók
maðurinn ítrekað á lögreglubíla á flóttanum.
Að sögn lögreglu mjaðmagrindarbrotnaði maður-
inn. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni
á bráðamóttöku Landspítalans er líðan mannsins
stöðug og hann ekki talinn í lífshættu. - bj
Ofsaakstur ökumanns á flótta undan lögreglu endaði á brúarstólpa:
Mildi að aðrir slösuðust ekki
ÓNÝTUR Bíll mannsins var gjörónýtur eftir að hann hafnaði á
brúarstólpa við Reykjanesbraut, undir Breiðholtsbraut.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STANGVEIÐI Guðni Guðbergsson,
sviðsstjóri Auðlindasviðs Veiði-
málastofnunar, býst ekki við að
fiskgengd í íslenskum laxveiði-
ám verði eins mikil í sumar og
hún var í fyrrasumar. „Góðu árin
fylgjast gjarnan að, nokkur í röð,
og slæmu árin líka. Í fyrra var
metveiði í mörgum ám, sérstak-
lega á Suður- og Vesturlandi. Það
er ekki hægt að ætlast til að met
séu slegin mörg ár í röð en það
er þó von til þess að fiskgengdin
verði í mjög þokkalegu lagi. En
fyrir Norðan og Austan eru aðrar
blikur á lofti. Þar er byrjað að
dala aðeins þótt ekkert í kortun-
um bendi til neinna vandræða,“
segir Guðni sem ítrekar að álykt-
anir hans byggist á bráðabirgða-
tölum frá síðasta sumri. - gar
Spá fiskifræðings:
Laxarnir verða
færri í sumar
GUÐNI GUÐBERGSON Á að baki 30 ára
rannsóknir á laxi og silungi.
ALÞINGI Geir H. Haarde, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sagði
ríkisstjórnina hafa pukrast með
breytingar á stjórnarskránni.
Málið var rætt á Alþingi í gær
en forsætisráðherra mælti fyrir
því á föstudag.
Geir sagði það rangt sem
stjórnarliðar héldu fram að
haft hefði verið samráð við
Sjálfstæðisflokkinn um málið.
Honum hafi jú verið sýnt blað
með málinu en ekki gefinn kost-
ur á að gera við það athuga-
semd. Aukinheldur hafi málinu
verið breytt í þrígang áður en
það var lagt fram.
- bþs
Breytingar á stjórnarskrá:
Stjórnin pukrast
að mati Geirs
DÓMSMÁL Karlmaður um tvítugt,
Ari Dagur Sigurðsson, hefur
verið dæmdur í átján mánaða
fangelsi fyrir lífshættulega
hnífaárás, svo og til greiðslu
350 þúsund króna í miskabætur.
Hann réðst að morgni nýársdags
2009 með hnífi á annan mann og
stakk hann í andlit og bak. Árás-
in átti sér stað í verslun 10-11 við
Lágmúla í Reykjavík.
Árásarmaðurinn gekkst undir
geðheilbrigðisrannsókn. Hann
reyndist vera sakhæfur, en upp-
fyllti mörg skilmerki ofsóknar-
æðis. Í greinargerð geðlæknis-
ins kom fram að maðurinn iðrist
einskis og útiloki í raun ekki að
endurtaka „svona aftur gagnvart
lituðum manni“. - jss
Lífshættuleg atlaga:
Átján mánuðir
fyrir hnífaárás
VIÐSKIPTI Íslenskir aðalverktakar
(ÍAV) og samstarfsfyrirtæki áttu
hagstæðasta boðið í 1.000 mega-
vatta vatnsaflsvirkjun sem verð-
ur reist í Sviss. Tilboðið hljóðar
upp á 70 milljarða króna.
Ætlunin er að virkja um 600
metra fallhæð milli tveggja
stöðuvatna í Ölpunum, að því er
fram kemur í tilkynningu frá
ÍAV. Nota á rafmagn framleitt
utan háannatíma til að flytja vatn
aftur upp í efra stöðuvatnið.
Stefnt er að því að samninga-
viðræður við verkkaupa hefjist
á næstu vikum. Verktími verður
tæplega fimm ár. - bj
Nýstárleg virkjun í Sviss:
ÍAV áttu lægsta
boðið í virkjun
STJÓRNMÁL „Þetta er óneitanlega
dularfullt,“ segir Árni Johnsen,
alþingismaður Sjálfstæðisflokks,
um óútskýrt hvarf
sautján hundruð
eintaka af blaði
sem hann gefur
út í aðdraganda
prófkjörs flokks-
ins á laugardag.
Árni segir
kynningarblað
sitt hafa verið
prentað í 17.500
eintökum. Hann
hafi samið við Íslandspóst
um að dreifa því á öll heimili og
fyrirtæki í Suðurkjördæmi. Blöð-
in hafi alls staðar skilað sér nema
í Vestmannaeyjum. „Hjá póstin-
um í Reykjavík er mér sagt að
blöðin hafi farið þar í bíl. Síðan
átti að senda þau með Herjólfi
til Vestmannaeyja en einhvers
staðar á leiðinni virðast þau hafa
horfið gersamlega,“ útskýrir
Árni. - gar
Óvæntur vandi Árna Johnsen:
Prófkjörsblaðið
hvarf í pósti
SPURNING DAGSINS