Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 46
26 11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM LÁRÉTT 2. pest, 6. umhverfis, 8. sauðagarnir, 9. tangi, 11. eldsneyti, 12. morðs, 14. augnsjúkdómur, 16. ekki, 17. stígandi, 18. angan, 20. grískur bókstafur, 21. útungun eggja. LÓÐRÉTT 1. geð, 3. tveir eins, 4. skipafélag, 5. skordýr, 7. smiðjumór, 10. andi, 13. krass, 15. heimsálfu, 16. trjátegund, 19. skóli. LAUSN LÁRÉTT: 2. kvef, 6. um, 8. vil, 9. nes, 11. mó, 12. dráps, 14. gláka, 16. ei, 17. ris, 18. ilm, 20. pí, 21. klak. LÓÐRÉTT: 1. lund, 3. vv, 4. eimskip, 5. fló, 7. mergill, 10. sál, 13. pár, 15. asíu, 16. eik, 19. ma. „Af hverju stjórnmálamenn koma hingað? Tja, hér koma tugir manna og láta klippa sig og það getur því oft verið mikil og heit umræða um pólitíkina,“ segir hárskerinn Kjartan Björnsson. Þingmenn og frambjóðendur í prófkjör- um stjórnmálaflokkanna, sem vilja ná góðum úrslitum, ættu að leggja nafn Kjartans og rakara- stofu Björns og Kjartans á Sel- fossi á minnið. Dæmin sýna að þeir sem setjast í stólinn þar ná góðum árangri. Meðal þeirra sem hafa sest í stól- inn fyrir kosningar og prófkjör með góðum árangri eru framsókn- armennirnir Bjarni Harðarson og Guðni Ágústsson, ráðherrarn- ir Árni M. Mathiesen og Geir H. Haarde og svo Björgvin G. Sig- urðsson. Þegar Kjartani er bent á að þessir menn hafi þurft að segja af sér þingmennsku og misst ráðherra- stóla að undan- förnu er hann fljótur til svara. „Þetta er auðvitað að einhverju leyti rétt en þessir menn komu líka hingað þegar þeir unnu sína stærstu sigra,“ útskýrir Kjartan og upplýsir meðal annars að Sigurður Ingi Jóhannsson, dýra- læknirinn sem sigraði í prófkjöri framsóknarmanna í suðurkjör- dæmi, hafi látið klippa sig skömmu fyrir kosningar. „Þá kom Geir líka hingað fyrir síðustu kosningar þegar Sjálfstæðisflokkurinn vann sinn stærsta sigur.“ Kjartan upplýs- ir síðan að Bjarni Benediksson, sem býður sig fram í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins, hafi þegar boðað komu sína. „Hann hefur reyndar verið ansi lengi á leiðinni, hann verður að koma vilji hann ná góðu kjöri á lands fundinum,“ segir Kjartan og hlær. Hárskerinn viðurkennir að þing- manna-klippingarnar séu svipað- ar, þó að hver og einn hafi auðvitað sinn stíl. Kosningaklippingin verði þó að laða fram kynþokkann sem sé nauðsynlegur hverjum stjórn- málamanni. „Þarna er hárfín lína á milli,“ útskýrir hann. Rakarastofa Kjartans og Björns er hreinræktað fjölskyldufyrir- tæki. Afi Kjartans stofnaði fyrir- tækið 1948 og pabbi hans, Björn, hefur klippt Sunnlendinga í fjöru- tíu ár. „Sjálfur hef ég verið að vinna hérna í 27 ár og er ekki nema rétt rúmlega þrítugur,“ segir Kjart- an en auk þess er yngsti bróðirinn einnig með skærin á lofti. freyrgigja@frettabladid.is KJARTAN BJÖRNSSON: HEFUR HENDUR Í HÁRI ÞINGMANNA Kosningaklippingin kallar fram kynþokka þingmanna BJARNI Í STÓLNUM Bjarni Harðarson er einn þeirra sem hafa sest í stól Kjartans og látið lappa upp á hárið. Aðrir þingmenn sem hafa látið skera þar hár sitt eru Guðni Ágústsson, Geir H. Haarde og Árni Mathiesen. MYND/SUNNLENDINGUR.IS „Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvort þetta verði leikin mynd eða teiknimynd. Ég hallast frekar að því að þetta verði teiknimynd,” segir Þórarinn Leifsson en hann, ásamt konu hans Auði Jónsdóttur, ætlar að skrifa kvikmyndahandrit upp úr bók Þórarins, Leyndarmálið hans pabba. Bókin vakti töluverða athygli þegar hún kom út 2007 en hún segir frá systkinum sem glíma við töluverðan vanda; pabbi þeirra sporðrennir nefnilega manneskj- um í tíma og ótíma. Þórarinn er auk þess að skrifa handrit að næstu bók sinni sem ráðgert er að komi út í haust. Hann vildi ekkert gefa upp um innihald hennar að svo stöddu. Þórarinn var staddur í Berlín þegar Fréttablaðið hafði upp á honum en hann verður viðstaddur næststærstu bókahátíð Þýskalands í Leipzig enda er Leyndar- málið hans pabba að koma út á þýsku undir nafninu Papas Geheimnis. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu, það er þýskt barnaleikhús í Leipzig sem er að leiklesa bókina og hún hefur fengið fína dóma,“ útskýrir Þórarinn en einn gagnrýnand- inn sagði að svona bók hefði aldrei verið skrifuð. Varla er hægt að sleppa Þórarni án þess að spyrja hvernig honum hafi verið tekið, skuldugum Íslendingnum, í Þýska- landi. „Ég fór á barinn í gær og sagði að við Íslendingar værum mestu tapar- ar í heimi. Þeim fannst það bara fyndið og spurðu hvort ég væri ekta Íslending- ur,“ segir Þórarinn. „Ég held að þetta sé bara miklu heilbrigðara svona en þegar við vorum uppasvín, núna erum við bara Íslendingar á okkar eigin forsendum.“ - fgg Íslensk mannæta á hvíta tjaldið „Við verðum bara að krossa fingur og vona að vespurnar finni sér samastað,” segir Gunnar Hans- son leikari. Ítölsku Vespurnar hans, sem vöktu mikla athygli í fyrra, eru nú hálf heimilislausar en þær voru lengi vel til sölu í Saltfélaginu út á Granda. Gunnar áréttar að hann hafi flust þaðan í september, áður en hrunið dundi yfir, en eins og glöggir vegfarendur hafa tekið eftir er Saltfélag- ið galtómt eftir að skilanefnd Kaupþings tók yfir rekstur Pennans sem átti lúxus-verslunina. Gunnar vill þó ekki taka svo djúpt í árinni að segja Vespurnar heimilislausar, þær séu meira á biðstöð, með skiptimiða að bíða eftir næsta strætó. „Maður er bara lítill fiskur sem kann ekki að synda í þessum ólgusjó og ég er bara að bíða eftir hjálpar- kút því ekki getur maður verið einn í þessu. Svo virðist allt hreyfast ofurhægt um þessar mundir inni í bönkunum.“ Gunnar þvertekur fyrir að Vespu-ævintýrið sé úti, þvert á móti finni hann fyrir miklum áhuga frá fólki nú þegar sól er loks tekin að hækka. Og vísar því á bug að Vespan sé eitthvert góðærisbruðl eins og Range Rover og aðrir álíka munir. „Þetta er hag- kvæmasta leiðin til að ferðast,“ segir Gunnar sem vill að gefnu tilefni koma því á framfæri að það sé bara til ein Vespa og að það sé skrásett vörumerki. „Menn skyldu varast eftirlíkingar,“ segir hann og vísar þar til nokkurra auglýsinga sem birst hafa að undanförnu í fjölmiðlum en þar eru auglýstar vespur til sölu. „Þær eru ekki Vespur heldur scouters, án þess að ég sé að gera lítið úr því.“ - fgg Vespur Gunnars á biðstöð EKKI BÚIÐ Gunnar Hansson segir ítölsku Vespurnar vera á biðstöð, hann bíði nú eftir hjálparkút enda geti hann ekki synt einn í þessum ólgusjó. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ÚTGÁFUSAMNINGI FAGNAÐ Þórarinn Leifsson og Auður Jónsdóttir fagna útgáfusamningi í Þýskalandi með kampavíni. Þau skrifa nú kvikmyndahandrit eftir bókinni Leyndarmálið hans pabba. MYND/BJÖRK ER Á LEIÐINNI Bjarni Bene- diktsson er víst á leiðinni til Kjartans. Rakarinn segir það enda lífsnauðsynlegt vilji hann ná góðu kjöri á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins. Skoðaðu Mín borg ferðablað Icelandair á www.icelandair.is „Santa Maria á Laugaveginum er með ekta mexíkóskan mat. Ég mæli með kjúklingi í maísrúll- um með mole-súkkulaðisósu.“ Dögg Mósesdóttir leikstjóri. Sjónvarpskonan Lára Ómarsdóttir hefur sagt skilið við þáttinn Mér finnst á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Síð- asti þáttur hennar var á mánudags- kvöldið. Lára stoppaði ekki lengi við á ÍNN, ekki eru nema örfáar vikur síðan þátturinn var endur- reistur með nýjum stjórnendum. Ástæða brotthvarfsins er að Lára hefur ráðið sig á fréttastofu RÚV. Lára mun vera ráðin í afleys- ingar til að byrja með en ólíklegt verður að teljast að Óðinn Jónsson og félagar sleppi af henni hendinni þegar Lára kemst af stað. Þar með sitja þær Bergljót Davíðs- dóttir og Katrín Rut Bessadóttir einar eftir með Mér finnst. Þær stöllur eru þegar farnar að svipast um eftir arftaka Láru en ekkert hefur verið afráðið um framhaldið. Sjónvarpskonurnar eru þó stórhuga sem fyrr og hyggjast jafnvel fylla skarð Láru með tveimur eftirmönnum. Ingvar Þórðar- son og félagar í kvikmyndafélaginu Kisa undir- búa nú lögsókn á hendur NBC- sjónvarpsrisanum vegna meints höfundarréttarbrots. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær saka þeir aðstandendur sjónvarpsþáttanna Heroes um að stela söguþræðinum úr kvikmyndinni Astrópíu sem þeir framleiddu árið 2007. Þær sögur eru nú á kreiki að kvikmynda- mógúllinn Sigurjón Sighvatsson hafi keypt réttinn að Astrópíu í útlöndum fyrir skemmstu. Sigur- jón býr sem kunnugt er að áratugareynslu úr Hollywood og ætti að geta reynst þeim Kisa-mönnum haukur í horni í erfiðum málarekstri komi til þess. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.