Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 16
MARKAÐURINN 11. MARS 2009 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
„Við höfum lengi vitað af því að
ábyrgðin gæti fallið á okkur. Hún
kemur ekki á óvart,“ segir Þór-
dís Sigurðardóttir, stjórnarfor-
maður Teymis, um skuldabréfa-
flokk upp á 2,7 milljarða króna
sem féll á félagið í kjölfar sölu
Íslenskrar afþreyingar á Senu í
síðustu viku.
Engar skuldir fylgdu Senu til
nýrra kaupenda og falla skuld-
bindingar á herðar Íslenskrar af-
þreyingar að skuldabréfaflokkn-
um undanskildum.
Þórdís segir ljóst að skuldir
Teymis hafi hækkað upp á síð-
kastið og eiginfjárhlutfallið sé
mjög lágt. Þörf sé á fjárhagslegri
endurskipulagningu.
Teymi, sem var afskráð í fyrra,
tapaði 5,5 milljörðum króna á
fyrri hluta síðasta árs. Skuldir
námu 35 milljörðum króna og var
eiginfjárhlutfall átján prósent.
Teymi fundaði með kröfuhöfum
í desember og þá lá fyrir að fé-
lagið gæti ekki staðið við allar
skuldbindingar. Landsbankinn
er stærsti kröfuhafi Teymis.
„Ég hef reynt að halda Teymi
saman og búa til áætlun sem geri
kröfuhöfum kleift að fá allar sínar
kröfur til baka. Ég er mjög bjart-
sýn á það,“ segir Þórdís. - jab
Bjartsýn á horfur Teymis
ÞÓRDÍS SIGURÐARDÓTTIR
Guðrún Helga Sigurðardóttir
skrifar
Færeyska tryggingafélagið Føroyar, TF, ætlar að
hefja starfsemi á íslenskum tryggingamarkaði fyrir
lok þessa árs. Félagið hefur einkum áhuga á því að
kaupa íslenskt tryggingafélag og hefur átt viðræður
við VÍS, TM og Sjóvá í því skyni. Einnig kemur til
greina að opna hér útibú, stofna nýtt tryggingafélag
eða hefja beina sölu á tryggingum. Félagið kynnti
þessi áform sín í gær.
Edvard Heen, framkvæmdastjóri Føroyar, segir
að almenningur á Íslandi leiti nú eftir viðskiptum
við fyrirtæki sem þeir geti treyst. TF vilji koma opið
og heiðarlega fram og upplýsa Íslendinga um áhuga
sinn og fyrirætlanir. Þetta sé félag sem hægt sé að
treysta auk þess sem það geti boðið samkeppnishæft
verð. Tryggingaverð sé heldur lægra í Færeyjum
en á Íslandi.
Heen segir að til greina komi að kaupa sig inn í
tryggingafélag hér og það geti gengið hratt fyrir
sig, eða hægt. Hugsanlega skýrist þetta eftir mánuð.
Markmiðið sé hins vegar að hefja starfsemi innan
árs. TF hafi lengi haft áhuga á því að færa út kvíarn-
ar erlendis og unnið að því nú í tvö ár að koma inn
á íslenskan markað. Það hafi því ekki verið spurn-
ing um hvort heldur hvenær félagið myndi koma
hingað.
„Við erum ekki hér vegna kreppunnar eða til að
koma á brunaútsölu heldur vegna langtímamark-
miða. Við teljum að rekstrarumhverfið hér sé svipað
því sem við höfum í Færeyjum,“ segir hann.
Að baki TF stendur sterkt félag, að sögn Heen, þar
sem hinn almenni tryggingataki í Færeyjum á um
leið í félaginu, svipað og í Samvinnutryggingum hér
áður fyrr. Heen segir að félagið standi fjárhagslega
sterkt og vilji setja verulegt fjármagn í að kaupa sig
inn á íslenska markaðinn. Hann segir að auðvitað séu
einhver takmörk á því hvað félagið setji mikla pen-
inga í þetta en horfa verði á það í samhengi.
„Við getum verið að tala um verulega margar millj-
ónir í dönskum krónum,“ segir hann og telur eðli-
legt að TF kanni samstarf við íslenska banka um
að koma inn í íslenskt tryggingafélag. Félagið hafi
þegar hitt Gylfa Magnússon viðskiptaráðherra og
hann hafi boðið Færeyinga velkomna. Þá hafi félagið
átt í viðræðum við íslenska banka.
„Við erum ekki hér til að vera gráðug. Við erum
með fé og erum tilbúin til að fjárfesta því að við
teljum að Íslendingar verði fljótir að rífa sig upp
úr kreppunni. Húsin verða hér áfram, bílarnir og
skipin. Okkar markmið er að verða hluti af íslensku
samfélagi,“ segir Heen.
VILJA OPIN SAMSKIPTI Edvard Heen, framkvæmdastjóri fær-
eyska tryggingafélagsins Føroyar, segir að félagið stefni að því að
hefja starfsemi á íslenskum markaði fyrir árslok. Félagið vilji hafa
opin og heiðarleg samskipti á íslenskum markaði og tilkynni því
fyrirætlanir sínar nú. MARKAÐURINN/ANTON BRINK
Traustir Færeyingar
bjóða tryggingar
Færeyskt félag vill hefja hér starfsemi fyrir árslok.
Markmiðið er að bjóða samkeppnishæft verð.
STEFNA STJÓRNVALDA TIL FRAMTÍÐAR?
Áherslur stjórnmálaflokkanna
FIMMTUDAGINN 12. MARS
Nánar á Viðskiptaþingi 2009 - Endurreisn hagkerfisins
Skráning og nánari upplýsingar á www.vi.is og í síma 510-7100
Alfesca -13,5% -23,8%
Bakkavör -7,0% -30,5%
Eimskipafélagið 0,0% -40,0%
Icelandair -6,6% -14,3%
Marel 4,7% -31,2%
SPRON 0,0% 0,0%
Straumur -99,4% -99,5%
Össur -17,0% -26,8%
*Miðað við lokagengi í Kauphöll í gær.
Úrvalsvísitalan OMXI15 224
Úrvalsvísitalan OMXI6 584
Vika Frá ára mót um
Heildarviðskipti með hlutabréf í
Kauphöllinni námu sex milljörð-
um króna í febrúar. Veltan var 303
milljónir króna á dag, sem er rúm-
lega tvöfalt meira en í janúar.
Markaðsvísitala skráðra félaga
var 192 milljarðar í lok febrúar.
Úrvalsvísitalan stóð í 839,76 stig-
um og heildarvísitala aðalmark-
aðar í 468,02 stigum.
Heildarviðskipti með skulda-
bréf námu alls 193 milljörðum í
febrúar. Það jafngildir 9,7 millj-
örðum á dag, sem eru mestu við-
skiptin frá október 2008.
- bj
Tvöfaldaðist
milli mánaða
Skuldir ríkis og sveitarfélaga
voru um 301 milljarður króna í
árslok 2008, samkvæmt bráða-
birgðatölum Hagstofunnar um
fjármál hins opinbera. Skuldirn-
ar námu sem svaraði 20,5 pró-
sentum af landsframleiðslu.
Í árslok 2007 var hrein peninga-
leg eign ríkis og sveitarfélaga
um 11 milljarðar, og munurinn
því 312 milljarðar króna, eða
um 21,4 prósent af landsfram-
leiðslu.
Peningalegar eignir ríkis og
sveitarfélaga námu 1.065 millj-
örðum króna í árslok 2008, en
heildarskuldirnar voru 1.366
milljarðar króna.
Tekjur hins opinbera voru 637
milljarðar króna árið 2008, sem
er aukning um tæplega 13 millj-
arða milli ára. Tekjurnar voru um
43,5 prósent af landsframleiðslu,
samanborið við 44,6 prósent árið
áður. - bj
Skuldir hins opinbera
301 milljarður króna
SKATTAR Tekjur ríkis og sveitarfélaga
jukust um tæplega 13 milljarða króna milli
ára. MARKAÐURINN/STEFÁN
„Það vantar betri upplýsingar
um íbúðaleigumarkaðinn,“ segir
Svanur Guðmundsson, formað-
ur Félags löggildra leigumiðl-
ara. Samtökin eru rétt farin af
stað en þau voru stofnuð fyrir um
hálfum mánuði.
Svanur segir aðstæður slíkar
í dag að leigusamningum hafi
fjölgað mjög mikið og séu þeir
orðnir fleiri en kaupsamningar.
Erfitt sé hins vegar að segja til
um umfang íbúðaleigumarkaðar-
ins þar sem yfirsýn skorti nú um
stundir þvert á þarfir.
Hann segir upplýsingarn-
ar liggja á borðum yfirvalda,
svo sem hjá sýslumanninum í
Reykjavík, en erfitt að nálgast
þær þegar þörf krefji.
Samtökin horfa til þess að bæta
úr upplýsingaskortinum, að sögn
Svans. „Við viljum að þeir opin-
beru aðilar sem eiga að gera þetta
vinni vinnuna sína,“ segir hann.
Að sama skapi ætla samtökin að
safna saman upplýsingum og
koma þeim áleiðis til opinberra
aðila til að bæta þar úr. - jab
Litlar upplýsingar um leigumarkað
SVANUR GUÐMUNDSSON
Félag löggildra leigumiðlara vill bæta
upplýsingar um íbúðaleigumarkaðinn. M
A
R
K
A
Ð
U
R
IN
N
/S
TE
FÁ
N