Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 36
16 11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR Síðustu vikur hef ég farið óvenju oft í bíó og í byrjun þessarar viku fór ég tvö kvöld í röð. Á sunnudagskvöldið fór ég á He‘s just not that into you, eftir að hafa staðið í hálftíma röð í miðasölunni, og á mánudagskvöldið sá ég Marley and Me. Ég hafði gaman af báðum myndunum, bæði hló og grét (sem hefur varla gerst síðan ég sá Titanic), en það sem skipti mig samt mestu máli var að ég gleymdi mér gjörsamlega. Í rúmlega tvo tíma gleymdi ég öllu sem svo mikið sem minnti á kreppuna og slæmt efnahagsástand. Afþreying hefur öðlast nýja merkingu fyrir mér á undanförnum mánuðum. Mér finnst hún ekki lengur vera eitthvað til að grípa í þegar tími gefst til, heldur hreinlega vera orðin ómissandi. Það er því engin furða að það sé röð út á götu úr bíóhúsum borgarinnar mörg kvöld í viku. Það hefur sýnt sig að afþreyingariðn- aðurinn vex þegar kreppir að, fólk sækir í góða afþreyingu og ég er eflaust bara ein af mörgum sem hafa farið í bíó tvo daga í röð upp á síðkastið eða sótt annars konar viðburði og uppákomur. Það er engin leið að flýja ástandið sem við búum við núna, ástand sem er að fara bæði fjárhagslega, andlega og líkamlega illa með fólk, en allt sem nærir andann, lyftir manni upp, kætir og hressir er gulls ígildi á tímum sem þessum. Þegar neikvæðni er að éta mann upp er ómetan- legt að geta gleymt sér yfir góðri bók, bíó- mynd, leikverki, tónlist eða öðru sem veitir manni innblástur og hleður batteríin fyrir átök hversdagsins. ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott Það kostar auðvitað sitt að fóðra hann, en það er hverrar krónu virði... Brjóstsykur? Ja... já! Vöfflur? Hey! Pönnu- kökur með rjóma? Jeminn eini! Sokka í stíl? Nei hættu nú alveg! Halló. Ha? Í alvöru?? Frábært! Hvað er að gerast? Rottan mín lifir þetta af! Hún er laus af spítalanum! Til hamingju með það! Ég hef ekki verið svona glaður síðan hún fór síðast í magaspegl- un! Hver borgar eiginlega dýralækna- reikningana þína? Mjási! Lalli! Hvar er ég!?! Á ströndinni. Úps! Þá hef ég farið á vitlausa öldu! Ég veit leynd- armál en ég get ekki sagt ykkur það. Ókei ég skal segja ykkur. Hannes hellti ávaxtasafa niður á teppið. Oooojjjj! Ég er svo mikil kjaftaskjóða! Af hverju gerði ég þetta?? Jæja, ég segi honum þetta ekki ef þið gerið það ekki. Þetta verður leyndarmál- ið okkar. Velkomin í hringleika- húsið. Góð afþreying er gulls ígildi NOKKUR ORÐ Alma Guð- mundsdóttir LENDIR Í ELKO5. FEBRÚAR SENDU SMS ESL DTR Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ERU ROCKER Á DVD, TÖLVULEIKIR, AÐRAR DVD MYNDIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA. Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum – Skógarlind 2. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr/skeytið. ...EINA VON HLJÓMSVEITARINNAR ER VONLAUS! Geggjuð gamanmynd frá leikstjóra Full Monty KOMI N Í ELKO! 9. HVERVINNUR!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.