Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 42
22 11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is LAGERSALA Á HÚSGÖGNUM OG SMÁVÖRU í lagerhúsnæði okkar að Norðurhellu 10, Hafnarfirði ALLAR VÖRUR MEÐ 50-90% AFSLÆTTI Opið: Laugardaga 10–16 – Sunnudaga 12–16 – Virka daga 12–18 Meistaradeild Evrópu: Liverpool-Real Madrid 4-0 1-0 Fernando Torres (16.), 2-0 Steven Gerrard, víti (28.), 3-0 Steven Gerrard (47.), 4-0 Andrea Dossena (88.) Liverpool komst áfram, 5-0, samanlagt. Juventus-Chelsea 2-2 1-0 Vincenzo Iaquinta (19.), 1-1 Michael Essien (45.), 2-1 Alessandro Del Piero, víti (74.), 2-2 Didier Drogba (83.) Chelsea komst áfram, 2-3, samanlagt. FC Bayern-Sporting Lissabon 7-1 1-0 Lukas Podolski (7.), 2-0 Lukas Podolski (34.), 3-0 Anderson Polga, sjálfsmark (39.), 3-1 Joao Mutinho (42.), 4-1 Bastian Schweinsteiger (43.), 5-1 Mark Van Bommel (74.), 6-1 Miroslav Klose, víti (82.), 7-1 Thomas Muller (90.) Bayern komst áfram, 12-1, samanlagt. Panathinaikos-Villarreal 1-2 0-1 Ariel Ibagaza (49.), 1-1 Mantzios (55.), 1-2 Joseba Llorente (70.). Villarreal komst áfram, 2-3, samanlagt. Enska 1. deildin: Bristol-Coventry 2-0 Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry Enska 2. deildin: Walsall-Crewe 1-1 Gylfi Sigurðsson var í byrjunarliði Crewe. Þýski handboltinn: Göppingen-Lemgo 29-23 Jaliesky Garcia Padron skoraði 4 mörk fyrir Göpp- ingen. Vignir Svavarsson skoraði 3 fyrir Lemgo og Logi Geirsson 2. Iceland Express-deild kvk: Haukar-Hamar 66-61 Stig Hauka: Monika Knight 19, Slavica Dimovska 13, Kristrún Sigurjónsdóttir 12, Telma Fjalarsdóttir 8, María Sigurðardóttir 4, Sara Pálmadóttir 3, Bryndís Hreinsdóttir 3. Stig Hamars: LaKiste Barkus 28, Julia Demirer 11, Íris Ásgeirsdóttir 11, Fanney Guðmundsdóttir 5, Dúfa Ásbjörnsdóttir 4, Hafrún Hálfdánardóttir 2. FÓTBOLTI Sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar klárast í kvöld með fjórum leikjum og er Arsenal eina liðið sem kemur með sigur úr fyrri leiknum. Flestra augu verða á Old Trafford þar sem menn bíða spennt- ir eftir því hvort lærisveinum Jose Mourinho takist að stöðva sigurgöngu Manchester United. Eftir markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Mílanó er ljóst að annað liðið verður að skora í kvöld ætli það sér áfram. Báðir þjálfarar liðanna hafa átt í vand- ræðum með miðverði sína en í gær var þó ljóst að Rio Ferdinand verður með United. Það eru ekki eins góðar fréttir fyrir Mourinho sem staðfesti að hann yrði án fjögurra miðvarða í leiknum, þeirra Christian Chivu, Walter Samuel, Marco Mater- azzi og Nicolas Burdisso. Hann þarf því að færa menn úr stöðum og í miðvörðinn en kvartar þó ekki. Mourinho hefur aðeins tapað 1 af 13 leikjum sínum á móti Alex Ferguson sem er frábær tölfræði en hann gat talist heppinn að hafa sloppið með jafntefli úr fyrri leiknum. „José dregur að sér fjölmiðlaathyglina og hann getur verið opinskár og mikill skemmtikraftur. Ég hef gaman af því að horfa á hann í sjónvarpinu en það er ekkert sem hann getur gert þegar leikmenn- irnir eru komnir inn á völlinn. Þá snýst þetta um ein- beitingu leikmanna og ég treysti mínum mönnum til að gera sitt inni á vellinum,” sagði Ferguson á blaða- mannafundi fyrir leikinn. Eiður Smári Guðjohnsen og félagar taka á móti Lyon í kvöld en liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leikn- um í Frakklandi. Barcelona-liðið treystir á Nývang en liðið hefur farið áfram í fimm síðustu skipti í Meist- aradeildinni þar sem liðið hefur átt seinni leikinn á heimavelli. Arsenal hefur 1-0 forustu úr fyrri leiknum á móti Roma og lærisveinum Arsene Wenger hefur gengið vel á Ítalíu enda búnir að vinna þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum þar. Weng- er ætlar ekki að pakka í vörn. - óój LEIKIR KVÖLDSINS: Man. United-Inter (Fyrri leikur: 0-0) Barcelona-Lyon (1-1) Roma-Arsenal (0-1) Porto-Atlético Madrid (2-2) Inter heimsækir Manchester United í Meistaradeildinni á Old Trafford í kvöld: Mourinho skemmtir Ferguson > Logi vonast til að ná landsleikjunum Landsliðsmaðurinn Logi Geirsson á við meiðsli að stríða í öxl þessa dagana en öxlin hefur reyndar verið að plaga hann í nokkurn tíma. Logi er með bólgur í annarri öxlinni og hefur þurft á sprautumeðferð að halda vegna meiðsl- anna. Þrátt fyrir meiðslin er Logi vongóður um að vera orðinn nógu góður til þess að geta hjálpað íslenska landsliðinu í tveim mikilvægum landsleikjum í undankeppni EM sem eru framundan um miðjan mánuðinn. Sá fyrri er ytra gegn Makedóniu en sá síðari hér heima gegn Eistlandi. FÓTBOLTI AC Milan staðfesti í gær að David Beckham hefði meiðst á æfingu félagsins. Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en Beckham á eftir að gangast undir rannsóknir. Þetta er nokkurt áfall fyrir Milan enda hefur Beckham verið að leika einstaklega vel fyrir félagið. Meiðslin eiga sér þess utan stað aðeins tveim dögum eftir að hann fékk lánssamning sinn fram- lengdan. - hbg Áfall fyrir AC Milan: Beckham meiddist DAVID BECKHAM Kominn á sjúkralist- ann. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Fjórir aðilar sækjast eftir því að halda Evrópumótið í fótbolta eftir sjö ár en fresturinn til að sækja um að halda keppn- ina rann út í gær. UEFA gaf það út í dag að Frakkland, Ítalía og Tyrkland hefðu öll sótt um að halda EM. Þá kom inn sameiginleg umsókn frá Svíþjóð og Noregi. Í apríl mun UEFA gefa út þær kröfur sem verða settar á gest- gjafa keppninnar og í framhald- inu þurfa að þessir fjórir aðilar að skila inn ítarlegu yfirliti yfir skipulag og framkvæmd Evrópu- keppninnar fái þeir að halda hana. Lokaákvörðun um leikstað verður tekin í kringum 27. maí á næsta ári. - óój EM í knattspyrnu 2016: Fjórir vilja halda mótið HK-ingurinn Ólafur Bjarki Ragnarsson er væntanlega að spila sitt síðasta tímabil með HK en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska B-deildarliðið Ahlener SG. Það félag er í fimmta sæti norðurriðils B-deildarinnar og ætlar sér upp í úrvalsdeild næsta vetur. Reyndar hefur félagið ekki enn keypt Ólaf Bjarka frá HK þó svo það sé búið að semja við leikmanninn. HK hefur meira að segja ekki einu sinni heyrt frá félaginu sem verða að teljast ótrúleg vinnubrögð. Alexander Arnarsson, formaður handknattleiks- deildar HK, sagði að þrátt fyrir þessa staðreynd ætlaði félagið ekki að standa í vegi fyrir því að Ólafur kæmist út. Alexander sagði HK styðja sitt fólk í að komast lengra í íþróttinni. „Ég er búinn að ganga frá mínum málum og vonandi klárast þetta hjá Ahlener og HK þar sem ég á eitt ár eftir af samningi. Ég kíkti á þetta félag í janúar og leist vel á þetta allt saman. Ég fór líka með Kára til Zürich en leist ekki eins vel á það þó svo það séu meiri peningar þar og liðið sé í Meistaradeildinni. Ahlener heillaði mig meira,“ sagði Ólafur Bjarki sem gat ekkert æft með Amiticia Zürich þar sem þeir félagar fengu ekki töskurnar sínar fyrr en rétt áður en þeir fóru heim. Sökum meiðslanna getur Ólafur ekki æft í hvaða skóm sem er. Því varð sú ferð endaslepp hjá honum. Miðjumaðurinn efnilegi hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli síðasta árið. Hann fór í hnéaðgerð síðasta sumar og var tiltölulega nýkominn af stað aftur þegar hann fékk beinhimnubólgu. Því varð að skera hann upp á báðum fótum í október. „Ég er ágætur til heilsunnar fyrir utan að það er ekkert sérstakt að æfa í Digranesinu þar sem það er svo hart gólfið. Það aftrar aðeins batanum hjá mér. Mér leið ágætlega í leiknum gegn Víkingi og gat spilað í um 50 mínútur. Það er líka mjög gott gólfið í Víkinni. Ég væri helst til í að spila bara alla leiki á útivelli,“ sagði Ólafur Bjarki léttur. ÓLAFUR BJARKI RAGNARSSON: Á LEIÐ TIL ÞÝSKALANDS Í ATVINNUMENNSKU EN LAPPIRNAR ENN AÐ TRUFLA HANN Væri helst til í að spila alla leiki á útivelli 1-0 FYRIR HAUKA Haukar eru með yfirhöndina í einvíginu gegn Hamari í undanúrslitum Iceland Express-deildar kvenna. Vinna þarf þrjá leiki til að kom- ast í úrslit. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Liverpool lék á als oddi í Meistaradeildinni í gær. Yfirspil- aði Real Madrid frá upphafi og vann sanngjarnan stórsigur, 4-0. Chelsea sýndi styrk í Tórínó og kom tvisvar til baka. Fernando Torres var nokkuð óvænt í byrjunarliði Liverpool og hann byrjaði leikinn af miklum krafti. Eftir aðeins þriggja mínútna leik sólaði Torres Ítalann Canna- varo upp úr skónum, komst einn gegn Casillas en spænski lands- liðsmarkvörðurinn varði vel. Upp hófst mikil stórskotahríð að marki Real. Mascherano átti frá- bært skot utan teigs sem Casillas varði stórkostlega í horn og Gerr- ard var með fínt skot úr auka- spyrnu. Leikmenn Real Madr- id voru sem meðvitundarlausir á meðan heimamenn spiluðu firna- vel. Á 16. mínútu setti Liverpool mikla pressu á varnarmenn Real sem voru langt frá því að vera vandanum vaxnir. Dirk Kuyt og Torres komust einir í gegn, Kuyt lagði boltann á Torres sem renndi boltanum í autt markið. Fullkom- lega sanngjörn niðurstaða enda yfirburðir Liverpool algjörir í leiknum. Á 27. mínútu var dæmd víta- spyrna á Gabriel Heinze sem var glórulaus dómur enda sýndu endursýningar að boltinn fór í öxl Heinze. Aðstoðardómarinn flagg- aði engu að síður. Steven Gerrard tók vítið og skoraði örugglega. 2-0 í leikhléi og þó svo að vítaspyrnu- dómurinn hafi verið rangur mátti Real þakka fyrir að vera bara 2- 0 undir. Leikurinn var þó endanlega afgreiddur í upphafi síðari hálf- leiks. Ryan Babel átti þó fínan sprett upp vænginn, gaf fyrir þar sem Gerrard var óvaldaður og hann skaut boltanum laglega í markið. 3-0 og ballið búið en Doss- ena vildi aukadans og bætti því við fjórða markinu. Chelsea fór með eins marks for- skot til Tórínó þar sem liðð mætti Juventus. Það byrjaði ekki gæfu- lega hjá heimamönnum því Nedved fór snemma meiddur af velli. Það hafði þó ekki áhrif á heimamenn því Iaquinta kom þeim yfir með laglegu marki á 19. mínútu. Fékk þá stungusendingu og kláraði skotið laglega í fjærhornið. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks átti Frank Lampard hörkuskot í slá, Michael Essien var fljótastur í frá- kastið og skoraði dýrmætt mark. Alessandro Del Piero gaf Juve von með marki úr víti í síðari hálfleik en Didier Drogba kláraði dæmið átta mínútum fyrir leikslok með marki af stuttu færi. henry@frettabladid.is Eins og að drekka vatn Liverpool niðurlægði Real Madrid á Anfield í gær og komst auðveldlega í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Chelsea, Bayern og Villarreal fóru líka áfram. MARK Michael Essien skorar hér dýr- mætt mark gegn Juventus. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES MAGNAÐIR Steven Gerrard og Fernando Torres voru enn og aftur í aðalhlutverki hjá Liverpool. Þeir afgreiddu Real Madrid í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.