Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 24
SAFFRAN er fræni saffrankrókuss sem er lágvaxin planta af
sverðliljuætt. Það er upprunnið í Suður-Evrópu og í Litlu-Asíu og
hefur verið notað sem krydd og litunarefni en það gefur gulan lit.
„Þetta er ítalskur fjölskyldustaður
þar sem stílað er inn á fyrsta
flokks matseld á góðu verði,“ segir
Margrét Rósa Einarsdóttir eigandi
veitingastaðarins Písa í Lækjar-
götu 6b.
Tveir kokkar, þeir Úlfur Ugga-
son og Þorkell Garðarsson sjá um
að elda kræsingarnar ofan í gesti
staðarins sem opinn er frá klukk-
an sex á daginn. „Við ákváðum
að byrja hægt enda opnuðum við
í miðri kreppu í lok nóvember,“
útskýrir Margrét Rósa en þann 1.
maí næstkomandi er ætlunin að
staðurinn opni á hádegi. „Þá verð-
ur þetta kaffihús á daginn,“ segir
hún og bætir við að staðurinn fari
vel af stað enda hafi maturinn
fengið góða dóma.
Písa er í húsnæði sem áður
hýsti kaffihúsið Ljóta andarung-
ann. „Við erum búin að lýsa stað-
inn og gera hann mjög notalegan,“
segir Margrét Rósa og telur mjög
góðan anda ríkja í húsinu. Á efri
hæðinni er gistiheimili þar sem
hvert herbergi er með eigin sniði
og allt stílað inn á notalegheit. List
spilar stóran þátt í að mynda gott
andrúmsloft á Písa en í innri sal er
hálfgert gallerí þar sem í framtíð-
inni verða haldnar listasýningar.
En er ekki erfitt að standa í
veitingarekstri á þessum tímum?
„Það er ekkert erfiðara í dag en
hefur verið,“ segir Margrét Rósa
sem hefur unnið í þessum bransa í
þrjátíu ár og sér einnig um rekstur
Iðnó. solveig@frettabladid.is
Ítalskur fjölskyldustaður
Veitingastaðurinn Písa var opnaður í Lækjargötunni í lok nóvember á síðasta ári. Í notalegri stemningu
er boðið upp á klassíska ítalska rétti. Allt frá carpaccio og risotto til canneloni og tiramisu.
Notaleg stemning er á ítalska veitingahúsinu Písa. Margrét Rósa undirbýr komu
matargestanna með því að leggja á borð á björtum staðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í innri sal Písa hanga listaverk enda
ætlunin að salurinn þjóni sem gallerí.
HVERFISGÖTU 6 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 562 2862
SÍÐASTA VIKA LAGERSÖLU 70% AFSLÁTTUR AF ÖLLU
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Best geymda leyndarmál
Íslands er Fiskbúðin Mos
Háholt 13-15 –milli Krónunnar og Mosfellsbakarís –Opið 10-19 alla virka daga
Ferskur fi skur og fi skréttir
Ragnhildur Sigurðardóttir mælir
með Fiskbúðinni Mos
Ýsa R/BL 1090 KR/KG
Ýsa M/Roði 890 KR/KG
Ýmsir réttir 1190 KR/KG
ATH þetta er ekki tilboðsverð
- þetta er okkar verð alla daga
Réttur dagsins alla daga
990 KR